Hreppsnefnd Ásahrepps
52. fundur
16. mars 2022
kl.
08:30
-
10:30
í fjarfundarkerfi Zoom
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir
oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson
hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 234. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 234. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál nr. 27; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-159 - 2202002F.
Til kynningar.
Til kynningar.
2.
Fundargerð 235. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 235. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál nr. 1; Ás 3 land II-2 L204643; Vesturás; Breytt heiti lóðar - 2202090.
Lögð er fram umsókn frá Berthu Karlsdóttur er varðar breytt heiti lóðar L204643. Óskað er eftir að staðfangi lóðarinnar verði breytt úr Ás 3 land II-2 í Vesturás. Fram kemur í umsókninni hvaðan nafnið er fengið.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við breytt staðfang lóðar.
Mál nr. 2; Ásborg L220762; Faxatröð; Stofnun lóðar - 2202050.
Lögð fram umsókn Eydísar Þ. Indriðadóttur um stofnun landeignar. Óskað er eftir að stofna 8.950 fm spildu, sem fengi heitið Faxatröð, úr Ásborg L220762. Fyrirhugað er að spildan verði samgönguleið/reiðstígur á forræði sveitarfélagsins Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við stofnun landspildunnar. Nefndin gerir jafnframt ekki athugasemd við staðfang hennar.
Mál nr. 37; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-160 - 2202004F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-160 lögð fram til kynningar.
Lögð er fram umsókn frá Berthu Karlsdóttur er varðar breytt heiti lóðar L204643. Óskað er eftir að staðfangi lóðarinnar verði breytt úr Ás 3 land II-2 í Vesturás. Fram kemur í umsókninni hvaðan nafnið er fengið.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við breytt staðfang lóðar.
Mál nr. 2; Ásborg L220762; Faxatröð; Stofnun lóðar - 2202050.
Lögð fram umsókn Eydísar Þ. Indriðadóttur um stofnun landeignar. Óskað er eftir að stofna 8.950 fm spildu, sem fengi heitið Faxatröð, úr Ásborg L220762. Fyrirhugað er að spildan verði samgönguleið/reiðstígur á forræði sveitarfélagsins Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við stofnun landspildunnar. Nefndin gerir jafnframt ekki athugasemd við staðfang hennar.
Mál nr. 37; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-160 - 2202004F.
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-160 lögð fram til kynningar.
3.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 10
Fundargerð 10. fundar fjallskiladeildar Holtamannaafréttar lögð fram.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fundargerðina fyrir sitt leyti.
4.
4. fundur vinnuhóps um endurskoðun samstarfssamninga Rangárþings ytra og Ásahrepps
Lögð fram fundargerð 4. fundar vinnuhóps um endurskoðun samstarfssamninga Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Til kynningar.
5.
5. fundur vinnuhóps um endurskoðun samstarfssamninga Rangárþings ytra og Ásahrepps
Lögð fram fundargerð 5. fundar vinnuhóps um endurskoðun samstarfssamninga Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Til kynningar.
6.
6. fundur vinnuhóps um endurskoðun samstarfssamninga Rangárþings ytra og Ásahrepps
Lögð fram fundargerð 6. fundar vinnuhóps um endurskoðun samstarfssamninga Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Þetta var síðasti fundur vinnuhópsins og málinu vísað til sveitarstjórna sveitarfélaganna til afgreiðslu. Endurskoðaður rammasamningur ásamt fylgiskjölum er tekinn fyrir síðar á þessum fundi, undir sér dagskrárlið.
Til kynningar.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 47. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 47. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 48. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 48. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 220. fundar sjtórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Lögð fram fundargerð 220. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 96. fundar félagsmálanefndar
Lögð fram fundargerð 96. fundar félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 97. fundar félagsmálanefndar
Lögð fram fundargerð 97. fundar félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 98. fundar félagsmálanefndar
Lögð fram fundargerð 98. fundar félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 1. fundar nýrrar seyrustjórnar
Lögð fram fundargerð 1. fundar nýrrar seyrustjórnar.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 309. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 309. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 216. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 216. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 101. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Lögð fram fundargerð 101. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
17.
Fundargerð 35. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Fundargerð 35. fundar stjórnar Bergrisans bs. lögð fram.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 36. fundar stjjórnar Bergrisans bs.
Lögð fram fundargerð 36. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 37. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Lögð fram fundargerð 37. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
20.
Fundargerð 38. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Lögð fram fundargerð 38. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
21.
Fundargerð 49. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 49. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
22.
Fundargerð 907. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 907. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
23.
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi að Sumarliðabæ 2.
Lögð fram umsagnarbeiði frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 10. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir umsögn Ásahrepps vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-H (frístundahús) að Sumarliðabæ 2. Fasteignanúmer: 234-1635. Umsækjandi er Svarthöfði-Hrossarækt ehf kt. 590516-1120.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt enda hefur byggingarfulltrúi gefið jákvæða umsögn.
