Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

49. fundur
15. desember 2021 kl. 08:30 - 10:50
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 228. fundar skipulagsnefndar
Málsnúmer 2111042
Lögð fram fundargerð 228. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál nr. 19; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-153 - 2111002F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-153 lögð fram til kynningar.
2.
Fundargerð 229. fundar skipulagsnefndar
Málsnúmer 2112021
Lögð fram fundargerð 229. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál nr. 1; Steinás L176490; skipting lóða; Deiliskipulagsbreyting - 2112012.
Lögð er fram umsókn frá Nönnu Maju Norðdahl er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að heimilt verði að stofna lóðir umhverfis byggingarreiti innan deiliskipulags.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir viðkomandi breytingar á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem breytingin hefur ekki áhrif á hagsmuni annarra en umsækjanda telur hreppsnefndin ekki þörf á grenndarkynningu og mælist til þess að breytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda og verði send Skipulagsstofnun til varðveislu.

Mál nr. 24; Afgreiðslur byggingarfulltrúa 21-154.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-154 lögð fram til kynningar.
3.
Fundargerð samráðsnefndar Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2111036
Lögð fram fundargerð samráðsnefndar Rangárþings ytra og Ásahrepps, en fundur var haldinn 15. nóvember 2021.
Varðandi fyrsta dagskrárlið fundargerðar, uppgreiðslu yfirdráttar byggingarreiknings vegna búnaðarkaupa í viðbyggingu og frágang lóðar þá samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps með þremur (3) atkvæðum (ÁBÓ, BJJ, GJG) og tveir (2) á móti (EG, ES) að greiða til byggingarsjóðs Lundar kr. 7.212.625 sem er 13,48% af kostnaði við kaup á búnaði og frágangi lóðar ásamt fjármagnskostnaði vegna yfirdráttar. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að útfæra Viðauka 3, með aðstoð KPMG endurskoðun,með þeim hætti að þessum útgjöldum verði mætt með að ganga á handbært fé sveitarsjóðs.

Fulltrúar E-lista leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar E-lista samþykkja að greiða hlut Ásahrepps í fjárfestingunni kr. 6.659.401 vegna búnaðarkaupa og lóðarfrágangs en hafna með öllu að greiða fjármagnskostnað kr. 558.577 af láni sem tekið var án ábyrgðar og aðkomu Ásahrepps.

Að öðru leyti staðfestir hreppsnefnd Ásahrepps framlagða fundargerð samráðsnendar Rangárþings ytra og Ásarhepps.

