Hreppsnefnd Ásahrepps
5. fundur
2. september 2026
kl.
08:00
-
09:45
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Gréta Vilborg Guðmundsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Emil Þórðarson
hreppsnefndarfulltrúi
Hugrún Hannesdóttir
varamaður í hreppsnefnd
Starfsmenn
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson
skrifstofustjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 331. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 331. fundar skipulagsnefndar UTU, sem haldinn var 26. ágúst 2026.Mál 1:Sigalda - Sigölduvirkjun; Tilfærsla á Sigöldulínum 2, 3, 4 og Vatnsfellslínu 1; Framkvæmdaleyfi - 2606016 Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Sigölduvirkjunar í Ásahreppi. Í framkvæmdinni felst færsla á Sigöldulínum 2, 3, 4 og Vatnsfellslínu 1 vegna tengingar flutningskerfisins við nýtt tengivirki Sigöldu. Sjá nánari lýsingu í skjalinu "Inngangur". Skipulagsnefnd UTU hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsnets með framkvæmdaleyfisumsókninni. Þá liggja fyrir drög að greinargerð sveitarfélagsins þar sem fram koma skilyrði og mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar. Nefndin telur framkvæmdina ekki til þess fallna að breyta landslagi eða ásýnd á svæðinu miðað við núverandi ástand og telur umhverfisáhrif hennar óveruleg.Nefndin telur nægilega gerð grein fyrir framkvæmdinni eins og hún liggur umfram aðra valkosti í fyrirliggjandi gögnum og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum. Framkvæmdirnar eru nauðsynlegur grundvöllur þess að stækkun Sigölduvirkjunar geti orðið að veruleika og skilað raforku inn á flutningskerfi Landsnets. Framkvæmdin varðar mikilvæga almannahagsmuni til tryggingar raforkuöryggis í landinu og framboð af orku til orkuskipta. Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að fyrirliggjandi greinargerð verði samþykkt sem umsögn hreppsnefndar um framkvæmdaleyfisumsóknina og mælist til að hreppsnefnd Ásahrepps gefi út framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda vegna færslu á Sigöldulínum 2, 3 og 4 og Vatnsfellslínu 1 vegna tengingar við nýtt tengivirki Sigöldu, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsnets og önnur fyrirliggjandi gögn. Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að ekki verði gerð athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál 1:
Sigalda - Sigölduvirkjun; Tilfærsla á Sigöldulínum 2, 3, 4 og Vatnsfellslínu 1; Framkvæmdaleyfi - 2606016
Lögð er fram umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdum við nýtt 220 kV og 132 kV tengivirki við Sigöldu og þar með endurnýjun eldra tengivirkis sem er útivirki. Tengivirkið verður yfirbyggt og staðsett við hlið þess gamla, um 50 m sunnar, rétt við stöðvarhús virkjunarinnar. Samhliða þarf að reisa ný möstur, hliðra línum og bæta línu við til þess að tengja nýja tengivirkið við Sigölduvirkjun. Alls verða tvö möstur fjarlægð og tvö ný reist ásamt því að tvö núverandi möstur verða styrkt. Tengivirki og rammar núverandi tengivirkis verða fjarlægð og í stað þeirra verða reistir tveir nýir rammar sitt hvoru megin við nýja tengivirkið. Framkvæmdirnar eru nauðsynlegur grundvöllur þess að stækkun Sigölduvirkjunar geti orðið að veruleika og skilað raforku inn á flutningskerfi Landsnets. Í umhverfismatsskýrslu vegna stækkunar Sigölduvirkjunar kemur fram að orkuverið tengist ofangreindu tengivirki um háspennulínur.
Sótt er um framkvæmdaleyfi vegna eftirfarandi:
Niðurrifi á mastri 1 á Sigöldulínu 2 og mastri 1 á Sigöldulínu 4. Lagður hefur verið jarðstrengur frá mastri 2 á Sigöldulínu 4 að endaramma. Möstrin verða felld í heilu lagi og bútuð niður á jörðinni. Þau verða svo flutt burt og málmurinn sendur í endurvinnslu.
Uppsetning á tveimur nýjum möstrum, 1A á Sigöldulínu 2 og 21A á Vatnsfellslínu 1. Nýju möstrin verða 16 m há fjórfótungsmöstur. Undirstöður verða steinsteyptar jarðvegsundirstöður með botnplötu, súlum og fjórum undirstöðuboltum. Fyllt er að með burðarhæfu efni.
Einnig þarf að leggja eina nýja línu frá tengivirkinu að virkjuninni og styrkja tvö núverandi möstur, þ.e. mastur 1 á Sigöldulínu 3 og mastur 2 á Sigöldulínu 4 sem breytt verður í strengendamastur.
Yfirlit yfir fyrirhugaðar breytingar á línum má sjá á mynd 1 í greinargerð framkvæmdaraðila.
