Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

48. fundur
17. nóvember 2021 kl. 08:30 - 10:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Oddviti setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Ákveðið var að halda fundinn í fjarfundakerfi Zoom í samræmi við heimild sem sveitarstjórnarráðuneytið gaf út þann 15. nóvember s.l. Oddviti lagði fram tillögu um að einn nýr dagskrárliður komi inn nr. 34 og aðrir dagskrárliðir færist til sem því nemur. Samþykkt samhljóða.
Dagskrá
1.
Fundargerð 226. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2111005
Fundargerð 226. fundar skipulagsnefndar UTU lögð fram ásamt 151. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 27; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-151 - 2110003F
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-151.
2.
Fundargerð 227. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2111022
Lögð fram fundargerð 227. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-152.
Mál nr. 1; Röðull L198895;Deiliskipulag - 2009049.
Lagt er fram uppfært deiliskipulag vegna Röðuls í Ásahreppi. Í deiliskipulaginu felst m.a. skilgreining lóðar og byggingarreitar auk byggingarheimilda innan lóðar. Málið var áður afgreitt á fundi sveitarfélagsins þann 20.10.2020 en stöðvaðist í ferli vegna athugasemda Skipulagsstofnunar er varðar takmarkanir vegna fjarlægðar frá vegi. Undanþága ráðuneytis vegna þessa liggur nú fyrir. Gerð hefur verið breyting á deiliskipulaginu frá fyrra skipulagi þar sem gert er ráð fyrir auknu byggingarmagni á lóð. Innan byggingarreits verði heimilt að byggja allt að 200 fm íbúðarhús auk bílgeymslu/skemmu allt að 450 fm. Mænishæð skal að hámarki vera 6 metrar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir að deiliskipulagið verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.

Mál nr. 26; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-152 - 2110007F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-152.
3.
Fundargerð umhverfisnefndar Ásahrepps, 19. október 2021
Málsnúmer 2111034
Lögð fram fundargerð umhverfisnefndar Ásahrepps, dags. 19. október 2021.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
4.
Fundargerð seyrustjórnar, 27. október 2021
Málsnúmer 2111009
Lögð fram fundargerð seyrustjórnar, dags. 27. október 2021.
Dagskrárliðum 2 og 3 var vísað til sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir gjaldskrá Seyrustaða (dagskrárliður 2) og fjárhagsáætlun fyrir árið 2022 (dagskrárliður 3) fyrir sitt leyti.
Að öðru leyti er fundargerðin lögð fram til kynningar.
5.
Fundargerð 91. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2111014
Lögð fram fundargerð 91. fundar stjórnar UTU.
Gerðar hafa verið breytingar á áður framlögðum tillögum að breytingu samþykkta UTU.
1. dagskrárlið er vísað til sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga. Málinu vísað til 27. dagkrárliðar þessa fundar þar sem sérstaklega verður fjallað um samþykktir UTU.
Að öðru leyti er fundargerðin til kynningar.
6.
Fundargerð 9. fundar stjórnar Lundar
Málsnúmer 2111007
Lögð fram fundargerð 9. fundar stjórnar Lundar ásamt 6 mánaða uppgjöri 2021.
Til kynningar.
7.
Samráðsfundur með Vegagerðinni, dags. 26. október 2021
Málsnúmer 2111013
Lögð fram fundargerð samráðsfundar með Vegagerðinni er varðar tengi- og héraðsvegi ásamt heimreiðum.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 44. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2111018
Lögð fram fundargerð 44. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 45. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2111017
Lögð fram fundargerð 45. fundar stjórnar Odda bs.
Hreppsnefnd Ásarhepps staðfestir fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Odda bs fyrir árið 2022. ES og EG sitja hjá en samþykkt af ÁBÓ, BJJ og GJG.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
10.
Fundargerð 15. fundar stjórnar Húsakynna bs
Málsnúmer 2111015
Lögð fram fundargerð 15. fundar stjórnar Húsakynna bs. ásamt rekstraryfirliti, framkvæmda- og rekstraráætlun fyrir árið 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti framkvæmda- og rekstraráætlun fyrir árið 2022, en þar er gert ráð fyrir lagfæringu á gólfi íþróttahússins að Laugalandi.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
11.
Fundargerð 14. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2111016
Lögð fram fundargerð 14. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun vatnsveitunnar fyrir árið 2022. Gjaldskrá vatnsveitu er óbreytt frá fyrra ári og hægt að skoða hana á heimasíðu Ásahrepps (1297/2019).
Að öðru leyti til kynningar.
12.
Fundargerð 218. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2111020
Lögð fram fundargerð 218. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fjárhagsáætlun 2022 fyrir sitt leyti. Gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu hefur verið auglýst hjá Stjórnartíðindum (990/2021) og birtist á heimasíðu Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrir sitt leyti að tekið verði upp klippikortakerfi við móttöku úrgangs að Strönd til reynslu og árangur verkefnisins verði metinn í lok næsta sumars. Hreppsnefnd Ásahrepps leggur áherslu á að kynning á þessu verkefni verði komið á sem allra fyrst fyrir íbúa Rangárvallasýslu. Fulltrúar E-lista sitja hjá við afgreiðslu þessa liðar.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
13.
Fundargerð 24. fundar Tónlistarskóla Rangæinga bs
Málsnúmer 2111021
Lögð fram fundargerð 24. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir rekstraráætlun fyrir árið 2022 fyrir sitt leyti.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
14.
Fundargerð aðalfundar 2021 Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2111029
Lögð fram fundargerð aðalfundar Félags- og skólaþjónustunnar sem haldinn var 9. nóvmeber 2021. Einnig lagðir fram ársreikningar 2020 ásamt skýrslum.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 51. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2111030
Lögð fram fundargerð 51. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 55. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2111031
Lögð fram fundargerð 55. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Félags- og skólaþjónustu fyrir árið 2022.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
17.
Fundargerð 92. fundar félagsmálanefndar
Málsnúmer 2111012
Lögð fram fundargerð 92. fundar félagsmálanefndar ásamt tillögum um breytingu á reglum um fjárhagsaðstoð og kynningu á starfsemi félagsþjónustunnar 2020.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 93. fundar félagsmálanefndar
Málsnúmer 2111033
Lögð fram fundargerð 93. fundar félagsmálanefndar.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 98. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Málsnúmer 2111011
Lögð fram fundargerð 98. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökuls þjóðgarðs.
Til kynningar.
20.
Fundargerð 306. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2111027
Lögð fram fundargerð 306. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
21.
Fundargerð 148. fundar stjórnar Fræðslunetsins
Málsnúmer 2111008
Lögð fram fundargerð 149. fundar stjórnar Fræðslunetsins.
Til kynningar.
22.
Fundargerð 573. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2111023
Lögð fram fundargerð 573. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
23.
Fundargerð 47. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2111003
Lögð fram fundargerð 47. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélga ásamt ársreikningi 2020.
Til kynningar.
24.
Fundargerð 902. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2111019
Lögð fram fundargerð 902. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
25.
Ákvörðun um álagningu gjalda og gjaldskrár 2022
Málsnúmer 2111001
Lögð fram tillaga að álagningu gjalda og gjaldskrár fyrir árið 2022.
1. Álagningarprósenta útsvars 2022
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að álagningarprósenta útsvars skuli vera 14,52%.