4.
Fundargerð 46. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2111038
Lögð fram fundargerð 46. fundar stjórnar Odda bs.
2. og 3. dagskrárliðir þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða gjaldskrá Odda bs. 2022 og samþykkir einnig samhljóða rekstraráætlun Odda bs. 2022, en áætlunin er óbreytt frá 45. fundi stjórnar Odda bs.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
5.
Fundargerð 8. fundar Héraðsnendar Rangæinga
Málsnúmer 2112017
Lögð fram fundargerð 8. fundar Héraðsnefndar Rangæinga, dags. 2. desember 2021.
Hreppsnefnd Ásarhepps staðfestir fjárhagsáætlun 2022 fyrir sitt leyti, sbr. 3. dagskrárlið fundargerðar.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
6.
Fundargerð 52. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2111037
Lögð fram fundargerð 52. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 53. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2111039
Lögð fram fundargerð 53. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 54. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2111040
Lögð fram fundargerð 53. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 94. fundar félagsmálanefndar
Málsnúmer 2112019
Lögð fram fundargerð 94. fundar félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýlu.
Til kynningar.
10.
Fundargerð aðalfundar UTU, 10. nóvember 2021
Málsnúmer 2111041
Lögð fram fundargerð aðalfundar UTU, sem haldinn var 10. nóvember 2021.
Til kynningar.
11.
Fundargerð aðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands 2021
Málsnúmer 2111043
Lögð fram fundargerð aðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands 2021.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 25. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rngæinga bs.
Málsnúmer 2111044
Lögð fram fundargerð 25. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 13. fundar stjórnar Skógasafns
Málsnúmer 2112013
Lögð fram fundargerð 13. fundar stjórnar Skógasafns, sem jafnframt var aðalfundur.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 14. fundar stjórnar Skógasafns
Málsnúmer 2112009
Lögð fram fundargerð 14. fundar stjórnar Skógasafns ásamt fjárhagsáætlun fyrir árið 2022.
Til kynningar.
15.
Stjórnarfundur FEBRANG, 29. nóvember 2021
Málsnúmer 2112004
Lögð fram fundargerð stjórnar Félags eldriborgara í Rangárvallasýslu (FEBRANG) sem haldinn var 29. nóvember 2021.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 3. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 2111045
Lögð fram fundargerð 3. stjórnarfundar Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 4. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 2111046
Lögð fram fundargerð 4. stjórnarfundar Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
18.
Fundargerð aðalfundar Bergrisans bs, 24. nóvember 2021
Málsnúmer 2112010
Lögð fram fundargerð aðalfundar Bergrisans bs. sem haldinn var 24. nóvember 2021.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 215. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Málsnúmer 2112016
Lögð fram fundargerð 215. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
20.
Fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, 29. október 2021
Málsnúmer 2112015
Lögð fram fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands sem haldinn var 29. október 2021.
Til kynningar.
21.
Fundargerð 575. stjórnarfundar SASS
Málsnúmer 2111049
Lögð fram fundargerð 575. stjórnarfundar SASS.
Til kynningar.
22.
Fundargerð 576. stjórnarfundar SASS
Málsnúmer 2112020
Lögð fram fundargerð 576. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
23.
Fundargerð aðalfundar SASS 2021
Málsnúmer 2111052
Lögð fram fundargerð aðalfundar SASS sem haldinn var dagana 28. og 29. október 2021.
Til kynningar.
24.
Fundargerð 903. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2112003
Lögð fram fundargerð 903. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
25.
Endurskoðun samþykktar um stjórn og fundarsköp Ásahrepps
Málsnúmer 2110023
Lögð fram til síðari umræðu samþykkt um stjórn og fundarsköp Ásahrepps. Þær breytingar hafa orðið á frá fyrri framlagningu að búið er að taka út valdheimildir til skipulagsnefndar og skipulagsfulltrúa.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagaðar breytingar á samþykktinni og felur sveitarstjóra að senda hana til ráðuneytis og til auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda.
26.
Viðauki 2 við fjárhagsáætlun Ásahrepps 2021
Málsnúmer 2112001
Lagður fram Viðauki 2 við fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árið 2021, vegna sölu húseignarinnar Giljatanga 7 að Laugalandi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fram lagðan viðauka. Sveitarstjóra falið að senda lögbundnum aðilum afrit af samþykktum viðauka í samvinnu við KPMG endurskoðun.
27.
Fjárhagsáætlun Ásahrepps 2022-2025
Málsnúmer 2110033
Lögð fram til síðari umræðu og lokaafgreiðslu fjárhagsáætlun Ásahrepps 2022 - 2025.
Fjárhagsáætlun 2022-2025 fyrir Ásahrepp lögð fram til lokaumræðu og afgreiðslu.
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætluninni og skýrði ýmsa liði. Helstu kennitölur
áætlunarinnar fyrir samstæðureikning rekstrarárið 2022 eru (í þús. kr.):

Tekjur: 355.428
Gjöld: 355.780
Fármagnstekjur: 5.869
Rekstrarniðurstaða jákvæð: 5.517

Fastafjármunir: 405.613
Veltufjármunir: 141.698
Eigir samtals: 547.311

Eigið fé: 499.922
Langtímaskuldir: 7.017
Skammtímaskuldir: 40.372
Eigið fé og skuldir samtals: 547.311

Gert er ráð fyrir eftirfarandi fjárfestingum á árinu 2022 (í þús. kr.):
Gatnagerð: 13.000
Götulýsing og plan: 1.000
Reiðvegagerð: 10.000
Viðgerðir á Ásgarði: 15.000
Íþróttamiðstöðin Laugalandi: 7.000
Brunavarnir Rangárvallasýslu bs: 580
Seyrustaðir: 40
Ásaljós: 1.100
Samtals fjárfesting: 47.720

