Hreppsnefnd Ásahrepps
52. fundur
28. apríl 2026
kl.
08:15
-
08:50
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Reynir Örn Pálmason
varamaður í hreppsnefnd
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson
skrifstofustjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur Ásahrepps 2025, framlagning til fyrri umræðu
Á fundinn mætir Friðrik Einarsson, endurskoðandi KPMG, vegna framlagningar ársreiknings Ásahrepps 2025. Friðrik ásamt Valtý sveitarstjóra fara yfir ársreikninginn og skýra ýmsa liði. Ársreikningur er þó háður þeim annmörkum að ekki hefur enn verið lokið ársreikningum sumra byggðasamalaga sem er miður. Hreppsnefnd Ásahrepps leggur áherslu á að nauðsynlegt er fyrir stjórnir og stjórnendur byggðasamlaga að flýta gerð ársreikninga svo hægt verði að leggja fram ársreikninga sveitarfélaga í góðum tíma án tímalegrar pressu. Ársreikningar sveitarfélaga á að hafa verið lokið með tveimur umræðum fyrir 15. maí ár hvert og er því óásættanlegt að ekki sé verið að ljúka afgreiðslu ársreikninga byggðasamlaga fyrr en undir lok apríl mánaðar. Hér þarf að gera bragarbót á og ljúka afgreiðslu ársreikninga byggðasamlaga mun fyrr en raunin hefur sýnt.
Hreppsnefnd Ásahrepps vísar ársreikningi Ásahrepps 2025 til annarrar og lokaumræðu til næsta fundar sem haldinn verður þriðjudaginn 5. maí 2026 klukkan 8:15.