Hreppsnefnd Ásahrepps
50. fundur
18. mars 2026
kl.
08:30
-
11:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson
skrifstofustjóri
Dagskrá
1.
Fulltrúar Íslenskrar Gagnavinnslu mæta á fund hreppsnefndar
Fulltrúar Íslenskrar Gagnavinnslu, þær Anna Jonna Ármannsdóttir og Krista Hannesdóttir mæta á fund hreppsnefndar, undir þessum dagskrárlið, þar sem þær óska eftir afstöðu hreppsnefndar til sólarselluverkefnis að Lindarbæ.
Hreppsnefnd Ásahrepps átti gott samtal við fulltrúa Íslenskra Gagnavinnslu. Þær gerðu grein fyrir afstöðu sinni til landnýtingar.
2.
Fundargerð 320. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 320. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 26-244.
Mál 1.
Lindarbær 1A L165304; Sólarsellur 8 kW; Framkvæmdarleyfi - 2602060.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Lindarbæjar 1A, L165304, í Ásahrepp. Í framkvæmdinni felst uppsetning sólarsella til eigin afnota, neðarlega við svokallaða Horbrún. Orkuvinnsla er 8 kW og flatarmál 300 fermetrar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu úr grenndarkynningu.
Mál 2.
Ferjufit, breyting efnismagn; Nr. 1556-2025; Umsagnarbeiðni - 2511056
Lögð er fram til umsagnar breyting á aðalskipulagi Rangárþings Ytra 2016-2028. Breytingin nær til efnistökusvæðis E122 við Ferjufit (L238022). Svæðið stækkar og heimiluð efnistaka eykst úr 10.000 m³ í allt að 120.000 m³.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við breytingar á aðalskipulagi Rangárþings Ytra 2016-2028. Breytingin nær til efnistökusvæðis E122 við Ferjufit (L238022). Svæðið stækkar og heimiluð efnistaka eykst úr 10.000 m³ í allt að 120.000 m³.
Mál nr. 22. Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 26-244 - 2602001F
Lindarbær 1A L165304; Sólarsellur 8 kW; Framkvæmdarleyfi - 2602060.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Lindarbæjar 1A, L165304, í Ásahrepp. Í framkvæmdinni felst uppsetning sólarsella til eigin afnota, neðarlega við svokallaða Horbrún. Orkuvinnsla er 8 kW og flatarmál 300 fermetrar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu úr grenndarkynningu.
Mál 2.
Ferjufit, breyting efnismagn; Nr. 1556-2025; Umsagnarbeiðni - 2511056
Lögð er fram til umsagnar breyting á aðalskipulagi Rangárþings Ytra 2016-2028. Breytingin nær til efnistökusvæðis E122 við Ferjufit (L238022). Svæðið stækkar og heimiluð efnistaka eykst úr 10.000 m³ í allt að 120.000 m³.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við breytingar á aðalskipulagi Rangárþings Ytra 2016-2028. Breytingin nær til efnistökusvæðis E122 við Ferjufit (L238022). Svæðið stækkar og heimiluð efnistaka eykst úr 10.000 m³ í allt að 120.000 m³.
Mál nr. 22. Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 26-244 - 2602001F
3.
Fundargerð 321. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 321. fundar skipulagsefndar UTU, ásamt fundargerð 245. afgreiðslufundar byggarfulltrúa.
Til kynningar.
4.
Fundargerð 47. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 47. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar
5.
Fundargerð 97. Stjórnarfundar í félags- og skólaþjónustu.
Lögð fram fundargerð 97. stjórnarfundar í Félags- og skólaþjónustu.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 252. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 252. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands, ásamt fylgigögnum.
Til kynningar
7.
Fundargerð 633. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 633. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 88. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Fundargerð 88. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga lögð fram.
Til kynningar
9.
Fundargerð 89. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Fundargerð 89. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga lögð fram.
Til kynningar
10.
Fundargerð 993. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 993. fundar stjórnar Sambands Íslenskra Sveitarfélaga.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 994. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
12.
Ársreikningur Ásaljóss fyrir rekstrarárið 2025
Lagður fram ársreikningur Ásaljóss 2025, til samþykktar hjá hreppsnefnd Ásahrepps.
Sveitarstjóri fór yfir ársreikning og skýrði ýmsa liði. Einnig lagt fram staðfestingarbréf stjórnenda sem sveitarstjóri undirritar.
Helstu lykiltölur ársreiknings eru (í þús. kr.):
Rekstrartekjur: 8.342
Rekstrargjöld: 2.409
Afskriftir: -3.811
Fjármagnstekjur: 12
Rekstrarniðurstaða jákvæð: 2.134
Eignir samtals: 76.491
Eigið fé: 75.683
Skammtímaskuldir: 808
Skuldir og eigið fé: 76.491
Handbært fé í árslok: 13.456
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi ársreikning Ásaljóss fyrir rekstrarárið 2025 og áritar hann ásamt sveitarstjóra.
Helstu lykiltölur ársreiknings eru (í þús. kr.):
Rekstrartekjur: 8.342
Rekstrargjöld: 2.409
Afskriftir: -3.811
Fjármagnstekjur: 12
Rekstrarniðurstaða jákvæð: 2.134
Eignir samtals: 76.491
Eigið fé: 75.683
Skammtímaskuldir: 808
Skuldir og eigið fé: 76.491
Handbært fé í árslok: 13.456
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi ársreikning Ásaljóss fyrir rekstrarárið 2025 og áritar hann ásamt sveitarstjóra.
13.
