Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

53. fundur
5. maí 2026 kl. 08:15 - 09:15
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson skrifstofustjóri
Nanna Jónsdóttir sat fundinn í fjarfundakerfi Teams.
Dagskrá
1.
Fundargerð 323. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2604026
Lögð fram fundargerð 323. fundar skipulagsnefndar UTU, ásamt afgreiðslum byggingafulltrúa númer 247 og 248.
Mál nr. 1; Hrauneyjafossvirkjun og Sigöldustöð, Holtamannaafrétti L221893; Endurnýjun ljósleiðara; Framkvæmdarleyfi - 2604020.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Hrauneyjafossstöðvar og Sigöldustöðvar í Ásahreppi. Í framkvæmdinni felst endurnýjun ljósleiðara á milli þessara tveggja stöðva.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.

Mál nr. 2; Lindarbær 1A L165304; Skilgreining svæðis; Byggingarreitir og aðkoma; Deiliskipulag - 2603077.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Lindarbæjar 1A L165304 í Ásahreppi. Deiliskipulagið tekur til 3,76 ha afmörkunar á 15 ha spildu undir 3 byggingarreiti fyrir bílskúr við eldra íbúðarhús, nýtt íbúðarhús og bílskúr, gestahús og skemmu/fjárhús/hesthús/reiðhöll með sambyggt gróðurhús. Skipulagssvæðið tekur yfir 3 byggingarreiti og aðkomu að svæðinu. Innan byggingarreita skikans er heimilt að byggja allt að 2000 m2 í samræmi við byggingarheimildir á landbúnaðarlandi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að deiliskipulagið verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Jafnframt er málið grenndarkynnt innan deiliskipulagssvæðisins.

Mál nr. 3; Þjóðólfshagi 1. br á Aðalskipulagi Rangárþings; Umsagnarbeiðni - 2603080.
Lögð er fram til umsagnar aðalskipulagsbreyting sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028. Svæðið sem breytingin nær til er í landi Þjóðólfshaga 1 (L165164). Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarland en breyta á 6,4 ha svæði í verslunar- og þjónustusvæði sem ætlað er undir ferðaþjónustu.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemdir við framlögð gögn og vísar málinu til kynningar og umsagnar sveitarstjórnar Ásahrepps.

Mál nr. 31; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 27.03.2026 - 26-247 - 2603003F.
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-247, dags. 27.03.2026.



Mál nr. 32; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 08.04.2026 - 26-248 - 2603005F
Lögð er fram afgreiðslur byggingarfulltrúa, nr. 26-248, dags. 08.04.2026.





2.
Fundargerð 324. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2604029
Lögð fram fundargerð 324. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð 249. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU.
Mál nr. 1; Sjónarhóll L198871; Byggingarreitur stækkaður og skýring; Deiliskipulagsbreyting - 2604061.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Sjónarhóls L198871 í Ásahrepp. Breytingin hér felst í því að byggingarreitur - B1 stækkar og heimildir innan hans skýrðar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.

