Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

54. fundur
20. apríl 2022 kl. 08:30 - 12:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Árlegur stöðufundur með fulltrúum Landsvirkjunar
Málsnúmer 2204015
Undir þessum dagskráarlið mætti Georg Pálsson fyrir hönd Landsvirkjunar og fór yfir samfélagsstefnu Landsvirkjunar. Einnig fór hann yfir stöðuna í vatnsbúskap og helstu verkefni ársins. Georg mætti til fundar í fjarfundakerfi Zoom.
Hreppsnefnd Ásahrepps þakkar Georg fyrir þátttöku á fundi hreppsnefndar og einnig fyrir veittar upplýsingar.
2.
Fundargerð 236. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2204007
Lögð fram fundargerð 236. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál nr. 22; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-161 - 2203002F.
Lög fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-161.
3.
Fundargerð 237. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2204031
Fundargerð 237. fundar skipulagsnefndar UTU lögð fram ásamt 22-162. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
Mál nr. 1; Gásagustur í Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag - 2203063.
Lögð er fram tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu vegna fjallasels að Gásagusti í Holtamannaafrétti.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við framlagða tilkynningu um matsskyldu vegna fjallaselsins Gásagustur á Holtamannaafrétti. Að mati hreppsnefndarinnar eru framkvæmdir innan svæðisins á grundvelli viðkomandi gagna ekki líklegar til að hafa umfangsmikil umhverfisáhrif og telur að framlögð gögn geri á fullnægjandi hátt grein fyrir hugsanlegum framkvæmdum og umhverfisáhrifum þeirra. Framkvæmdir innan svæðisins eru eftir atvikum háðar útgáfu byggingar- og/eða framkvæmdaleyfis af hálfu sveitarfélagsins.

Mál nr. 2; Áskot L165263; Deiliskipulag - 2204011.
Lögð er fram umsókn frá Grétu Vilborgu Guðmundsdóttur er varðar nýtt deiliskipulag innan jarðar Áskots í Ásahreppi. Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda sem taka m.a. til vélaskemmu, reiðhallar og hesthúss, viðbyggingar við núverandi skemmu og reitar fyrir gistihús og tækjaskúr.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir deiliskipulagstillöguna til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um lagfærð gögn.

Mal nr. 34; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-162 - 2204001F.
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-162.
4.
Fundur vegna samnings um endurreisn gróðurlendis vegna Sporðöldulóns
Málsnúmer 2204026
Lögð fram fundargerð vegna endurskoðunar samnings um endurreisn gróðurlendis vegna Sporðöldulóns sem haldinn var 28. mars 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra, Ástu Beggu og Agli að vinna að lokagerð að samningi sem væntanlega verði tilbúinn fyrir næsta fund hreppsnefndar í maí þar sem stefnt verði að samþykki hans.
5.
Fundargerð 49. fundar Odda bs.
Málsnúmer 2204020
Lögð fram fundargerð 49. fundar stjórnar Odda bs.
Undir öðrum dagskrárlið er ársreikningur Odda bs. fyrir árið 2021 samþykktur og áritaður.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir ársreikning Odda bs. 2021 fyrir sitt leyti.

Í fjórða dagskrárlið er óskað eftir viðauka við fjárhagsáætlun Odda bs. fyrir árið 2022, aukinn stuðningur í leikskóla.
Stjórn Odda bs hefur óskað eftir viðauka við fjárhagsáætlun Odda bs fyrir árið 2022 vegna tímabundins stöðugildis stuðningsfulltrúa. Lagt er til að sveitarstjórn samþykki fyrir sitt leyti viðauka við fjárhagsáætlun Odda bs að fjárhæð kr. 5.270 þús vegna aukins launakostnaðar stuðningsfulltrúa hjá Heklukoti. Viðaukanum verði mætt með auknum framlögum aðildarsveitarfélaga sem skiptist þannig að framlag Rangárþings ytra eykst um kr. 4.824 þús og framlag Ásahrepps um kr. 446 þús m.v. núverandi skiptihlutfall. Því er jafnframt lagt til að hreppsnefnd samþykkti viðauka 1 við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins Ásahrepps fyrir árið 2022 að upphæð kr 446 þús sem færist á fræðslumál (04). Viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
6.
16. fundur stjórnar Húsakynna bs.
Málsnúmer 2204003
Lögð fram fundargerð 16. fundar stjórnar Húsakynna bs.
Í 1. dagskrárlið er ársreikningur Húsakynna bs. fyrir rékstrarárið 2021 lagður fram til staðfestingar hjá stjórn. Hreppsnefnd Ásarhepps staðfestir ársreikning Húsaskynna bs. 2021 fyrir sitt leyti.