Framkvæmdaleyfisumsóknin er eingöngu bundið við ofangreindar framkvæmdir. Fyrirhugað er að byggt verði nýtt tengivirki um 50 m sunnan við núverandi tengivirki og það tengivirki rifið. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir nýju tengivirki í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áætluð efnisþörf framkvæmdanna er um 1.000-1.500 m3. Er það efni einkum í mastraplön og undirstöður mastra. Ekki er þörf á lagningu nýrra slóða. Ekki verða opnaðar nýjar námur fyrir þessa framkvæmd heldur verður efnið fengið úr námum í nágrenninu sem hafa tilskilin leyfi.
Áætlað er að framkvæmdir vegna ofangreinds hefjist haustið 2026 og ljúki árið 2028.
Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Landsnets og öðrum fyrirliggjandi gögnum.
Eftirtalin gögn eru lögð fram hjá hreppsnefnd:
Umsókn um framkvæmdaleyfi
Greinargerð framkvæmdaraðila sem inniheldur framkvæmdalýsingu, forsendur, skimun á áhrifum framkvæmdarinnar á vatnshlot og teikningar.
Teikningasett sem sýna legu háspennulína og mastra fyrir og eftir framkvæmdir ásamt mastrablaði fyrir ný möstur sem sýna nánari afstöðu
Greinargerð deiliskipulags með umhverfismatsskýrslu, dags. 21.11.2022, breytt 01.09.2023
Deiliskipulagsuppdráttur, dags. 21.11.2022, breytt 16.08.2023
Greinargerð deiliskipulagsbreytingar með umhverfismatsskýrslu, dags. 27.05.2024
Deiliskipulagsuppdráttur, dags. 27.05.2024
Deiliskipulagsuppdráttur, yfirlitsmynd, dags. 27.05.2024
Deiliskráning Fornleifastofnunar Íslands við Hrauneyjar, Sigöldu og Vatnsfell, 2021
Erindi framkvæmdaraðila til Skipulagsstofnunar 26.03.2024, fyrirspurn um málsmeðferð
Viðbótarupplýsingar framkvæmdaraðila til Skipulagsstofnunar 02.04.2024
Svör Skipulagsstofnunar 12.04.2024 við fyrirspurn um málsmeðferð
Greinargerð sveitarfélagsins vegna útgáfu framkvæmdaleyfis, dags. 13.08.2026
Málið var tekið fyrir á fundi skipulagsnefndar Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs. þann 26. ágúst 2026. Á fundinum var mælst til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að fyrirliggjandi greinargerð yrði samþykkt sem umsögn hreppsnefndar um framkvæmdaleyfisumsóknina og mælst til þess að hreppsnefnd Ásahrepps gæfi út framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda vegna færslu á Sigöldulínum 2, 3 og 4 og Vatnsfellslínu 1 vegna tengingar við nýtt tengivirki Sigöldu, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsnets og önnur fyrirliggjandi gögn. Jafnframt að ekki yrði gerð athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bókun:
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur fyrirliggjandi gögn og hefur látið taka saman greinargerð vegna útgáfu framkvæmdaleyfisins, dags. 13. ágúst 2026, þar sem tekin eru saman þau sjónarmið sem liggja til grundvallar afgreiðslu málsins. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagða greinargerð sveitarfélagsins sem umsögn og rökstuðning vegna framkvæmdaleyfisumsóknarinnar, auk þess sem hreppsnefndin vísar til umsagnar skipulagsnefndar Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs. sem bókuð var á fundi hennar þann 26. ágúst 2026.
Hreppsnefnd hefur, eins og nánar er gerð grein fyrir og rakið í greinargerð sveitarfélagsins, kynnt sér umsókn framkvæmdaraðila auk greinargerðar og önnur fyrirliggjandi gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og öðrum fyrirliggjandi skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsnets með framkvæmdaleyfisumsókninni og fyrirspurn framkvæmdaraðila til Skipulagsstofnunar. Þá liggja fyrir drög að greinargerð sveitarfélagsins þar sem fram koma skilyrði og mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar.
Hreppsnefnd telur framkvæmdina ekki til þess fallna að breyta landslagi eða ásýnd á svæðinu miðað við núverandi ástand og telur umhverfisáhrif hennar óveruleg. Nefndin telur nægilega gerð grein fyrir framkvæmdinni eins og hún liggur umfram aðra valkosti í fyrirliggjandi gögnum og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum. Framkvæmdirnar eru nauðsynlegur grundvöllur þess að stækkun Sigölduvirkjunar geti orðið að veruleika og skilað raforku inn á flutningskerfi Landsnets. Framkvæmdin varðar mikilvæga almannahagsmuni til tryggingar raforkuöryggis í landinu og framboð af orku til orkuskipta.
