Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

50. fundur
26. janúar 2022 kl. 08:30 - 10:30
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Oddviti lagði fram tillögu að dagskrárbreytingu að inn komi nýr dagskrárliður nr. 32. Tillagan samþykkt samhljóða.
Dagskrá
1.
Fundargerð 230. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2112029
Lögð fram fundargerð 230. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-155.
Mál nr. 26; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 21-155 - 2112001F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 21-155 til kynningar.
2.
Fundargerð 231. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2201003
Lögð fram fundargerð 231. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-156.
Mál nr. 1; Framnes; Nes 1 L230551 og Nes 2 L230552; Deiliskipulag - 2109063.
Lagt er fram deiliskipulag fyrir Nes 1 L230551 og Nes 2 L230552 í Ásahreppi eftir kynningu. Deiliskipulagið tekur til lóða fyrir íbúðarhús, gestahús og skemmu. Engar athugasemdir bárust við kynningu deiliskipulagsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 2; Þórisvatn; Þjórisósstífla; Endurbætur á stíflu; Framkvæmdaleyfi - 2201019.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi frá Landsvirkjun. Í framkvæmdinni felast endurbætur á stíflunni vegna skemmda á ölduvörnum. Fyrirspurn um matsskyldu verkefnisins var lögð fram til Skipulagsstofnunar 2021 og byggir umsóknin á þeirri fyrirspurn. Niðurstaða Skipulagsstofnunar um matsskyldu ásamt umsögnum og samþykktum vegna framkvæmdarinnar eru lögð fram við afgreiðslu málsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að ekki verði gerð athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis vegna endurbóta á Þórisósstíflu.

Mál nr. 28; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-156-2112003F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-156.
3.
Fundargerð 71. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs
Málsnúmer 2112012
Lögð fram fundargerð 71. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar
4.
Fundargerð 56. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Málsnúmer 2201007
Lögð fram fundargerð 56. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 57. funar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Málsnúmer 2201008
Lögð fram fundargerð 57. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 95. fundar félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Málsnúmer 2201011
Fundargerð 95. fundar félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu ásamt gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu árið 2022.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 219. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs
Málsnúmer 2201006
Lögð fram fundargerð 219. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 307. fundar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2201005
Lögð fram fundargerð 307. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar
9.
Fundargerð 99. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Málsnúmer 2201010
Lögð fram fundargerð 99. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 100. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Málsnúmer 2201009
Lögð fram fundargerð 100. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 35. fundar stjórnar Bergrisans bs
Málsnúmer 2201012
Lögð fram fundargerð 35. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 577. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2201013
Lögð fram fundargerð 577. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 904. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2112025
Lögð fram fundargerð 904. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 905. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2201014
Lögð fram fundargerð 905. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
15.
Verksamningur um snjómokstur í Ásahreppi og Rangárþingi ytra
Málsnúmer 2112007
Elín Grétarsdóttir víkur af fundi undir þessum dagskrárlið.Lagður fram verksamningur milli Nautáss annars vegar og Rangárþings ytra og Ásahrepps hins vegar um snjómokstur í sveitarfélögunum. Á 49. fundi hreppsnefndar Ásahrepps var óskað eftir ítarlegri gögnum varðandi úrvinnslu tilboða í verkið og var staðfestingu frestað af hendi hreppsnefndar þar til umbeðin gögn lægju fyrir. Umbeðin gögn liggja nú fyrir.
Tillaga lögð fram um að Hreppsnefnd Ásahrepps staðfesti fyrir sitt leyti umræddan verksamning. Tillagan samþykkt með þremur (3) atkvæðum (ÁBÓ, BJJ, GJG) og með einu (1) á móti (ES).

Bókun fulltrúa E- lista: Vegna snjómoksturs samninga sem liggja hér fyrir í drögum á hreppsnefndarfundi 26. janúar 2022.
Standast skýringar um val á verktaka ekki skoðun þegar borin eru saman útboðsgögn og drög að verksamningi.
