Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

5. fundur
19. október 2022 kl. 08:30 - 13:10
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Kynning á starfsemi Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs
Málsnúmer 2210001
Fulltrúar UTU koma á fund hreppsnefndar og kynna starfsemi embættisins.
Jóhannes, Vigfús og Davíð kynntu starfsemi UTU, þ.e. embætti skipulags- og byggingarfulltrúa. Umræða var um starfsemi UTU og fyrirspurnum hreppsnefndarfulltrúa svarað.
2.
Fundargerð 246. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2210022
Lögð fram fundargerð 246. fundar skipulagsnefndar UTU, ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-170.
Mál nr. 23; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-170 - 2209002F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-170 til kynningar.
3.
Fundargerð 247. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2210033
Lögð fram fundargerð skipulagsnefndar UTU ásasmt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-171.
Mál nr. 1; Hellatún lóð C L201666; Fjallstún; Breytt heiti lóðar - 2209092.
Lögð er fram umsókn Hugrúnar Fjólu Hannesdóttur um breytt staðfang. Óskað er eftir því að lóðin Hellatún lóð C L201666 fái staðfangið Fjallstún. Lóðin er innan deiliskipulags fyrir íbúða- og landbúnaðarlóðir við Laufásveg úr landi Hellatúns. Í umsókninni liggur fyrir rökstuðningur um nýtt staðfang.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við nýtt staðfang lóðarinnar.

Mál nr. 19; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-171 - 2209005F.
Fundaragerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-171 lögð fram til kynningar.
4.
Fundargerð 3. fundar stjórnar Odda bs
Málsnúmer 2210003
Lögð fram fundargerð 3. fundar stjórnar Odda bs. 5. dagskrárliður þarfnast afgreiðslu hreppsnefndar Ásahrepps.
Lögð fram fundargerð 3. fundar stjórnar Odda bs. 5. dagskrárliður þarfnast afgreiðslu hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vísa afgreislu liðarins til 23. dagskrárliðar þessa fundar.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
5.
Fundargerð 3. fundar félagmálanefndar Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu
Málsnúmer 2210021
Lögð fram fundargerð 3. fundar félagsmálanefndar. Óskað er eftir staðfestingu hreppsnefndar Ásahrepps endurskoðuðum reglum félagsþjónustunnar. Lagðar fram tillögur að endurskoðuðum reglum ásamt skýringum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fyrirliggjandi endurskoðun á a) Reglum um stuðningsþjónustu við fólk 18 ára og eldra, b) Reglum um um stuðningsþjónustu við börn og fjölskyldur þeirra, og c) Reglur um starfsfólk félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu sem veita stoð og stuðningsþjónustu.
6.
Fundargerð 1. fundar Héraðsnefndar Rangæinga kjörtímabilið 2022-2026
Málsnúmer 2210030
Lögð fram fundaargerð 1. fundar Héraðsnefndar Rangæinga kjörtímabilið 2022-2026.Dagskrárliðir 3.2, 3.5 og 3.6 þurfa afgreiðslu hreppsnefndar Ásahrepps.
3.2. Náttúru- og gróðurverndarnefnd.
Hreppsnefnd Ásahrepps skipar Karl Ölvisson sem fulltrúa Ásahrepps í nefndinni og Hulda Brynjólfsdóttir til vara.

3.5. Umferðaröryggisnefnd.
Hreppsnefnd Ásahrepps skipar Þráinn Ingólfsson sem fulltrúa Ásahrepps í nefndinni og Grétar H. Guðmundsson til vara.

3.6. Öldungaráð.
Hreppsnefnd Ásahrepps skipar Jónas Jónsson sem fulltrúa Ásahrepps í nefndinni og Fanney Björg Karlsdóttir til vara.

Að öðru leyti er fundargerðin til kynningar.

Hreppsnefnd Ásahrepps fagnar því að stofnsamþykktir Héraðsnefndar verði endurskoðaðar sem fyrst með hliðsjón af raunverulegum tilgangi og breyttu lagaumhverfi. Einnig vill hreppsnefnd benda á nauðsyn þess að endurskoða þóknanir fyrir nefndarstörf með hliðsjón af öðrum þóknunum sveitarfélaganna fyrir önnur nefndarstörf.

