Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

51. fundur
16. febrúar 2022 kl. 08:30 - 10:15
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir oddviti hrepssnefndar
Egill Sigurðsson hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason hreppsnefndarfulltrúi
Karl Ölvirsson varamaður í hreppsnefnd
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Brynja J. Jónasdóttir hefur boðað forföll og er Karl Ölvisson mættur á fund sem varamaður hennar. Hann situr fundinn á skrifsstofu sveitarfélagsins.
Dagskrá
1.
Fundargerð 232. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2202003
Lögð fram fundargerð 232. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-157.
Mál nr. 1; Sauðholt L165313; Staðfesting á afmörkun lóðar - 2112038.
Lögð er fram umsókn frá Kristjönu Ragnarsdóttir er varðar staðfestingu á afmörkun jarðarinnar Sauðholt L165313.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við afmörkun landsins skv. fyrirliggjandi umsókn en mælist til þess að hnitsetningar innan gagnanna verði samræmd við þegar þinglýst gögn aðliggjandi jarða.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir erindið samhljóða með fyrirvara um lagfærð gögn.

Mál nr.29; Afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa nr. 22-157.
2.
Fundargerð 233. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2202014
Lögð fram fundargerð 233. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt afgreiðslum byggingarfulltrúa 22-158.
Mál nr. 1; Sumarliðabær 2 (L165307); umsókn um byggingarleyfi; tvö starfsmannahús - 2112059.
Fyrir liggur umsókn Davíðs Kristjáns C. Pitt fyrir hönd Svarthöfða-Hrossarækt ehf., móttekin 16.12.2021, um byggingarleyfi til að byggja tvö jafnstór 29,8 m2 starfsmannahús á jörðinni Sumarliðabær 2 L165307 í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.