2. Álagningarhlutfall fasteignaskatts 2022
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að álagningaprósenta fasteignaskatts verði:
A: 0,22% af fasteignamati á íbúðarhúsnæði, bílageymslur, geymsluhúsnæði, lönd og útihús í landbúnaði og sumarhús, allt með tilheyrandi lóðum.
B: 1,32% af fasteignamati sjúkrastofnana skv. lögum um heilbrigðisþjónustu, skóla, heimavista, leikskóla, íþróttahúsa og bókasafna, að meðtöldum lóðum og lóðarréttindum.
C: 1,65% af fasteignamati allra annarra fasteigna með tilheyrandi lóðum, þó að undanskildum fasteignum í 0 flokki.
Afsláttur af fasteignaskatti til fasteignaeigenda sem eru 67 ára og eldri, eða 75% öryrkjar eða meira, og eiga lögheimili í viðkomandi fasteign fer eftir samþykkt um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti sem samþykkt var af hreppsnefnd Ásahrepps 13. desember 2017.
Gjalddagar verða sex (6) talsins árið 2022, fyrsta hvers mánaðar frá 1. febrúar til 1. júlí. Þar sem heildarupphæð er undir kr. 20.000 er einn gjalddagi, 1. apríl. Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
Ekki verða sendir út greiðsluseðlar né álagningarseðlar í bréfpósti. Álagningarseðlar eru aðgengilegir á heimsíðunni www.island.is. Stofnuð verður krafa í heimabanka með sama hætti og áður sem hægt er að greiða rafrænt. Þeir sem óska þess að fá áfram send skjöl með bréfpósti gefst kostur á því og er bent á að hafa samband við skrifstofu hreppsins.

3. Gjaldskrá kaldavatnsveitu 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vatnsgjald verði ákveðið í sérstakri gjaldskrá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs.