Skilgreining landeignarinnar Safamýrar
Lagt fram bréf Landnota, dags. 6. mars 2026, þar sem rakin er lausn á skráningu landspildna í Safamýri. Lausnin felst í að Safamýri innan Ásahrepps verði skilgreind sem upprunaland sem allar aðrar spildur yrði síðan skipt út úr. Til að það sé hægt þarf að afmarka landsvæðið í heild sinni og vinna merkjalýsingu fyrir það. Óskað er eftir að Ásahreppur taki að sér að vera vekkaupi vegna merkjalýsingarvinnuna þar sem Safamýri liggur innan Ásahrepps. Kostnaður við verkið er áætlaður 800 þús.kr til 1,2 mkr fyrir utan VSK.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða tillögu Landnota að lausn málsins.
14.
Útivistarstígar í Ásahreppi
Valtýr gerði grein fyrir samtali sínu við Óskar Sigurðsson lögmann varðandi fyrirkomulag við samningsgerð við landeigendur um vegstæði fyrir útivistarstíga.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að setja upp í samráði við lögmann drög að samkomulagi við landeigendur, um legu vegstæðis fyrir útivistarstíga og hvernig þeir verða færðir inn í skipulag.
15.
Styrkveiting til lagningar útivistarstíga í Ásahreppi
Lagt fram tölvuskeyti Sigurðar Rúnars Sigurðssonar. dags. 12. mars 2026, þar sem hann óskar eftir frestun verkefnisins um lagningu útivistarstígs með Bugavegi. Hreppsnefnd hafði gefið vilyrði fyrir fjárframlagi til verksins á síðast ári en ekki tókst að halda tímaáætlun. Sigurður Rúnar sendir þessa beiðni fyrir hönd umsækjenda. Skv. verklagsreglum er hreppsnefnd heimilt að fresta slíkum verkefnum og flytja til fjárframlag milli ára ef lögmætar ástæður liggja fyrir.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að færa verkefnið yfir á árið 2026.
16.
Grunnsamkomulag um afnotarétt í þjóðlendu vegna skálasvæðisins í Nýjadal
Lagt fram grunnsamkomulag um afnotarétt í þjóðlendu er varðar lóðarréttindi fyrir lóðirnar Nýidalur S1 og Nýidalur S2 á Holtamannaafrétti.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða grunnsamkomulagið fyrir sitt leyti og felur sveitarstjóra að undirrita samkomulagið fyrir hönd Ásahrepps og láta þinglýsa því.
Jafnframt felur sveitarstjórn sveitarstjóra og skrifstofustjóra að undirbúa auglýsingu þessara lóða á almennum markaðið eins og fram kemur í 7. greins samkomulagsins í samstarfi við forsætisráðuneytið.
Jafnframt felur sveitarstjórn sveitarstjóra og skrifstofustjóra að undirbúa auglýsingu þessara lóða á almennum markaðið eins og fram kemur í 7. greins samkomulagsins í samstarfi við forsætisráðuneytið.
17.
Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja
Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati, sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda. Einnig lögð fram umsögn Ásahrepps sem send hafði verið út til hreppsnefndar til samþykktar 5. mars s.l.
Hreppsnefnd staðfestir samþykki sitt fyrir innsendri umsögn Ásahrepps um frumvarpsdrögin.
18.
Árbakkinn - sólstöðuhátíð, beiðni um stuðning.
Lögð fyrir beiðni frá Bjarka Eiríkssyni um stuðning við fyrirhugaða hátíð, Árbakkann-sólstöðuhátíð 2026.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja hátíðina um 100 þúsund krónur.
19.
Rangárþing ytra, uppfærsla á borð- og þjónustukortum, boð um þátttöku
Rangárþing ytra vinnur í uppfærslu á borð- og þjónustukortum sínum og vill athuga hvort Ásahreppur óski eftir að taka þátt í verkefninu og skrá sína þjónustu og fyrirtæki þar inn.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í erindið og óskar eftir frekari upplýsingum um kostnað og tímaramma.
20.
Síðari umræða um breytingar á samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands
Tillaga aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands, dags. 16. janúar 2026, um breytingu á samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands bs er tekin til síðari og lokaumræðu í hreppsnefnd Ásahrepps. Fyrri umræða átti sér stað á 49. fundi hreppsnefndar Ásahrepps þann 18. febrúar 2026, 6. dagskrárliður.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi breytingu á samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands bs fyrir sitt leyti.
21.
Landsvirkjun. Vinnustofa vegna flutninga á vindmyllum fyrir Vaðölduver.
Landsvirkjun sendir boð um vinnufund 25. mars næstkomandi, þar sem farið yrði yfir stöðu framkvæmda, undirbúning og framkvæmd flutninga á búnaði, auk samskiptaáætlunar vegna Vaðölduvers.
Hreppsnefnd Ásahrepps stefnir að því að fjórir fulltrúar mæti á fundinn.
22.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram málaflokkayfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps fyrir tímabilið janúar - febrúar 2026.
Til kynningar.
23.
Skýrsla Æskulýðsnefndar Geysis fyrir árið 2025,
Lögð fram skýrsla Æskulýðsnefndar Geysis fyrir árið 2025.
Til kynningar.
24.
Hreysiskvísl - neyðarskýli
Póstur frá Dagrenningu á Hvolsvelli þar sem vakin er athygli á björgun tveggja einstaklinga við Hreysiskvísl 3. mars s.l. þar sem björgunarskýlið Hreysið gengdi lykilhlutverki. Farið yfir forsögu neyðarskýlisins og nýlega endurbyggingu þess og þakkað fyrir aðstoð við það verk.
Til kynningar.
25.
Ársfundur Heilbrigðisstofunar Suðurlands 2026
Heilbrigðisstofnun Suðurlands boðar til ársfundar 2026.
Til kynningar.
26.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 15. apríl 2026 á skrifstofu sveitarfélagsins. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.