Í dagskrárlið 4.1. er til umræðu framtíð skólastjórahússins á Laugalandi. Stjórn beinir því til sveitarstjórna aðildarsveitarfélaganna að meta hvort fara eigi í viðræður við ríkið um yfirfærslu eignarhluta ríkisins til sveitarfélaganna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að farið verði í þær viðræður, fyrir sitt leyti og er sveitarstjóra falið að sinna því fyrir hönd hreppsnefndar Ásahrepps.

Í dagskrárlið 4.2. er rætt um hesthúsið á Þóristungum, en fyrir liggur kostnaðaráætlun vegna viðgerða að upphæð kr. 2,5 milljónir. Stjórn óskar eftir að sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna taki afstöðu til þess hvort gera eigi viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2022 til að mæta þessum kostnaði eða hvort beina eigi verkefninu til fjárhagsáætlunar 2023.

Oddviti lagði fram tillagu um að verkefnið verði sett inn á fjárhagsáætlun 2022 og gerður viðauki við fjárhagsáætlun ársins.

Tillaga fulltrúa E-lista er að málinu verði frestað og vísað til nýrrar hreppsnefndar Ásahrepps og nýrrar stjórnar Húsakynna bs. Tillagan er felld með þremur (3) atkvæðum (ÁBÓ, BJJ og GJG) en tveir með (EG og ES).

Þá var fyrri tillaga oddvita tekin til afgreiðslu. Tillagan samþykkt með þremur (3) atkvæðum (ÁBÓ, BJJ og GJG) en tveir (2) á móti (EG og ES).