24.
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi að Sumarliðabæ 2
Lögð fram umsagnarbeiði frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 10. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir umsögn Ásahrepps vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-G (íbúðir) að Sumarliðabæ 2. Fasteignanúmer: 219-8108. Umsækjandi er Svarthöfði-Hrossarækt ehf kt. 590516-1120.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt enda hefur byggingarfulltrúi gefið jákvæða umsögn.
25.
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi að Steinahlíð, Sumarliðabæ 2
Lögð fram umsagnarbeiði frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 10. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir umsögn Ásahrepps vegna umsóknar um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-H (frístundahús) að Steinahlíð, Sumarliðabæ 2. Fasteignanúmer: 219-8233. Umsækjandi er Svarthöfði-Hrossarækt ehf kt. 590516-1120.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við að umrætt leyfi verði veitt enda hefur byggingarfulltrúi gefið jákvæða umsögn.
26.
Endurskoðað rammasamkomulag um samstarf sveitarfélaganna Ásahrepps og Rangárþings ytra
Vinnuhópur um endurskoðun rammasamkomulags um samstarf sveitarfélaganna Ásahrepps og Rangárþings ytra hefur lokið störfum og skilað af sér til sveitarstjórna sveitarfélaganna.Fyrir fundinum liggur endurskoðað rammasamkomulag ásamt fylgiskjölum, sem eru samþykktir sameiginlegra byggðasamlaga og þjónustusamningar.
Lagt er til að hreppsnefnd Ásahrepps samþykki endurskoðaða útgáfu af rammasamkomulagi og samstarfssamningum Rangárþings ytra og Ásahrepps fyrir sitt leyti. Með hinni endurskoðuðu útgáfu hefur jafnframt verið brugðist við þeim ábendingum sem fram komu í bréfi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti dags. 24. ágúst 2020 og er lagt til að samþykktir og þjónustusamningar verði sendir til staðfestingar hjá viðeigandi ráðuneyti og í framhaldinu til birtingar í Stjórnartíðindum. Jafnframt er lagt til að hreppsnefnd samþykki fyrir sitt leyti eftirfarandi tillögu vinnuhópsins að sameiginlegri bókun sveitarstjórna Rangárþings ytra og Ásahrepps varðandi fjallskil á Holtamannaafrétti: Samkvæmt 42. gr. laga nr. 6/1986 um afréttamál, fjallskil o. fl. skal fjallskilum í afréttum og öðrum sumarbeitarhögum jafnað niður á fjallaskilaskylda aðila í hlutfalli við tölu fjallskilaskylds búpenings en heimilt er þó að leggja hluta fjallaskilakostnaðar á landverð eins og þar er ákveðið enda séu um það ákvæði í fjallskilasamþykkt. Í fjallskilasamþykkt Rangárvallasýslu nr. 633/2007 segir í 15. gr.: Sveitarstjórn er heimilt að leggja til fjallaskilasjóðs fjárhæð sem nemur kostnaði við hreinsun afréttarins, miðað við að ekki væri rekið til afréttar. Í framhaldinu eru ákvæði um niðurjöfnun þess sem eftir stendur af fjallaskilakostnaðí. Tekjur og gjöld vegna Holtamannaafréttar, þ.m.t. hlutdeild í fjallaskilakostnaði, skiptist á milli sveitarfélaganna í hlutföllum 4/7 Ásahreppur og 3/7 Rangárþing ytra. Sveitarstjórnirnar er sammála um að unnið verði mat á kostnaði við hreinsun Holtamannaafréttar og hlutdeild sveitarfélaganna við niðurjöfnun kostnaðar við fjallskil á Holtamannaafrétti verði reiknuð í samræmi við niðurlagsákvæði e-liðar 1. gr. þjónustusamningsins frá og með fjárleitum haustið 2022.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
27.
Tillaga að gjaldskrá Ásaljóss
Lögð fram tillaga að nýrri gjaldskrá fyrir Ásaljós. Umræða varð um forsendur þessarar gjaldskrár.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagða tillögu að gjaldskrá Ásaljóss og felur sveitarstjóra að birta hana.
28.
Tillaga að samþykkt um hreinsistöðvar og rotþrær í Ásahreppi ásamt tillögu að gjaldskrá
Lögð fram tillaga að samþykkt um hreinsistöðvar og rotþrær í Ásahreppi ásamt tillögu að gjaldskrá vegna seyrulosunar.Umræða varð um forsendur og tillagnanna og framtíðarsýn varðandi þennan málaflokk.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vísa málinu til síðari umræðu í hreppsnefnd sem verður á apríl fundi hennar.
29.