Skýrt er í útboði að búið eigi að vera ljúka mokstri fyrir kl 7:00 að morgni og þar með fellur öll sú vinna undir yfirvinnuverk.
Staðfestingu þessa gjörnings var frestað á síðasta fundi heppsnefndar og óskað eftir frekari gögnum. Eftir skoðun á þeim og þeim drögum sem liggja hér fyrir til afgreiðslu mun E- listinn greiða atkvæði gegn þessum gjörningi og bendir á að með staðfestingu hans kunni Ásahreppur að baka sér skaðbótaskyldu gagnvart lægstbjóðanda.
16.
Krafa um að fellt verði úr gildi deiliskipulag jarðarinnar Áshamra.
Málsnúmer 2201002
Lögð er fram krafa frá Bjarna Hólmari Einarssyni fh. Ingþórs Jónssonar er varðar niðurfellingu deiliskipulags sem tekur til jarðarinnar Áshamrar (áður Húsar 1) sem tók gildi í júní 2019 . Krafan er að mestu byggð á því að sveitarfélaginu hafi borið skylda til að kynna málið fyrir nágrönnum á grundvelli 43. gr. skipulagslaga sem tekur til breytinga á deiliskipulagi og 44. gr. skipulagslaga er varðar grenndarkynningar. Er það talið sérstaklega ámælisvert þar sem jörðin hafi ekki heimreið eða veg og hafi umbjóðandi hans fram að þessu leyft nágranna sínum að keyra í gegnum landið sitt, en ávallt hafi staðið til að gera nýjan veg sem ekki færi um tún Ingþórs.
Hreppsnefnd Ásahrepps telur að rétt hafi verið staðið að auglýsingu og gildistöku deiliskipulags sem tekur til Áshamra, L 165337. Gildandi deiliskipulag svæðisins fékk málsmeðferð á þeim grunni að um nýtt deiliskipulag væri að ræða. Sveitarstjórn telur enga annmarka á þeirri málsmeðferð enda taki fyrrgreind 43. gr. Skipulagslaga, sem kröfuhafi vísar til, til breytingar á deiliskipulagi en ekki gildistöku nýs deiliskipulags. Þar sem ekkert deiliskipulag var í gildi fyrir viðkomandi lóð getur framlagt skipulag frá 2019 ekki talist breyting á deiliskipulagi. Í deiliskipulagsgögnum kemur skýrt fram að um nýtt deiliskipulag sé að ræða, ekki breytingu á eldra skipulagi enda var eins og fyrr segir ekkert deiliskipulag í gildi fyrir umrætt svæði fyrir gildistöku núverandi deiliskipulags. Hreppsnefnd hafnar því að ekki hafi verið staðið rétt að málsmeðferð málsins og telur að tillagan hafi sannarlega átt að fá afgreiðslu í samræmi við 41. gr. skipulagslaga sem tekur auglýsingar og samþykktar á nýju deiliskipulagi.
Varðandi sameiginlegan veg um löndin bendir hreppsnefnd á að samkvæmt landskiptagerð frá 2007 sem ofangreindur kröfuhafi skrifar undir er tekið fram í 4. gr. að eignarhlutar L165334 og L165337 eigi rétt til aðkeyrslu eftir núverandi heimkeyrslu. Tiltekið er að innan tveggja ára skuli gerður nýr verður í hans stað norðan gamla bæjarins. Finna skuli veginum stæði, sem ekki verður norðar en í námunda við nyðri enda túns, sem er norðan við bæinn. Vegurinn muni nýtast öllum þremur spildunum og skal kostnaður vegna framkvæmda skiptast á milli aðila samkvæmt eignarhlutföllum.