Að öðru leyti er fundargerðin til kynningar.
7.
Fundargerð 17. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2204021
Lögð fram fundargerð 17. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Eini dagskrárliður fundarins var ársreikningur veitunnar 2021 og samþykkti stjórn hann með breytingu frá 16. fundi.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir ársreikninginn fyrir sitt leyti.
8.
Fundargerðir kjörstjórnar 8. apríl 2022
Málsnúmer 2204033
Lagðar fram tvær fundargerðir kjörstjórnar, en báðir fundirnir voru haldnir þann 8. apríl 2022.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 15. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2204018
Lögð fram fundargerð 15. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 16. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2204019
Lögð fram fundargerð 16. fundar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemdir við breytingu á forgangsröðun framkvæmda á árunum 2023 og 2024
Að öðru leyti er fundargerðin til kynningar.
11.
Fundargerð vegna skála á Holtamannaafrétti, deiliskipulög og lóðablöð
Málsnúmer 2204006
Lögð fram fundargerð vinnuhóps um endurskoðun aðalskipulags Ásahrepps ásamt fulltrúum Eflu, þar sem farið var yfir þau skálasvæði sem þyrfti að vinna deiliskipulag fyrir og lóðarblöð.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 99. fundar félagsmálanefndar
Málsnúmer 2204025
Lögð fram fundargerð 99. fundar félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 310. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2204016
Lögð fram fundargerð 310. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands ásamt skýrslu um magntölur úrgangs árið 2021.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 217. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2204030
Lögð fram fundargerð 217. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands ásamt ársreikningi 2021 og nýrri samþykkt um vatnsvernd á Suðurlandi.
Til kynningar.
15.
Fundargerð 5. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 2204009
Lögð fram fundargerð 5. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 6. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands
Málsnúmer 2204010
Lögð fram fundargerð 6. fundar stjórnar Markaðsstofu Suðurlands.
Til kynningar.
17.
Minnispunktar frá fundi aðildarsveitarfélaga Bergrisans bs.
Málsnúmer 2204013
Lagðir fram minnispunktar frá fundi með aðildarsveitarfélögum Bergrisans bs. sem haldinn var 21. mars 2022.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 579. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2204005
Lögð fram fundargerð 579. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 580. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2204023
Lögð fram fundargerð 580. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
20.
Fundargerð 50. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2204027
Lögð fram fundargerð 50. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
21.
Fundargerð 908. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2204011
Lögð fram fundargerð 908. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
22.
Ársreikningur Ásahrepps 2021
Málsnúmer 2203042
Lagður fram til síðari umræðu ársreikningur Ásahrepps fyrir rekstrarárið 2021 ásamt sundurliðunum. Helstu kennitölur samstæðureiknings eru eftirfarandi í þús. kr.: REKSTRARREIKNINGUR Rekstrartekjur: 332.076Rekstrargjöld: -310.375 Afskriftir: -21.701Fjármagnsgjöld: -1.428 Rekstrarniðurstaða jákvæð: 3.169 EFNAHAGSREIKNINGUR Fastafjármunir: 391.986Veltufjármunir: 164.491 Eignir samtals: 556.477 Eigið fé: 505.214 Langtímaskuldir: 7.563Skammtímaskuldir: 43.700 Eigið fé og skuldir samtals: 556.477 Handbært fé í árslok: 135.798Veltufjárhlutfall: 3,76 Eiginfjárhlutfall: 90,8% Skuldahlutfall: 15,4% Jafnvægisrégla - rekstrarjöfnuður: 119.804
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi ársreikning og staðfestir hann með áritun sinni.
23.
Ósk um styrk til að koma á fót æskulýðsstarfi í skotgreinum í Rangárvallasýslu
Málsnúmer 2203003
Vísað er til dagskrárliðar nr. 29 á 52. fundi hreppsnefndar Ásahrepps, en þá var afgreiðslu frestað og leitað eftir afstöðu annarra sveitarfélaga í Rangárvallasýslu. Lagðar fram bókanir sveitarstjórna Rangárþings ytra og eystra.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja félagið að upphæð kr. 100.000.
24.
Tillaga að samþykkt um hreinsistöðvar og rotþrær í Ásahreppi
Málsnúmer 2203002
Lögð fram til annarrar umræðu tillaga að samþykkt um hreinsistöðvar og rotþrær í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að senda framlagða tillögu að samþykkt til umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytis til staðfestingar og birtingar.
25.
Slit á óvirkum byggðasamlögum
Málsnúmer 2204001