Ósk um styrk til að koma á fót æskulýðsstarfi í skotgreinum í Rangárvallasýslu
Lagt fram bréf Skotíþróttafélagsins Skyttur, dags. 28. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til þess að koma á fót æskulýðsstarfi í skotgreinum í Rangárvallasýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í erindið og samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu til næsta fundar og kanna afstöðu annarra sveitarfélaga í Rangárvallasýslu til erindisins.
30.
Skoðanakönnun; Félagsvísindastofnun
Lögð fram skýrsla með niðurstöðum úr könnun á hug íbúa Ásahrepps til sameiningar sveitarfélaga á Suðurlandi, dagsett 16. febrúar 2022.
Niðurstöður könnunar sýnir að 52% íbúa tóku þátt í könnuninni og 56% þeirra eru mótfallnir því að hreppurinn sameinist öðru sveitarfélagi. Af þeim sem voru jákvæðir fyrir sameiningu Ásahrepps við önnur sveitarfélög, þá voru 39% jákvæðir sameiningu við Rangárþing ytra, Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Flóahrepp, 66% samþykkir sameiningu Ásahrepps og Rangárþings ytra og 72% samþykkir sameiningu sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu.
Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar íbúum Ásahrepps fyrir þátttöku þeirra í könnuninni.
Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar íbúum Ásahrepps fyrir þátttöku þeirra í könnuninni.
31.
Erindi Félags eldri borgara Rangárþingi, heilsuefling eldra fólks
Lagt fram tölvuskeyti Félags eldriborgara Rangárþingi, dags. 17. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélögum í Rangárvallasýslu um það sem þau bjóða eldri borgurum upp á, á þessum sviðum.
Ásahreppur er í samstarfi við Rangárþing ytra um rekstur íþróttamiðstöðva og er aðgengi eldriborgara tryggður með sama hætti gagnvart íbúum Ásahrepps eins og íbúum Rangárþings ytra. Ásahreppur ásamt Rangárþingi ytra og Rangárþingi eystra hefur komið að stuðningi við félag eldriborgara í Rangárvallasýslu í gegnum Héraðsnefnd Rangæinga. Að lokum er rétt að geta þess að eldri borgarar geta fengið hádegisverð hjá Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi. Einnig hefur Ásahreppur staðið fyrir því að matur sé keyrður út til íbúa sem ekki hafa tök á eða geta ekki komið í mötuneyti Lundar. Þá eru matarskammtar keyptir af Lundi og matur keyrður út til viðkomandi.
32.
Kvikmyndatökur við Búðarhálsvirkjun
Lagt fram tölvuskeyti frá Truenorth Nordic ehf, dags. 24. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir afstöðu hreppsnefndar Ásahrepps gagnvart fyrirhuguðum kvikmyndatökum við Búðarhálsvirkjun. Hefur verkefnið verið undirbúið í samráði við Landsvirkjun, sem gefa leyfi fyrir sitt leyti.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir engar athugasemdir við að kvikmyndatökur fari fram þarna, en gerir kröfu um góða umgengni og að frágangur verði með þeim hætti að umhverfi hafi ekki verið spillt með neinum hætti.
33.
Beiðni Tónkjallarans ehf um greiðslu kennslugjalda
Lagt fram tölvuskeyti frá Tónkjallaranum ehf (Tónsmiðja Suðurlands), dags. 28. febrúar 2022, þar sem óskað er eftir því að Ásahreppur greiði kennslugjald vegna eins nemanda á vorönn 2022. Um er að ræða kennslugjald að upphæð kr. 290.769.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu erindisins. Hreppsnefnd Ásahrepps gerir kröfu um að samningur liggi fyrir milli aðila ef sveitarfélagið skal greiða kennslugjald, þar sem námskrá liggi til grundvallar sem tryggir gæði kennslunnar og uppfylli kröfur laga um tónlistarskóla og sveitarfélagsins til tónlistarkennslu.
34.
Beiðni um ljósleiðaraþráð milli Lyngholts og verkstæðis Heflunar í Ásahreppi
Lagt fram að nýju erindi Heflunar ehf (2202019), sem frestað var á síðasta fundi hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps sér ekkert í vegi fyrir að verða við þessari beiðni, enda hefur fyrr á þessum fundi verið samþykkt gjaldskrá, sem gerir ráð fyrir að geta mætt óskum sem þessum.
35.
Samtaka um hringrásarhaagkerfið
Lagt fram tölvuskeyti Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 28. febrúar 2022, þar sem sveitarfélögum er boðið að vera þátttakendur í verkefninu "Samtaka um hringrásarhagkerfið". Sveitarfélögin verða að skrá sig til þátttöku í verkefninu.
Eins og fram kom í fundargerð 220. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. þá mun fulltrúi Sorpstöðvarinnar vera þátttakandi í þessum verkefnum fyrir hönd sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu.