Samþykkt samhljóða.
7.
Fundargerð aukafundar stofnenda Arnardrangs hses
Málsnúmer 2210034
Lögð fram fundargerð aukafundar stofnenda Arnardrangs hses, dags. 7. október 2022 ásamt samþykktum sem hefur verið breytt.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti endurskoðaðar samþykktir og staðfestir fyrir sitt leyti kjör stjórnar sem fór fram 30. júní 2022.
8.
Fundargerð 4. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2210004
Lögð fram fundargerð 4. fundar stjórnar Odda bs.Jafnframt lagt fram bréf forstöðumanns skólaþjónustunnar ásamt minnisblöðum, sem eru gögn 3. dagskrárliðar fundargerðar sem fjallar um stöðu náms- og starfsráðgjafa.
Til kynningar.
9.
Fundargerð almannavarnarnefndar, dags. 3. október 2022
Málsnúmer 2210023
Lögð fram fundargerð almannavarnarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, dags. 3. október 2022.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 2. fundar stjórnar Lundar
Málsnúmer 2210024
Lögð fram fundargerð 2. fundar stjórnar Lundar.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 3. fundar stjórnar Lundar
Málsnúmer 2210025
Lögð fram fundargerð 3. fundar stjórnar Lundar.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 105. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Málsnúmer 2210035
Lögð fram fundargerð 105. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 312. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2210011
Lögð fram fundargerð 312. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 313. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2210015
Lögð fram fundargerð 313. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 221. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2210014
Lögð fram fundargerð 221. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 43. fundar stjórnar Bergrisans bs
Málsnúmer 2210008
Lögð fram fundargerð 43. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 44. fundar stjórnar Bergrisans bs
Málsnúmer 2210009
Lögð fram fundargerð 44. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 45. fundar stjórnar Bergrisans bs
Málsnúmer 2210017
Lögð fram fundargerð 45. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 46. fundar stjórnar Bergrisans bs
Málsnúmer 2210018
Lögð fram fundargerð 46. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
20.
Fundargerð 51. fundara stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2210028
Lögð fram fundargerð 51. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
21.
Fundargerð 913. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2210026
Lögð fram fundargerð 913. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
22.
Fjárhagsáætlun Ásahrepps 2023-2026
Málsnúmer 2210031
Fyrstu drög að fjárhagsáætlun 2023-2026 lögð fram.
Lögð fram frumdrög að fjárhagsáætlun 2023-2026. Ljóst er að fjárhagsáætlanir byggðasamlaga eru ekki komnar fram og þess vegna forsendur ekki nægjanlega skýrar. Áætlunin mun taka breytingum í takt við afgreiðslur stjórna byggðasamlaga á fjárhagsáætlunum. Fjárhagsáætluninni vísað til næsta fundar hreppsnefndar sem haldinn verður 16. nóvember n.k.
23.
Viðauki 4 við fjárhagsáætlun Ásahrepps 2022
Málsnúmer 2210032
Lögð fram fundargerð 3. fundar stjórnar Odda, en bókun 5. dagskrárliðar felur í sér viðauka við fjárhagsáætlun Ásahrepps 2022. Einnig lögð fram fjárhagsáætlun Bergrisans bs 2022 ásamt útreikningi á áætlaðri fjárþörf umfram framlög árið 2022.
Fyrir liggur tillaga frá stjórn Odda bs. að samþykktur verði viðauki að upphæð kr. 4.237.668. Einnig liggur fyrir að aukin kostnaður vegna framlaga til Bergrisans bs á árinu 2022 verði kr. 3.375.080.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir Viðauka 4 við fjárhagsáætlun ársins 2022 að upphæð kr. 7.612.748. Þessum kostnaðarauka verður mætt með að ganga á handbært fé. Sveitarstjóra falið að útfæra viðauka í samstarfi við KPMG og skila inn til lögbundinna aðila.
24.
Deiliskipulög fyrir skála á Holtamannaafrétti
Málsnúmer 2210007
Lagt fram tölvuskeyti Eflu, dags. 21. september 2022, ásamt drögum að deiliskipulagi skála á Holtamannaafrétti. Um er að ræða skálana Versalir, Hrauneyjafossstöð og Þóristungur, Gásagustur, Hald og Hvanngiljahöll.
Hreppsnefnd Ásahrepps er sátt við þessar tillögur að deiliskipulagi skálasvæðanna. Ísleifi og Valtý falið að eiga fund með Eflu og yfirfara skipulögin og koma þeim í auglýsingu.
25.
Framtíð félagsheimilisins Ásgarðs
Málsnúmer 2110025
Lagt fram ástandsmat vegna endurbóta á Ásgarði, sem Verkís vann í nóvember 2015.
Búið er að óska eftir því við Verkís að uppfæra tölur í ástandsmatinu. Endurskoðað ástandsmat og kostnaðartölur verða lagðar fram á fundi hreppsnefndar þegar það liggur fyrir. Samþykkt samhljóða að koma ofnunum upp í húsinu svo það standi ekki óupphitað.