4. Gjaldskrá vegna meðhöndlunar úrgangs 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gjald fyrir meðhöndlun úrgangs verði samkvæmt gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs fyrir sorphirðu og sorpeyðingu.

Sorpeyðingargjald af öllu húsnæði, þ.e. íbúða-, frístunda- og atvinnuhúsnæði: 22.470 kr.

Sorphirðugjald af íbúðarhúsnæði:
Ílátastærð Grátunna Blátunna Græntunna Lífræn tunna
240 l ílát kr. 14.720 kr. 4.910 kr. 4.910 kr. 4.910
660 l ílát kr. 44.180 kr. 14.720 kr. 14.720
120 l ílát



kr. 2.450

Gjald fyrir heimsendan gám (flokkaður):

31.000 kr.

5. Gjaldskrá íþróttamiðstöðvarinnar á Hellu, Laugalandi og Þykkvabæ.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gjaldtaka vegna almennrar notkunar íþróttamiðstöðvanna fari eftir sameiginlegri gjaldskrá Rangárþing ytra og Ásahrepps.

6. Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhlóða að innheimta ekkert árlegt rotþróargjald. Kostnaður af tæmingu rotþróa verði greiddur úr sveitarsjóði.

7. Heimgreiðslur.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að reglur um heimgreiðslur, frá nóvember 2019, verði óbreyttar og hámarksupphæð verði kr. 80.000.

8. Íþrótta- og tómstundasstyrkur.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að reglur um íþrótta- og tómstundastyrki, frá nóvember 2019, verði óbreyttar og styrkur geti numið allt að kr. 75.000.

9. Leikskólagjald.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrri ákvörðun hreppsnefndar frá desember 2017 að veittur verði 50% afsláttur af gjaldskrá Odda bs. árið 2022 fyrir börn í leikskóla. Ekki verði lengur veittur 100% afsláttur fyrir 5 ára börn.