Af þessu má ætla að vegurinn á svæðinu verði, óháð staðsetningu hans, áfram í gegnum öll löndin og sameiginlegur á milli aðila. Hreppsnefnd bendir jafnframt á að löndin eru öll skilgreind sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi. Punktur er merktur inn á löndin til að tákna núverandi frístundahús sem eru innan jarðanna, ekki er hins vegar afmarkað sérstakt svæði fyrir frístundabyggð heldur eru skilgreind þau þrjú frístundahús sem eru innan jarða Húsa 1. Að öðru leyti gilda skilmálar aðalskipulags er varðar landbúnaðarsvæði fyrir jarðirnar þrjár og taldi skipulagsnefnd og hreppsnefnd að umrætt deiliskipulag vegna Húsa 1, nú Áshamra L165337 væri í fullu samræmi við aðalskipulag. Innan landbúnaðarsvæða má stunda ýmiskonar atvinnustarfsemi sem tengist landbúnaði og upp að vissu marki atvinnustarfsemi sem tengist ekki landbúnaði með beinum hætti auk þess sem heimilt er að hafa fasta búsetu á landbúnaðarsvæðum. Samkvæmt upplýsingum sveitarfélagsins sóttu allir núverandi og þáverandi eigendur Húsa um að ofangreindur vegur innan jarðanna yrði skráður sem héraðsvegur árið 2019, og skv. uppdrætti / landskiptagjörð frá árinu 2006. Hreppsnefnd gerir ráð fyrir því að kröfuhafi hafi því gert sér grein fyrir því á þeim tíma að eigandi Áshamra ætlaði sé að hafa fasta búsetu á svæðinu.
17.
Endurskoðun Aðalskipulags Ásahrepps
Málsnúmer 1910021
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 16. desember 2021, þar sem stofnunin svarar erindi Ásahrepps frá 21. október 2021 er varðar heimild til auglýsingar tillögu að Aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032.Skipualagsstofnun veitir umsögn sína með bréfi þessu og bendir á nokkur atriði sem þurfi að bregðast við. Vinnuhópur hreppsnefndar um endurskoðun aðalskipulagsins fundaði þann 25. janúar og er minnisblað frá skipulagsráðgjöfum einnig lagt fram.
Hreppsnefnd Ásahrepps fór yfir minnisblað skipulagsráðgjafa ásamt forsendum og greinargerð. Í umræðu hreppsnefndar kom fram að hún samþykkir tillögur skipulagsráðgjafa að fyrirliggjandi svörum við athugasemdum Skipulagsstofnunar. Vegna hugmynda um Hágönguvirkjun þá er hreppsnefnd jákvæð gagnvart hugmyndum um þá virkjun líkt og verið hefur. Varðandi röksemdir hugmynda uppbyggingar Hrauneyja jaðarmiðstöðvar (Fremstutungu), þá var lagt fram tölvuskeyti Friðriks Pálssonar, þar sem hann færði rök fyrir áformunum um uppbyggingu ferðaþjónustu í Fremstutungu. Hreppsnefnd fellst á röksemdir Friðriks og vísar þeim til skipulagsráðgjafa til úrvinnslu. Fram kom hugmynd um að fella út texta er varðar Ásabrekkuskóg sem lýtur að því að benda á svæðið sem ákjósanlegan áningarstað fyrir íbúa og gesti.
Sveitarstjóra falið að koma bókun hreppsnefndar til skipulagsráðgjafa.
18.
Kynning á vinnslutillögu að nýju aðalskipulagi Skaftárhrepps 2019-2031
Málsnúmer 2112028
Lagt fram tölvuskeyti skipulags- og byggingarfulltrúa Skaftárhrepps, dags. 17. desember 2021, þar sem kynnt er vinnslutillaga að nýju aðalskipulagi Skaftárhrepps 2019-2031. Fram lögð vinnslugögn eru greinargerð og umhverfismatsskýrsla, sveitarfélagsuppdráttur og þéttbýlisuppdráttur.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við framlagða vinnslutillögu.
19.
Sameiginleg svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2021-2032
Málsnúmer 2110011
Lögð fram sameiginleg svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2022-2033 sem unnin hefur verið á grundvelli samráðsvettvangs SORPU bs, Sorpurðunar Vesturlands hf., Sorpstöðvar Suðurlands bs og Kölku sorpeyðingarstöðvar sf.Svæðisáætlunin er nú send til aðildarsveitarfélaganna til staðfestingar sveitarstjórna.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða framlagða sameiginlega svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2022-2033 fyrir sitt leyti.