Oddviti bar upp fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árin 2022-2025 til
samþykktar. Tillagan var samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að senda lögbundnum
aðilum afrit af samþykktri áætlun í samráði við KPMG endurskoðun.
28.
Samþykkt um vatnsvernd á Suðurlandi
Málsnúmer 2111047
Lögð fram lokadrög að samþykkt um verndarsvæði vatnsbóla innan lögsagnarumdæma sveitarfélaganna á svæði Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs.
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur engar athugasemdir við framlögð drög að samþykkt og samþykkir þau samhljóða fyrir sitt leyti.
29.
Lagning rafstrengs að Ferjukoti við Hald
Málsnúmer 2109015
Lagt fram tölvuskeyti Ara Guðmundssonar, Verkís, ásamt beiðni um framkvæmdaleyfi, dags. 25. nóvember 2021. Einnig liggja fyrir tvær afstöðumyndir sem sýna lagnaleið rafstrengs frá Hrauneyjum til Ferjukots við Hald.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir að umrætt framkvæmdaleyfi verði veitt með þremur (3) atkvæðum (ÁBÓ, BJJ, GJG) en tveir (2) sátu hjá (EG, ES).
30.
Stofnun miðlægs tækniteymis Sambands Íslenskra sveitarfélaga.
Málsnúmer 2012002
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 7. október 2021, ásamt fylgigögnum sem lúta að þátttöku og framlögum til stafræns samstarfs sveitarfélaga 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að halda áfram í verkefninu og gert er ráð fyrir kostnaði við verkefnið á fjárhagsáætlun 2022.
31.
Styrkbeiðni vegna hreinsistöðvar við Hestás
Málsnúmer 2111051
Ásta B. Ólafsdóttir víkur af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.Lagt fram tölvuskeyti Ástu B. Ólafsdóttur og Gísla Sveinssonar, dags. 24. nóvebmer 2021, þar sem óskað er eftir fjárstyrk á móti kosntaði við hreinsistöð sem sett var niður við Hestás.
Einnig lagður fram reikningur fyrir kaupum á hreinsistöðinni.
Fyrir liggur að sveitarsjóður Ásahrepps hefur veitt styrki fyrir kosnaði við uppsetningu fráveitu frá íbúðarhúsnæði þegar húsnæðið er skráð lögheimili íbúa sveitarfélagsins. Hefur styrkur verið greiddur sem nemur kaupum á einni rotþró.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk sem nemur kr. 300.000.
32.
Fundaráætlun hreppsnefndar Ásahrepps 2022
Málsnúmer 2112002
Lögð fram fundaráætlun fyrir hreppsnefnd Ásahrepps árið 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir áætlunina samhljóða.
33.
Ákvörðun um endurgreiðslu vegna bæjarlýsingar, ljósastaurar.
Málsnúmer 2012034
Lagt fram yfirlit yfir kostnað vegna orkukaupa og flutnings vegna bæjarlýsingar sem var fengið hjá RARIK og Orkusölunni.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að endurgreiðsla vegna bæjarlýsingar verði kr. 44.000 fyrir tvo ljósastaura á hvert heimili þar sem er skráð búseta.
34.
Verksamningur um snjómokstur í Ásahreppi og Rangárþingi ytra
Málsnúmer 2112007
Elín Grétarsdóttir víkur af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.Lagður fram verksamningur milli Nautáss annars vegar og Rangárþings ytra og Ásahrepps hins vegar um snjómokstur í sveitarfélaginu, en tilboð Nautáss kom hagstæðast út. Samningurinn gildir til ársins 2024. Um er að ræða snjómokstur sem unnin er í samvinnu við Vegagerðina og skiptist kostnaður til helminga milli Vegagerðar og sveitarfélaganna, skv. fyrirliggjandi verkáætlun.
Hreppsnefnd Ásarhepps frestar staðfestingu samningsins fyrir sitt leyti. Hreppsnefnd óskar eftir ítarlegri gögnum er varðar úrvinnslu tilboða í verkið sem lagt var til grundvallar ákvörðun um val á verktaka.
