Hreppsnefnd Ásahrepps
51. fundur
15. apríl 2026
kl.
08:30
-
11:05
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Nanna Jónsdóttir sat fundinn í gegnum Teams fjarfundarkerfi.
Dagskrá
1.
Fundargerð 322. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 318. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál nr 1:
Ásmúlasel L224543; Úr landbúnaðarlandi í frístundabyggð; Aðalskipulagsbreyting - 2603067
Lögð er fram skipulagslýsing sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032. Breytingin felst í afmörkun nýs 7,2 ha. landnotkunarreits fyrir frístundabyggð í landi Ásmúlasels L224543.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða skipulagslýsinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr 2:
Áshóll L165262; Riddaragarður 2; Stofnun lóðar - 2603040
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 26.02.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun nýrrar lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðina Riddaragarður 2 (111,0 ha. úr jörðinni Áshóll L165262.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu, með fyrirvara um umsögn Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðrar vegtengingar og undirritun aðliggjandi jarða. Jafnframt er óskað eftir því að merkjalýsingin sé uppfærð þannig að fyrirhuguð vegtenging við Ásmundarstaðaveg sjáist.
Mál nr 3:
Ásmúli lóð 3 L192728; Reiðholt L193771; Staðfest lóðamörk og stofnun 7 lóða - 2603016
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 05.03.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun sjö lóða og leiðréttingu á einni. Óskað er eftir að leiðrétta lóðina Reiðholt, L193771 stærð: 11.711,0m² og að stofna lóðirnar Vallarás 1, stærð: 60.665,0m², Vallarás 2, stærð: 54.960,6m², Vallarás 3, stærð: 59.801,0m², Vallarás 4, stærð: 57.441,8m², Vallarás 5, stærð: 61.940,4m², Vallarás 6, stærð: 54.229,6m² og Vallarás 7, stærð: 56.736,6m².
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
Mál nr. 49:
Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 18.03.2026 - nr. 26-246 - 2602003F
Til kynningar.

2.
Fundargerð Kjörstjórnar Ásahrepps, 10. apríl 2026
Lögð fram fundargerð Kjörstjórnar Ásahrepps, dagsett 10. apríl 2026.
Til kynningar.
3.
Fundargerð 48. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 48. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
4.
Fundargerð 254. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Lögð fram fundargerð 254. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar
5.
Fundargerð 98. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Lögð fram fundadrgerð 98. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 253. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands og ársreikningur 2025
Lögð fram fundargerð 253. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.Einnig ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 26. fundar stjórnar Arnardrangs hses. ásamt ársreikningi 2025
Fundargerð 26. fundar stjórnar Arnardrangs hses. lagður fram.Einnig ársreikningur Arnardrangs hses.
Til kynningar
8.
Fundargerð 90. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 90. fundar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 995. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 995. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 996. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
11.
Umsóknir um fjárframlög vegna útivistarstíga
Tvær umsóknir um fjárframlög til lagningar útivistarstíga hafa borist.
Ísleifur Jónasson og Þráinn Ingólfsson víkja af fundi.
Lögð fram umsókn um fjárframlag til viðhalds útivistarstígs með Kálfholtsvegi og Sauðholtsvegi. 11 heimili standa að þessari umsókn. Sótt er um fjárframlag allt að kr. 8.250.000.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita umsækjendum fjárframlag allt að kr. 8.250.000, sbr. flokk 2 í verklagsreglum.
Ísleifur Jónasson og Þráinn Ingólfsson mæta aftur til fundar.
Helga B. Helgadóttir víkur af fundi.
Einnig lögð fram umsókn um fjárframlög til nýlagningar útivistarstígs meðfram Syðri-Hamravegi, frá Skjólholtsbrekku niður að Steinslæk. Fjögur heimili standa að þessari umsókn og sótt er um styrk allt að kr. 6.000.000, samkvæmt flokki 2 í verklagsreglum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita umsækjendum fjárframlag allt að kr. 6.000.000, sbr. flokk 2 í verklagsreglum.