Mál nr. 29; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-158 - 2201004F.
Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa - 22-158 - 2201004F.
3.
Fundargerð 92. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2202009
Lögð fram fundargerð 92. fundar stjórnar UTU.
1. dagskrárlið fundargerðar er vísað til aðildarsveitarfélaga til staðfestingar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða, fyrir sitt leyti, nýja gjaldskrá vegna útgáfu byggingarheimilda, byggingarleyfa og þjónustu byggingarfulltrúa.
4.
Fundargerð vinnuhóps um endurskoðun samstarfssamninga
Málsnúmer 2202011
Lögð fram fundargerð 2. fundar vinnuhóps um endurskoðun samstarfssamninga Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 308. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2202005
Lögð fram fundargerð 308. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 578. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2202018
Lögð fram fundargerð 578. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 48. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2202008
Lögð fram fundargerð 48. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 906. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2202017
Lögð fram fundargerð 906. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitrfélaga.
Til kynningar.
9.
Kostnaðarþátttaka sveitarféalga á Suðurlandi vegna Vinaminnis
Málsnúmer 2202001
Lagt fram bréf Sveitarfélagsins Árborgar, dags. 19. janúar 2022, þar sem kynnt er sú breyting á rekstri Vinaminnis, sértækri dagdvöl fyrir einstaklinga með heilabilun. Tekjur til reksturs dagdvalanna koma annars vegar frá Sjúkratryggingum Íslands og hins vegar í formi daggjalds sem þjónustuþeginn greiðir sjálfur. Þessi framlög standa því miður ekki undir rekstrarkostnaði úræðisins en verið er að leita leiða til hagræðingar. Nú óskar Árborg eftir kostnaðarþátttöku annarra sveitarfélaga, sem hafa skjólstæðinga sína í dagdvalarvist Vinaminnis, og óska eftir afstöðu þeirra til beiðninnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur vel í erindið og lýsir sig reiðubúna til að greiða umrætt gjald fyrir skjólstæðinga úr Ásahreppi sem gætu komið til með að nýta þessa þjónustu.
10.
Styrkbeiðni frá skólablaðinu Vörðunni, Laugalandsskóla
Málsnúmer 2202002
Lagt fram tölvuskeyti frá Laugalandsskóla þar sem Ásahreppi er boðið að auglýsa í skólablaðinu Vörðunni. Á síðasta ári var keypt heilsíðuauglýsing að upphæð kr. 20.000.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita Vörðunni styrk að upphæð kr. 20.000 enda er gert ráð fyrir þeim útgjöldum í fjárhagsáætlun Ásahrepps 2022.
11.
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Málsnúmer 2202010
Lagt fram bréf Unicef á Íslandi þar sem Ásahreppi er boðin þátttaka í verkefninu "Barnvæn sveitarfélög" sem stuðlar að innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fresta málinu fram yfir næstu sveitarstjórnarkosningar.
12.
Umdæmisráð barnaverndar
Málsnúmer 2202013
Lagt fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 1. febrúar 2022, þar sem bent er á mikilvægi þess að sveitarfélög taki ákvörðun um hvaða sveitarfélög ætli að sameinast um umdæmisráð. Haldinn hefur verið fjarfundur á vegum sambandsins þar sem fulltrúar margra sveitarfélaga mættu og fengu kynningu á stöðu mála.
Hreppsnefnd Ásahrepps er því fylgjandi að fjöldi umdæmisráða barnaverndar í landinu verði 2-3. Vegna fjölda verkefna sem myndi kalla á úrvinnslu umdæmisráða er skynsamlegast að sameinast í stærri einingum til að gera verkefnið faglegra og formfastara.
13.
Stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar fyrir landsbyggðina
Málsnúmer 2202015
Lagt fram tölvuskeyti Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 4. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir afstöðu Ásahrepps til þátttöku í stofnun húsnæðissjálfseignarstofnunar sem þjóni sveitarfélögum á landsbyggðinni.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að bíða með að taka þátt í verkefninu þar sem að sveitarfélagið á engar eignir til að setja inn í slíka húsnæðissjáfseignarstofnun. Ásahreppur er þátttakandi í sambærilegu verkefni sem staðsett er í Guðrúnartúni á Hellu.
14.
Ósk um stofnun lögbýlis að Laufbrekkur í Ásahreppi.
Málsnúmer 2202016
Lagt fram bréf Brynju Jónu Jónasdóttur og Sigurðar Óskars Óskarssonar, dags. 11. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir umsögn hreppsnefndar vegna stofnunar lögbýlisins Laufbrekku í Ásahreppi (L219273). Meðfylgjandi bréfinu er umsögn Búnaðarsambands Suðurlands og uppdráttur.
Gerð er tillaga um að hreppsnefnd Ásahrepps geri engar athugasemdir við að Laufbrekka (L219273) verði gert að lögbýli.
Samþykkt samhljóða.
15.
Beiðni um ljósleiðaraþráð milli Lyngholts og verkstæðis heflunar í Ásahreppi
Málsnúmer 2202019
Lagt fram tölvuskeyti Heflunar ehf, Skarphéðinn Hilbert Ingason, þar sem óskað er eftir að fá lagðan ljósleiðaraþráð milli Lyngholts og verkstæðis Heflunar í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhlóða að fresta erindinu til næsta fundar hreppsnefndar og óskað verði eftir nánari upplýsingum frá Guðmundi Daníelssyni um verkefnið og stöðu Ásaljóss gagnvart beiðninni. Athuga skal hvort það samarýmist fjarskiptalögum að heimila slíkar tengingar hjá Ásaljósi og hvort tímabært sé að endurskoða samþykktir Ásaljóss.
16.
Tillaga til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða (332. mál)
Málsnúmer 2202021
Lagt fram tölvuskeyti nefndarsviðs Alþingis, dags. 11. febrúar 2022 þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 332. mál.
Þar er gerð tillaga um að Skrokkölduvirkjun og Urriðafossvirkjun verði skilgreindar í orkunýtingarflokk en Hágönguvirkjun í biðflokk.
Hreppsnefnd Ásahrepps er samþykk því að þessir virkjunarkostir verði settir í nýtingarflokk.
17.
Styrkbeiðni vegna Suðurlandsdeildarinnar í hestaíþróttum 2022
Málsnúmer 2202022
Lagt fram tölvuskeyti Rangárhallarinnar, dags. 29. janúar 2022, þar sem óskað er eftir fjárstyrk kr. 50.000 vegna Suðurlandsdeildarinnar í hestaíþróttum 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita umbeðinn styrk, enda rýmist hann innan fjárhagsáætlun ársins.
18.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Málaflokkayfirlit reksturs sveitarsjóðs Ásahrepps lagt fram.
Til kynningar.
19.
18. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19
Málsnúmer 2202004
Lögð fram 18. stöðuskýrsla teymis um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19.
Til kynningar.
20.
Breyting á reglugerð nr. 121 - 2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga
Málsnúmer 2202006
Lagt fram tölvuskeyti Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 25. janúar 2022, þar sem kynnt er reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.
Til kynningar.
21.
Bréf umboðsmanns barna, Mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa
Málsnúmer 2202007
Lagt fram bréf umboðsmanns barna, dags. 28. janúar 2022, þar sem sveitarfélögum er bent á er á mikilvægi þess að mat sé lagt á áhrif ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt barna til þátttöku og áhrifa.
Til kynningar.
22.
Skýrslur Hestamannafélagsins Geysis fyrir starfsfárið 2021
Málsnúmer 2202012
Lögð fram ársskýrslur stjórnar Hestamannafélagsins Geysis og Æskulýðsstarfs Geysis fyrir árið 2021 ásamt þátttökulista barna á námskeiðum í sýslunni.
Til kynningar.
23.
Úthlutun úr Landbótasjóði 2022
Málsnúmer 2202020
Lagt fram tölvuskeyti Landgræðslunnar, dags. 8. febrúar 2022, þar sem tilkynnt er um úthlutun úr sjóðnum á árinu 2022 vegna uppgræðslu á Holtamannaafrétti. Úthlutun í ár er kr. 3.143.000.
Til kynningar.
24.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 16. mars 2022 og hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.