20.
Umsókn um tengingu við ljósleirarakerfi Ásaljóss
Málsnúmer 2201017
Brynja Jóna Jónasdóttir víkur af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.Lagt fram tölvuskeyti frá Brynju Jónu Jónasdóttur, dags. 17. janúar 2022, þar sem hún óskar eftir tengingu við ljósleiðarakerfi Ásaljóss fyrir íbúðarhús að Laufbrekku fastanr. 234-1626, L210273.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir að heimila þessa tengingu á grundvelli fyrri samþykktar hreppsnefndar Ásahrepps frá 11. nóvember 2014.
21.
Umsókn um styrk til Sigurhæða 2022
Málsnúmer 2112027
Lagt fram bréf Sigurhæða, dags. 16. desember 2021, þar sem sótt er um fjárstyrk til reksturs Sigurhæða árið 2022. Óskað er eftir fjárstyrk að upphæð kr. 56.818.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhlóða að veita umbeðinn styrk enda rúmast sú fjárhæð innan fjárhagsáætlunar ársins 2022.
22.
Umsókn um styrk vegna rotróar, m.m.
Málsnúmer 2201001
Lagt fram tölvuskeyti Ægis Guðmundssonar, dags. 10. janúar 2022, þar sem óskað er eftir tengingu við ljósleiðarakerfi Ásaljóss, uppsetningu ljósastaura og styrk vegna lagningu rotþróar. Meðfylgjandi eru reikningar fyrir kostnaði við kaup á rotþró. Einnig liggur fyrir að Ægir hefur flutt lögheimili sitt í ibúðarhús að Hellatúni Lóð H, 165286.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk vegna kaupa á rotþró, kr. 300.000. Einnig samþykkir hreppsnefnd samhljóða uppsetningu tveggja ljósastaura og tengingar við ljósleiðarakerfi Ásaljóss, sbr. samþykkt hreppsnefndar Ásarhepps frá 11. nóvember 2014. Hreppsnefnd samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að koma þessum verkefnum í farveg.
23.
Styrktarbeiðni Blindrafélagsins vegna útgáfu blaðsins Víðsjár
Málsnúmer 2201015
Lagt fram tölvuskeyti Blindrafélagsins, dags. 18. janúar 2022, þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna útgáfu blaðs félagins "Víðsjár".
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 5.000.
24.
Styrkbeiðni Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, janúar 2022
Málsnúmer 2201016
Lagt fram tölvuskeyti Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, dags. 20. janúar 2022, þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna útgáfu blaðsins "Börn með krabbamein".
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð 5.000.
25.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps í lok árs 2021.
Til kynningar
26.
Umsókn um nýjan héraðsveg að bænum Litlalandi
Málsnúmer 2112022
Lagt fram afrit af bréfi Vegagerðarinnar, dags. 7. desember 2021, þar sem staðfest er að heimreið að Litlalandi er skilgreind sem héraðsvegur.
Til kynningar.
27.
Umsögn SASS um frumvarp til laga um fjárlög ríkisins 2022
Málsnúmer 2112023
Lögð fram umsögn SASS um frumvarp til laga um fjárlög ríkisins 2022.
Til kynningar.
28.
17. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19
Málsnúmer 2112024
Lögð fram 17. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19.
Til kynningar.
29.
Lokaskýrsla verkefnastjóra um samþætta þjónustu á hindrana
Málsnúmer 2112026
Lögð fram lokaskýrsla verkefnastjóra Landshlutateymis Suðurlands um samþætta þjónustu án hindrana.
Til kynningar.
30.
Bréf Ásmundar Einars Daðasonar; þakkir fyrir gott samstarf
Málsnúmer 2201004
Lagt fram bréf Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra, dags 31. desember 2021, þar sem hann þakkar sveitarfélögum gott samstarf.
Til kynningar.
31.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 16. febrúar 2022 og hefst klukkan 08:30.
32.
Leikskólavist í öðru sveitarféalgi
Málsnúmer 2201018
Trúnaðarmál.