Mál nr. 21; Afgreiðslur byggingarfulltrúa dags. 22.04.2026 - 26-249 - 2604001F.
Lögð er fram afgreiðsla byggingarfulltrúa, nr. 26-249, dags. 22.04.2026.
3.
Fundargerð 49. fundar Odda bs.
Málsnúmer 2604024
Lögð fram fundargerð 49. fundar Odda bs., ásamt ársreikningi fyrir árið 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan ársreikning.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
4.
Fundargerð 13. fundar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2604021
Lögð fram fundargerð 13. fundar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps, auk ársreiknings fyrir árið 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan ársreikning.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
5.
Fundargerð 14. fundar Húsakynna bs.
Málsnúmer 2604020
Lögð fram fundargerð 14. fundar Húsakynna bs., ásamt ársreikningi fyrir rekstrarárið 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan ársreikning.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
6.
Fundargerð 90. fundar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2604019
Lögð fram fundargerð 90. fundar Brunavarna Rangárvallasýslu bs., ásamt ársreikningi fyrir rekstrarárið 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan ársreikning.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
7.
Fundargerð 255. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2604014
Lögð fram fundargerð 255. fundar fyrir Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. ásamt ársreikningi fyrir rekstrarárið 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan ársreikning.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
8.
Fundargerð 38. fundar Tónlistarskóla Rangæinga bs
Málsnúmer 2604017
Lögð fram fundargerð 38. fundar Tónlistarskóla Rangæing bs. ásamt ársreikningi fyrir rekstrarárið 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan ársreikning.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
9.
Fundargerð 10.fundar Héraðsnefndar Rangæinga
Málsnúmer 2604018
Lögð fram fundargerð 18. fundar Héraðsnefndar Rangaæinga, ásamt ársreikningi fyrir rekstrarárið 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan ársreikning.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
10.
Fundargerð 99. fundar Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu bs.
Málsnúmer 2604022
Lögð fram fundargerð 99. fundar Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu bs., ásamt ársreikningi fyrir rekstrarárið 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan ársreikning.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
11.
Fundargerð aðalfundar Skógarsafns, 27. mars 2026
Málsnúmer 2604016
Lögð fram Fundargerð aðalfundar Skógarsafns frá. 27. mars 2026 ásamt ársskýrslu og ársreikningi fyrir rekstrarárið 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan ársreikning.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
12.
Fundargerð 135. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2604028
Lögð fram fundargerð 135. fundar stjórnar UTU ásamt ársreikningi fyrir rekstrarárið 2025 og minnisblaði.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti fram lagðan ársreikning.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
13.
Fundargerð 92. stjórnar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2604015
Lögð fram fundargerð 92. fundar stjórnar Bergrisans bs., ásamt ársreikningi fyrir árið 2025.
Hreppsnefnd Ásahrepp staðfestir fyrir sitt leyti framlagðan ársreikning.
Fundargerð til kynningar.
14.
Fundargerð 134. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2604027
Lögð fram fundargerð 134. fundar stjórnar UTU.
Til kynningar.
15.
Ársreikningur Ásahrepps 2025, síðari umræða
Málsnúmer 2604025
Lagður fram ársreikningur Ásahrepps fyrir rekstrarárið 2025 ásamt sundurliðunarbók og endurskoðunarskýrslu. Helstu kennitölur samstæðureiknings eru eftirfarandi í þús. kr.: REKSTRARREIKNINGUR: Rekstrartekjur: 750.857 Rekstrargjöld: -571.406Afskriftir: -23.870Fjármagnstekjur umfram gjöld: 14.800 Rekstrarniðurstaða jákvæð: 170.381EFNAHAGSREIKNINGUR: Fastafjármunir: 522.846Veltufjármunir: 637.106 Eignir samtals: 1.159.952 Eigið fé: 959.277Skuldbindingar: 7.634 Langtímaskuldir: 76.442Skammtímaskuldir: 116.599Eigið fé og skuldir samtals: 1.159.952Handbært fé í árslok: 527.019Veltufjárhlutfall: 5,46Eiginfjárhlutfall: 82,7% Skuldahlutfall: 26,7% Jafnvægisregla - rekstrarjöfnuður: 392.786
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi ársreikning og staðfestir hann með áritun sinni.
16.
Viljayfirlýsing vegna Sæmundarstofu
Málsnúmer 2604023
Lagt fram erindi frá Oddafélaginu um stofnun Sæmundarstofu. Lögð fram drög að viljayfirlýsingu um stofnun Sæmundarstofu sjálfseignastofnunar (SES) í Odda milli Oddafélagsins og sveitarfélaganna í Rangárþingi.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að undirrita viljayfirlýsingu fyrir hönd Ásahrepps.
17.
Ný heimasíða fyrir Ásahrepp
Málsnúmer 2408024
Heimasíða Áshrepps hefur verið í undirbúningi og styttist í að hún verði tilbúin til notkunar. Taka þarf ákvörðun um lokayfirferð og gangsetningu hennar.
Hreppsnefnd Ásahrepps lýsir ánægju sinni með nýja heimasíðu og heimilar að hún fari í loftið í næstu viku.