10. Mötuneytiskostnaður leik- og grunnskólabarna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrri ákvörðun hreppsnefndar frá desember 2017 að greitt verði áfram 100% mötuneytisgjald fyrir öll leik- og grunnskólabörn. Niðurgreiðslurnar gilda fyrir börn með lögheimili og aðsetur í Ásahreppi.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða tillöguna í heild sinni.
26.
Fjárhagsáætlun Ásahrepps 2022-2025
Málsnúmer 2110033
Lögð fram drög að fjárhagsáætlun Ásahrepps 2022-2025 til fyrri umræðu.
Sveitarstjóri kynnti fyrirliggjandi drög að fjárhagsáætlun og gerði grein fyrir forsendum hennar og svaraði hann fyrirspurnum.
Umræður urðu um fram lagða fjárhagsáætlun og henni vísað til síðari umræðu á næsta reglubundna fundi hreppsnefndar sem haldinn verður þann 15. desember 2021.
27.
Endurskoðuð samþykkt fyrir UTU; síðari umræða
Málsnúmer 2111002
Lögð fram til annarar og loka umræðu tillaga um breytingu á samþykktum fyrir UTU (Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs).
Gerðar hafa verið breytingar á tillögunni frá fyrri umræðu, sem lýtur að framsali valdheimilda til handa skipulagsnefndar og skipulagsfulltrúa, sbr. viðauka 2 og 3, hafa þeir verið felldar út. Jafnframt er felld út tillaga um fjölgun nefndarmanna í skipulagsnefnd úr 6 í 7.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagðar breytingar á samþykktum fyrir sitt leyti.
28.
Endurskoðun samþykktar um stjórn og fundarsköp Ásahrepps
Málsnúmer 2110023
Önnur umræða um breytingu á samþykktum um stjórn og fundarsköp Ásahrepps.
Í ljósi þess að búið er að gera breytingar á tillögu um endurskoðaðar samþykktir fyrir UTU og þær hafa ekki fengist endanlega samþykktar af öðrum aðildarsveitarfélögum er ákveðið að fresta afgreiðslu á breytingum samþykkta Ásahrepps, þar til að niðurstaða varðandi UTU liggur fyrir.
29.
Söluumboð vegna Giljatanga 7
Málsnúmer 2110032
Lagt fram samþykkt gagntilboð vegna sölu eignarinnar Giljatangi 7. Fyrir liggur staðfesting á fjármögnun kaupenda og verður eignin afhent í síðasta lagi í byrjun júlí 2022. Til að hægt sé að þinglýsa kaupsamningi verður sveitarsjóður Ásahrepps að greiða upp áhvílandi veðlán sem hvílir á eigninni.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að heimila sveitarstjóra að greiða upp áhvílandi lán á Giljatanga 7 þannig að hægt verði að þinglýsa kaupsamningi. Jafnframt er Valtý Valtýssyni, sveitarstjóra, veitt fullt umboð til að undirrita öll skjöl fyrir hönd hreppsnefndar Ásahrepps, sem lýtur að sölu eignarinnar Giljatanga 7 að Laugalandi.
30.
Framtíð félagsheimilisins Ásgarðs
Málsnúmer 2110025
Umræða um framtíð félagsheimilisins Ásgarðs í Ási.
Umræða varð um framtíð félagsheimilisins Ásgarðs í Ási. Egill gerði grein fyrir samtali sínu við Jakob Þórarinsson um eignarheimildir hússins. Málið verður í biðstöðu þar til að löggilt eignarhald á húsinu liggur fyrir.
31.
Tenging ljósleiðara að Áshömrum og Húsum
Málsnúmer 2108017
Lögð fram frumhönnun og kostnaðarmat við að leggja ljósleiðarastreng frá Syðri-Hömrum að afleggjara að Húsum, ásamt tengiskáp. Gera má ráð fyrir að kostnaður við verkið verði á bilinu 1 mkr - 1,3 mkr.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Ásaljós leggi ljósleiðarastreng frá Syðri-Hömrum að heimkeyrslu að Húsum og setja upp tengiskáp.
32.
Kosning eins aðalmanns í umhverfisnefnd Ásahrepps
Málsnúmer 2111006
Jakob Þórarinsson hefur flutt lögheimili sitt úr Ásahreppi og gengur þá úr umhverfisnefnd Ásahrepps.Í hans stað er kosin Erla Brimdís Birgisdóttir, Ásmúla, sem aðalmaður í umhverfisnefnd.
Samþykkt samhljóða.
33.
Styrkbeiðni vegna ljósleiðaratengingar
Málsnúmer 2111010
Ásta B. Ólafsdóttir víkur af fundi undir þessum dagskrárlið.Lögð fram styrkbeiðni Ástu B. Ólafsdóttur og Gísla Sveinssonar vegna ljósleiðaratengingar að Hestási.
Með tilvísun til fyrri samþykktar hreppsnefndar Ásahrepps frá 14. júlí 2015, þá samþykkir hreppsnefndin samhljóða að veittur verði styrkur vegna tengingar við ljósleiðarakerfi Ásaljóss kr. 150.000. Umsækjandi hefur greitt útlagðan kostnað við lagningu ljósleiðara frá tengiboxi inn í hús.
34.
Skoðanakönnun; Félagsvísindastofnun
Málsnúmer 2111035
Lagt fram tölvuskeyti Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, dags. 15. nóvmeber 2021 þar sem fram kemur verkefnistillaga að símakönnun meðal íbúa Ásahrepps. Könnuninni er ætlað að gefa upplýsingar um almennan hug íbúa til sameiningar sveitarfélaga. Fram kemur kostnaðarmat fyrir verkefnið en það getur breyst ef forsendur þess breytast við úrvinnslu framkvæmdarinnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að semja við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands um framkvæmd skoðanakönnunar í Ásahreppi. Form og framkvæmd könnunarinnar verði send til hreppsnefndar áður en til framkvæmdar kemur.
35.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps fyrir tímabilið janúar - október 2021.
Til kynningar.
36.
Ársskýrsla Íþróttaféalgsins Garps 2020
Málsnúmer 2111004
Lögð fram ársskýrsla Íþróttafélagsins Garps fyrir árið 2020.
Til kynningar.
37.
Námskeiðið Loftslagsvernd í verki
Málsnúmer 2111024
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags 2. nóvember 2021 þar sem sveitarfélögum er boðin þátttaka á námskeiðið Loftslagsvernd í verki.
Til kynningar.
38.
Innleiðing hringrásarkerfis
Málsnúmer 2111025
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 2. nóvember 2021, þar sem kynnt eru verkefni vegna innleiðingar hringrásarkerfis.
Til kynningar.
39.
Ályktun bæjarráðs Árborgar um leikskólamál
Málsnúmer 2111026
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 2. nóvember 2021, þar sem kynnt er ályktun bæjarráðs Árborgar um leikskólamál.
Til kynningar.
40.
Mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns, aðgerðir 2021
Málsnúmer 2111028
Lögð fram skýrsla Landgræðslu ríkisins, Mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns, aðgerðir 2021.
Til kynningar.
41.
Ársskýrsla UTU fyrir árið 2020
Málsnúmer 2111032
Lögð fram ársskýrsla UTU fyrir árið 2020.
Til kynningar
42.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 15. desember 2021 og hefst fundur klukkan 8:30.
Til kynningar.
Fleira ekki gert.