26.
Beiðni um samstarfssamning og fjárstyrk vegna íþróttastarfs Skotíþróttafélagsins Skyttna
Málsnúmer 2210002
Lagt fram bréf Skotíþróttafélagsins Skyttna, dags. 18. september 2022, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til félagsins til að uppbyggingar barna- og unglingastarfs í skotgreinum í Rangárvallasýslu.Jafnframt er lagt fram tölvuskeyti frá félaginu, dags. 19. september 2022 þar sem óskað er eftir viðræðum um samning milli Ásahrepps og félagsins vegna íþróttastarfs.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja félagið á næsta ári að upphæð kr. 250.000. Jafnframt lýsir hreppsnefnd yfir vilja til þess að ganga til samninga við félagið um æskulýðsstarf félagsins.
27.
Beiðni um fjárstyrk til Æskulýðsnefndar kirkna í Rangárvallasýslu
Málsnúmer 2210005
Lagt fram bréf Æskulýðsnefndar kirkna í Rangárvallasýslu, dags. 28. september 2022, þar sem óskað er eftir fjárstuðningi vegna æskulýðsmóts 2022. Óskað er eftir styrk að upphæð kr. 20.000.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita umbeðinn styrk.
28.
Umsókn um fjárveitingu til uppsetningar og viðhalds áningahólfa
Málsnúmer 2210012
Lagt fram erindi reiðveganefndar Hestamannafélagsins Geysis þar sem óskað er eftir fjárveitingu til uppsetningar og viðhalds áningarhólfa á félagssvæði Geysis.
Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að nýlega hafi hreppsnefndin skipað nefnd sem hefur með málefni reiðvega að gera. Rétt er að reiðveganefnd Geysis verði í sambandi við þá nefnd sem er að vinna að stefnumörkun í þessum málaflokki.
29.
Beiðni um fund til að kynna hugmyndir um Búrfellslund
Málsnúmer 2210013
Lagt fram tölvuskeyti Landsvirkjunar, dags. 26. september 2022, þar sem óskað er eftir að fulltrúar Landsvirkjunar fái að koma á fund hreppsnefndasr Ásahrepps til að kynna það sem er í þróun í sambandi við vindorku á Þjórársvæðinu.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í erindið. Sveitarstjóra falið að finna tíma sem hentar.
30.
Erindi Unicef á Íslandi um ungmennaráð
Málsnúmer 2210019
Lagt fram bréf Unicef á Íslandi, dags. 28. september 2022, þar sem kynnt eru ráð ungmenna til ráðamanna.
Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar fyrir erindið. Ásahreppur á fulltrúa í ungmennaráði Suðurlands.
31.
Beiðni um kaup á auglýsingu í skólablaðinu Vörðunni, Laugalandsskóla
Málsnúmer 2210020
Lagt fram tölvuskeyti Laugalandsskóla, dags. 29. september 2022, þar sem Ásahreppi er boðið að auglýsa í skólablaðinu Vörðunni.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að kaupa heilsíðu auglýsingu að upphæð kr. 20.000.
32.
Tilkynning um aðalfund Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2210027
Lagt fram tölvuskeyti frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 10. október 2022, þar sem kynnt er að aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga verður haldinn 11. nóvember n.k.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Ísleifur Jónasson verði fulltrúi Ásahrepps á fundinum.
33.
Jólahlaðborð fyrir starfsfólk Rangárþings ytra, Ásahrepps og Odda bs
Málsnúmer 2210029
Lagt fram tölvuskeyti Rangárþings ytra, dags. 10. október 2022, þar sem óskað er eftir afstöðu Ásahrepps gagnvart sameiginlegu jólahlaðborði fyrir starfsmenn sveitarfélaganna og Odda bs. Þessi viðburður kemur í stað árshátíðar sem ekki hefur verið haldin í ár.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að standa að þessum viðburði í samstarfi við Rangárþing ytra og koma með fjárframlag til verkefnisins að upphæð kr. 200.000.
34.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram málaflokkayfirlit Ásahrepps fyrir fyrstu 9 mánuði ársins 2022.
Til kynningar.
35.
Áskorun Félags atvinnurekenda o.fl. vegna fasteignagjalda
Málsnúmer 2210006
Lögð fram sameiginleg áskorun Félags atvinnurekenda, Húseigendafélagsins og Landssambands eldri borgara, dags. 21. september 2022, þar sem lúta að hækkun fasteignamats og fasteignagjalda.
Til kynningar.
36.
Ályktun aðalfundar Skógræktarfélags Íslands
Málsnúmer 2210010
Lögð fram ályktun aðalfundar Skógræktarfélags Íslands, dags, 22. september 2022 sem lýtur að framkvæmdaleyfum vegna skógræktar.
Til kynningar.
37.
Kynning á Daðahúsi, Flúðum, sem rekið er af Landssamtökunum Þroskahjálp
Málsnúmer 2210016
Lagt fram tölvuskeyti Landssamtakanna Þroskahjálp, dags. 27. september 2022, þar sem kynnt er möguleika á leigu Daðahúss sem staðsett er á Flúðum.
Til kynningar.
38.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 16. nóvember 2022. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps og hefst kl. 8:30.
Til kynningar.