Hreppsnefnd Ásahrepps
48. fundur
21. janúar 2026
kl.
08:30
-
11:15
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 316. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 316. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 240. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 1; Þjórsártún L165323; Gerð vegslóða og plan við Þjórsárbrú; Framkvæmdarleyfi - 2512049.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Þjórsárbrúar í Ásahreppi. Í framkvæmdinni felst gerð vegslóða og plans austan við Þjórsárbrú. Vegslóðinn
mun liggja frá þjóðvegi nr. 1 (Hringvegur) austan við Þjórsárbrú og undir brúna að fyrirhuguð plani. Framkvæmdinni verður að mestu haldið innan veghelgunarsvæðis Vegagerðarinnar. Hluti af vegslóða liggur í gegnum land Þjórsártúns.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfis, á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.2010, með fyrirvara um að skriflegt samþykki landeiganda Þjórsártúns mun liggja fyrir áður en framkvæmdir hefjast.
Mál nr. 16; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 25-240 - 2512003F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-240 lögð fram til kynningar.

2.
Fundargerð 317. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 317. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 25-241.
Mál nr. 18; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 2601001F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-2026 lögð fram til kynningar.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 26-2026 lögð fram til kynningar.
3.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 10
Lögð fram fundargerð 10. fundar fjallskiladeildar Holtamannaafréttar.
Lögð fram fundargerð 10. fundar fjallskiladeildar Holtamannaafréttar.
4.
Fundargerð 132. fundar stjórnar UTU
Lögð fram fundargerð 132. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 45. fundar stjórnar Odda bs
Lögð fram fundargerð 45. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 252. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Lögð fram fundargerð 252. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 341. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 341. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 342. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 342. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
9.
Útivistarstígar í Ásahreppi
Lögð fram stöðuskýrsla verkefnastjóra um lagningu útivistarstíga í Ásahreppi, dags. 31. desember 2025.Einnig liggur fyrir að endurskoða þarf verklagsreglur og umsóknareyðublað í ljósi þeirrar reynslu sem fengist hefur við þau verkefni sem farið var í á árinu 2025.
Endurskoðun verklagsreglna er í gangi og ekki verða umsóknir teknar til afgreiðslu fyrr en endurskoðun verklagsreglana er lokið. Stefnt er að því að endurskoðun verði lokið og afgreidd á febrúarfundi hreppsnefndar.
10.
Tillaga að barnamenningardögum á Suðurlandi
Lagt fram tölvuskeyti SASS, das 6. janúar 2026, þar sem kynnt er tillaga að barnamenningardögum á Suðurlandi. Hugmyndin er að eitthvað verði að gerast í barnamenningu í tengslum við aðaldag barnamenningarhátíðar Árborgar sem haldin verður sumardaginn fyrsta.
Hreppsnefnd Ásahrepps líst vel á hugmyndina. Sveitarstjóri hefur rætt aðkomu Ásahrepps í samstarfi við Rangárþing ytra í tengslum við starf Jóhanns G. Jóhannssonar sem er sameiginlegur starfsmaður sveitarfélaganna.
11.
Nýidalur, lóð innan þjóðlendu
Lagt fram tölvuskeyti Kára Gunnarssonar, merkjalýsanda, dags. 7. janúar 2026 þar sem hann óskar eftir að Ásahreppur sendi beiðni til forsætisráðuneytis um stofnun lóðar í Nýjadal, en þar hefur Ferðafélag Íslands staðið í framkvæmdum á skálasvæðinu.Skv. leiðbeiningum forsætisráðuneytis þarf sveitarfélag að óska eftir stofnun slíkrar lóðar og gera grunnsamkomulag um lóðina.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að senda forsætisráðuneytinu beiðni um stofnun lóðarinnar og gerð grunnsamkomulags um lóðina.
Jafnframt er sveitarstjóra falið að ræða við fulltrúa forsætisráðuneytis um framhald málsins.
Jafnframt er sveitarstjóra falið að ræða við fulltrúa forsætisráðuneytis um framhald málsins.
12.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps fyrir tímabilið janúar - desember 2025.
Til kynningar.
13.
Breyting á reglugerð 1212-2015, um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga
Lögð fram til kynningar reglugerðarbreyting; 4. gr. reglugerðar 1212/2015, er lýtur að bókhaldi, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Breytingin tók gildi 1. janúar 2026.
Til kynningar.
14.
Bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028-2033
Lagt fram tölvuskeyti Heilbrigðiseftirlits Suðurlanda, dags. 14. janúar 2026, þar sem verið er að kynna bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028-2033 og uppfærslu 9. kafla vatnaáætlunar 2022-2027 vegna nýrra gagna.
Til kynningar.
15.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 18. febrúar 2026 á skrifstofu Ásahrepps. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.