Með vísan til rökstuðnings í greinargerð/umsögn hreppsnefndar samþykkir hreppsnefndin að gefið verði út framkvæmdaleyfi í samræmi við framlagða umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdum vegna færslu á Sigöldulínum 2, 3 og 4 og Vatnsfellslínu 1 vegna tengingar við nýtt tengivirki Sigöldu og önnur fyrirliggjandi gögn, með þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram koma í greinargerð sveitarfélagsins og nánar er gerð grein fyrir í öðrum framlögðum gögnum, s.s. varðandi vöktun og frágang vegna framkvæmdarinnar. Skipulagsfulltrúi fer með eftirlit með framkvæmdinni og því að öllum skilyrðum sem framkvæmdinni hafa verið sett sé framfylgt og hún sé í samræmi við leyfi og fylgigögn leyfis. Skipulagsfulltrúi skal skila af sér skýrslu til sveitarstjórnar um framkvæmd eftirlitsins fyrir lok hvers áfanga framkvæmdarinnar. Verði skilyrðum vegna framkvæmdarinnar ekki framfylgt, ásigkomulag, frágangi, notkun eða umhverfi framkvæmdar eða eigin eftirliti framkvæmdaaðila ábótavant eða stafi af framkvæmdinni hætta skal skipulagsfulltrúi tilkynna hreppsnefnd Ásahrepps þar um. Þá skal skipulagsfulltrúi gera grein fyrir frávikum og tilkynna framkvæmdaraðila skriflega um frávik og kröfur til úrbóta.
Hreppsnefnd Ásahrepps felur skipulagsfulltrúa, að uppfylltum framlögðum skilyrðum, að gefa út framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 í samræmi við framangreint, og önnur ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar nr. 772/2012.
Samþykkt samhljóða.

2.
Fundargerð 330. fundar skipulagsnefndar UTU
Vegna misvísunar í bókun síðasta fundar hreppsnefndar Ásahrepps 19. ágúst sl. er mál #2607024 aftur tekið fyrir.
Mál 1. Ásmundarstaðir 1 2/5; Skilgreindar nýjar lóðir; Deiliskipulag - 2607024
Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi sem tekur til Ásmundarstaða 1 L187658 og Ásmundarstaða 3 L165267. Í deiliskipulaginu felst að tvær nýjar íbúðarlóðir eru stofnaðar. Heimilt að byggja allt að 3 hús á lóð, s.s. íbúðarhús með bílageymslu, gestahús/geymslu eða gróðurhús.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða deiliskipulagið til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um uppfærð gögn. Verði deiliskipulagið grenndarkynnt aðliggjandi landeigendum.

3.
Fundargerð 101. fundar stjórnar Félags- og Skólaþjónustu (FSRV)
Fundargerð 101. fundar stjórnar Félags- og Skólaþjónustu (FSRV).Í 1. lið fundargerðar er viðauki við fjárhagsáætlun og í fylgiskjali kemur fram að hlutur Ásahrepps í viðaukanum er 307.719 kr.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fundargerðina fyrir sitt leyti og að þessum auknu útgjöldum verði mætt með viðauka við fjárhagsáætlun 2026. Til hækkunar á gjöldum á bókhaldlykil 3381 (Framlag til samstarfsverkefna) / deild 0401 (Félags- og skólaþjónusta).
Útgjaldaauka verður mætt með lækkun á handbæru fé.
Skrifstofustjóra er falið að ganga frá viðaukanum í samvinnu við KPMG og upplýsa viðeigandi aðila.

4.
Fundargerð 2. fundar Húsakynna bs.
Lögð fram fundargerð 2. fundar Húsakynna bs. frá 20. ágúst.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 26-259, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Lögð fram samantekt af afgreiðslum byggingarfulltrúa númer 26-259
Til kynningar.
6.
Fundargerð 26-260, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Lögð fram samantekt af afgreiðslum byggingarfulltrúa númer 26-260.
Til kynningar.
7.
Erindi frá faghópi 3 í 6. áfanga Rammaáætlunar vegna Hrútmúlavirkjunar
Lagt fram erindi frá faghópi 3 í 6. áfanga Rammaáætlunar vegna Hrútmúlavirkjunar, þar sem óskað er eftir almennri umsögn um málið.
Hreppsnefnd Ásahrepps telur ekki tímabært að veita umsögn fyrr en lög um skattlagningu orkumannvirkja liggur fyrir.
8.
Bréf frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands
Áminning um skipulag byggðar á þekktum hættusvæðum, sbr 16. gr. laga nr. 55/1992.
Til kynningar.
9.
Staða endurbóta Laugalandi
Húsakynni bs. hafa tekið saman minnisblað vegna framkvæmda á Laugalandi.
Hreppsnefnd Ásahrepps tók minnisblaðið til umræðu.
10.
Leikfimi 60 ára og eldri - fyrirkomulag
Kostnaðarþátttaka Ásahrepps vegna líkamsræktar 60 ára og eldri.
Hreppsnefnd Ásahrepps lýsir yfir vilja sínum til að taka þátt í þjálfunarkostnaði fyrir yfirstandandi ár í samræmi við iðkendafjölda úr Ásahreppi. Skrifstofustjóra falið að afla upplýsinga og fylgja málinu eftir.
11.
Kosning í Öldungaráð.
Kjósa þarf einn aðalmann í Öldungaráð og einn til vara.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Þórunn Guðbjörnsdóttir verði aðalmaður og Sigrún Þóroddsdóttir til vara í Öldungaráð Rangárvallasýslu.
12.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 16. september 2026 á skrifstofu Ásahrepps. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.