35.
Brunavarnaráætlun Rangárvallasýslu 2021-2026
Málsnúmer 2112008
Lögð fram Brunavarnaráætlun Rangárvallasýslu 2021 - 2026 til staðfestingar hjá aðildarsveitarfélögunum.
Hreppsnefnd Ásahrepps fagnar þeim áfanga að brunavarnaráætlun sé tilbúin í endanlegu formi og samþykkt af Mannvirkjastofnun.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða Brunavarnaráætlun Rangárvallasýslu 2021-2026 fyrir sitt leyti.
36.
Stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar um byggingu og rekstur íbúðakjarna fyrir fatlað fólk
Málsnúmer 2112011
Lagt fram bréf Bergrisans bs. dags. 22. nóvember 2021, þar sem fram kemur tillaga frá aðalfundi Bergrisans bs. þess efnis að aðildarsveitarfélög byggðasamlagsins stofni húsnæðissjálfseignarstofnun um byggingu og rekstur íbúðakjarna fyrir fatlað fólk. Framlag Ásahrepps til verkefnisins sem stofnframlag yrði kr. 10.992 eða 1,1%.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vera þátttakandi í verkefninu og greiða sinn hluta stofnframlags ef önnur aðildarsveitarfélög geri slíkt hið sama.
37.
Bréf HSK; beiðni um fjárframlag vegna ársins 2022
Málsnúmer 2112014
Lagt fram bréf Héraðssambandsins Skarphéðins, dags. 7. desember 2021, þar sem óskað er eftir fjárframlagi til rekstrar sambandsins á árinu 2022. Óskað er um styrk sem nemur 280 krónur á hvern íbúa sveitarfélagsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita umbeðinn styrk og gert verður ráð fyrir honum í fjárhagsáætlun ársins 2022.
38.
Styrkbeiðni vegna framkvæmda við Kálfholtskirkjugarð
Málsnúmer 2112018
Brynja J. Jónasdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.Lagt fram bréf sóknarnefndar Kálfholtskirkju, dags. 9. desember 2021, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til framkvæmda við kirkjugarðinn í Kálfholti. Um er að ræða landfyllingu í nýja garðinn til að gera hann láréttan. Keyra þarf um 400 rúmmetra af mold í garðinn, jafna út og þökuleggja. Kostnaðaráætlun fyrir verkið er 1,1 milljónir króna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk til framkvæmdarinnar allt að 1,1 milljónir króna og er gert ráð fyrir þeim útgjöldum á fjárhagsáætlun ársins 2022.
39.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps, dags. 30. nóvember 2021.
Til kynningar.
40.
Álagningakerfi fasteignagjalda
Málsnúmer 2111048
Lagðar fram glærur sem sendar voru af Sambandi íslenskra sveitarfélaga um fyrirhugaðar breytingar á álagningakerfi fasteignagjalda. Gert er ráð fyrir að breytingarnar taki gildi árið 2023.
Til kynningar.
41.
Umsókn um nýjan héraðsveg að Hestási
Málsnúmer 2111050
Lagt fram afrit af bréfi Vegagerðarinnar, þar sem fram kemur samþykki Vegagerðarinnar um nýjan héraðsveg að Hestási.
Til kynningar.
42.
Breytt skipulag barnaverndar
Málsnúmer 2112005
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 30. nóvember 2021 þar sem kynnt er breytt skipulag barnaverndar. Jafnframt upplýst að kynning á breyttu skipulagi verði haldin 13. desember n.k.
Til kynningar.
43.
Uppfærsla svæðisáætlana vegna lagabreytinga
Málsnúmer 2112006
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 30. nóvember 2021, um uppfærslu svæðisáætlana um meðhöndlun úrgangs vegna lagabreytinga.
Til kynningar.
44.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 26. janúar 2022 og hefst hann klukkan 8:30. Fundurinn verður haldinn í fjarfundarkerfi Zoom.
Til kynningar.