Helga B. Helgadóttir mætir aftur til fundar.

12.
Skilgreining landeignarinnar Safamýrar
Lögð fram drög að merkjalýsingu fyrir Safamýri til yfirferðar.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við framlögð gögn og samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti.
13.
Fyrirspurn varðandi hvatastyrki
Fyrirspurn lögð fram frá einstaklingi sem spyr hvort aðilar sem falla undir málefni fatlaðra geti átt rétt til hvatastyrks líkt og eldri íbúar njóta.
Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar fyrir erindið og ábendinguna. Skrifstofustjóra falið að skoða reglur sem lúta að hvatastyrkjum fyrir öryrkja. Afgreiðslu frestað.
14.
Stóri Plokkdagurinn - samstarf
Lagt fram erindi frá Náttúruverndarstofnun um mögulegt samstarf vegna Stóra Plokkdagsins þann 26. apríl.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í erindið.
15.
Þingmál 565 - verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar Þingmál 565 - verndar- og orkunýtingaráætlun. Einnig lögð fram umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um málið.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur undir umsögn Samtaka Orkusveitarfélaga.
16.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps 2022-2026
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepp, janúar-mars 2026.
Til kynningar.
17.
Viðbótarskýrsla vegna stækkunar Sigöldustöðvar, umhverfismatsskýrsla
Lögð fram viðbót við umhverfismatsskýrslu vegna stækkunar Sigöldustöðvar sem birt var í febrúar 2026 og var í kynningu og umsagnarferli til 30. mars 2025. Sveitarstjóri sendi inn umsögn f.h. Ásahrepps þann 27. mars s.l. sem lögð er jafnframt fram.
Til kynningar.
18.
Samband íslenskra sveitarfélaga - Stefna um opinbera þjónustu
Lögð fram drög að stefnu um opinbera þjónustu. Stefnan er unnin af fjármála- og efnahagsráðuneytinu í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
19.
Lækkun vatnsborðs í Krókslóni við Sigöldustöð sumarið 2026 - Landsvirkjun
Lagður fram upplýsingapóstur frá Landsvirkjun um fyrirhugaða lækkun Krókslóns, vegna framkvæmda við inntak og frárennslisskurð Sigöldustöðvar. Einnig eru kynntar fyrirhugaðar framkvæmdir við aðrennslisskurð Sultartangastöðvar.
Til kynningar.
20.
Ályktun frá fulltrúafundi Skógræktarfélags Íslands
Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands, frá 28. mars 2026, vegna umsagnar um um breytingartillögu meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla (157. löggjafarþing, mál 265, þskj. 949).
Til kynningar.
21.
Boðað til samráðsfundarvinnustofu um endurskoðun byggðaáætlunar - Innviðaráðuneytið og Byggðastofnun í samstarfi við SASS
Lagt fram fundarboð, þar sem Innviðaráðuneyti og Byggðastofnun, í samstarfi við SASS, boða til samráðsfundarvinnustofu um endurskoðun byggðaáætlunar.
Til kynningar.
22.
Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands 2026 - auglýst eftir framboðum
Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands 2026 fer fram fimmtudaginn 7. maí næstkomandi í Akóges salnum í Vestmannaeyjum.Auglýst er eftir framboðum til stjórnar Markaðsstofunnar fyrir starfsárið 2026/2027.
Til kynningar.
23.
Aðalfundarboð Háskólafélags Suðurlands 2026
Lagt fram aðalfundarboð Háskólafélags Suðurlands, sem haldinn verður 4. maí 2026 klukkan 13:00. Hægt er að taka þátt í fundinum rafrænt.
Til kynningar.
24.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar verður haldinn 20. maí 2026.
Stefnt er að aukafundum í hreppsnefnd vegna ársreiknings Ásahrepps fyrir 2025, fyrri umræða þriðjudaginn 28. apríl kl. 8:15 og síðari umræða þriðjudaginn 5. maí kl. 8:15.
Til kynningnar.
Til kynningnar.