36.
Ósk um að leigja Gásagust, Holtamannaafrétti.
Lagt fram tölvuskeyti Ágústs Þórs, dags. 11. mars 2022, þar sem hann útlistar hugmyndum um langtímaleigu á Gásagust gegn því að byggja skálann upp.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu þessa erindis þar til að búið er að stofna lóð um skálann. Sú vinna er í gangi hjá Eflu, en stefnt er að stofnun lóða við einstaka skála og í sumum tilvikum gerð deiliskipulags um skálasvæði.
37.
Erindi Knattspyrnufélags Rangæinga varðandi uppbyggingu á gervigrasvelli m.m.
Lagt fram bréf Knattspyrnufélgs Rangæinga, dags. 7. mars 2022, þar sem óskað er eftir formlegum svörum við 3 spurningum er varðar uppbyggingu gerfigrasvallar og annarra íþróttamannvirkja til knattspyrnuiðkunar.
Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að íþróttaaðstaðan á Laugalandi er í sameign Ásahrepps og Rangárþings ytra, þar sem eignar hluti Ásahrepps er nærri þriðjungi. Jafnframt tekur Ásahreppur þátt í rekstri annarra íþróttamiðstöðva í samræmi við samning við Rangárþing ytra. Ásahreppur á ekkert annað land sem sveitarfélagið getur lagt til við slíka uppbyggingu.
Hreppsnefnd Ásahrepps lýsir því yfir að sveitarfélagið er reiðubúið til viðræðna við önnur sveitarfélög í sýslunni er lýtur að uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Hreppsnefnd Ásahrepps lýsir því yfir að sveitarfélagið er reiðubúið til viðræðna við önnur sveitarfélög í sýslunni er lýtur að uppbyggingu íþróttamannvirkja.
38.
Ársreikningur Ásaljóss 2021
Lagður fram ársreikningur Ásaljóss fyrir rekstrarárið 2021 ásamt staðfestingarbréfi.
Hreppsnefnd Ásahrepps mun árita ársreikninginn á næsta fundi, þ.e. aukafundi fimmtudaginn 24. mars n.k. sem hefst klukkan 8:00, þegar ársreikningur Ásahrepps fyrir árið 2021 verður lagður fram til fyrri umræðu.
39.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram rekstraryfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps, janúar - febrúar 2022.
Til kynningar.
40.
Tölvuskeyti félagsþjónustunnar, frestun gildistöku barnaverndarlaga
Lagt fram tölvuskeyti félagsþjónustunnar, dags. 18. febrúar 2022, þar sem kynnt er um frestun á gildistöku barnaverndarlaga fram til haustsins 2022.
Til kynningar.
41.
Bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga (EFS)
Lagt fram bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, dags. 21. febrúar 2022, þar sem kynnt er almennt eftirlit með fjármálum sveitarfélaga á árinu 2022.
Til kynningar.
42.
Bréf Skipulagsstofnunar vegna tillögu að nýju aðalskipulagi Ásarhepps 2020-2032
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 1. mars 2022, til skipulagsfulltrúa Ásahrepps. Þar koma fram nokkrar athugasemdir sem þarf að lagfæra áður en tillagan fer til auglýsingar.
Til kynningar.
43.
Bókun og áskorun Sveitarfélagsins Vogar vegna Suðurnesjalínu 2
Lögð fram bókun Sveitarfélagsins Voga vegna Suðurnesjalínu 2.
Til kynningar.
44.
Orðsending mennta- og barnamálaráðherra um fyrirlögn PISA 2022
Lögð fram orðsending mennta- og barnamálaráðherra vegna fyrirlagnar PISA 2022, dags. 3. mars 2022.
Til kynningar.
Orðsendingunni vísað til stjórnar Odda bs.
Orðsendingunni vísað til stjórnar Odda bs.
45.
Aðalfundarboð Strandarvallar ehf.
Lagt fram aðalfundarboð Strandarvallar ehf. sem haldinn verður 18. mars n.k.
Til kynningar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Ásta B. Ólafsdóttir verði fulltrúi Ásarhepps á fundinum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Ásta B. Ólafsdóttir verði fulltrúi Ásarhepps á fundinum.
46.
Fundarboð aðalfundar Lánasjóðs sveitarféalga ohf. 2022
Lagt fram fundarboð aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. sem haldinn verður 1. apríl 2022.
Til kynningar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Ásta B. Ólafsdóttir verði fulltrúi Ásahrepps á fundinum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Ásta B. Ólafsdóttir verði fulltrúi Ásahrepps á fundinum.
47.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti fundur hreppsnefndar verður aukafundur til framlagningar ársreiknings Ásahrepps 2021 og Ásaljóss 2021, sem haldinn verður fimmtudaginn 24. mars 2022 og hefst klukkan 8:00.