Lagt fram bréf Rangárþings ytra, dags. 10. mars 2022, þar sem óskað er eftir að tvö óvirk byggðasamlög verði lögð niður. Um er að ræða byggðasamlögin Green Globe 21 í Rangárvallasýslu, kt. 520506-0200, og Atvinnu/ferðamálav Rang/V-Skaft, kt. 581203-3220. Gerð er tillaga að sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna skipi þeim skiptastjórnir sem í sitji sveitarstjórar aðildarsveitarfélaganna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að umræddum byggðasamlögum verði slitið og að Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri Ásahrepps verði skipaður í slitastjórnir þessara byggðasamlaga fyrir hönd Ásahrepps.
26.
Fundarskjár í fundarherbergi skrifstofu
Málsnúmer 2204004
Lagt fram tilboð TACTICA í 55 tommu fundarskjá fyrir fundaraðstöðu Ásahrepps að Laugalandi. Heildarkostnaður við kaup á skjánum og með uppsetningu í fundaraðstöðu er um kr. 250.000.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að kaupa umræddan fundarskjá og felur sveitarstjóra að semja við TACTICA um kaup á tækinu og uppsetningu þess.
27.
Framtíð félagsheimilisins Ásgarðs
Málsnúmer 2110025
Lagt fram tölvuskeyti Jóns Páls Hilmarssonar, lögmanns, þar sem hann fer yfir stöðu mála eftir fund sinn með landeigendum að Ási. Einnig lögð fram drög að grunnleigusamningi fyrir lóðina sem félagsheimilið Ásgarður stendur á.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða þetta upplegg Jóns Páls lögmanns og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram með honum að lausn málsins og að markmiðið sé að Ásgarður verði á endanum eign sveitarfélagsins.
28.
Samningur vegna reksturs ljósleiðarakerfi Ásaljóss
Málsnúmer 2204008
Lögð fram drög að þjónustusamningi um rekstur ljósleiðarakerfi Ásaljóss við Snerru ehf. Einnig lögð fram rekstrarhandbók fyrir rekstur á ljósleiðarakerfi ásamt yfirliti yfir skilgreind hlutverk í rekstri kerfisins og hlutverkaskiptingu aðila í rekstri Ásaljóss.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samning við Snerru ehf og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn fyrir sitt leyti.
29.
Tilboð í ábendingagátt sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu
Málsnúmer 2204012
Lagt fram tilboð frá Um að gera ehf í ábendingagátt fyrir öll sveitarfélögin í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Um er að ræða ábendingagátt sem væri sett upp á heimasíður hvers sveitarfélags fyrir sig. Hagræði yrði í því að sveitarfélögin gera sameiginlegan samning.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að taka þátt í verkefninu.
30.
Tilboð í fartölvur fyrir sveitarstjórnarfulltrúa næsta kjörtímabil
Málsnúmer 2204022
Lagt fram tilboð TRS í Dell Latitude 5420 fartölvur. Fyrirsjáanlegt er að skortur verður á fartölvum í vor og til þess að tryggja það að nýkjörin sveitarstórn hafi aðgang að góðum vinnutölvum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að láta taka frá 6 tölvur og tryggja með þeim hætti að tölvubúnaður verði til staðar fyrir hreppsnefnd sem kosin verður þann 14. maí n.k. Tilboð í 6 vélar er kr. 1.439.952. Því er jafnframt lagt til að hreppsnefnd samþykkti viðauka 1 við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins Ásahrepps fyrir árið 2022 að upphæð kr 1.440 þús sem færist á sameiginlegan kostnað (21). Viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Samþykkt samhljóða.
31.
Endurupptaka deiliskipulags lands úr Áskoti sem ekki hlaut staðfestingu 2006
Málsnúmer 2204028
Lagt fram tölvuskeyti Jakobs Þórarinssonar, dags. 12. apríl 2022. Í tölvuskeytinu kemur fram að deiliskipulag sem unnið var árið 2006 hafi ekki öðlast staðfestingu með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fresta afgreiðslu erindisins og sveitarstjóra falið að skoða lagalegan grundvöll fyrir ákvarðanatöku í samstarfi við Jón Pál lögmann.
32.
Lagning ljósleiðarastreng að Ferjukoti við Hald
Málsnúmer 2204029
Lögð fram tölvusamskipti vegna tilboða í lagningu ljósleiðara að Ferjukoti við Hald. Áætlaður kostnaður er um 1 mkr. Ef af verður þá verður Ásaljós framkvæmdaaðili og mun innheimta línugjald af þessari tengingu.
Lagt til að hreppsnefnd samþykki að húsið Ferjukot við Hald verði tengt ljósleiðara. Kostnaður við framkvæmdir eru áætlaðar kr. 1 milljón og Vatnajökuls þjóðgarður og Umhverfisstofnun eru tilbúin að greiða hluta kostnaðar við verkefnið. Hreppsnefnd samþykki að Ásaljós veiti framlagi í verkefnið upphæð kr 500 þús sem færist á Ásaljós (67).
Tillagan samþykkt með þremur (3) atkvæðum (ÁBÓ, BJJ og GJG) en tveir (2) á móti (EG og ES).
33.
Kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 14. maí 2022
Málsnúmer 2204032
Lögð fram kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga sem verða haldnar 14. maí 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir framlagða kjörskrá og felur sveitarstjóra að árita hana. Kjörskrár liggja frammi á skrifstofu Ásahrepps frá og með 23. apríl 2022. Til að öðlast kosningarétt í Ásahreppi þurfti viðkomandi að hafa haft lögheimili í sveitarfélaginu fyrir 6. apríl 2022.
Oddvita eða sveitarstjóra er veitt umboð hreppsnefndar Ásahrepps að gera leiðréttingar á kjörskrárstofni eftir því sem tilefni er til og í samræmi við kosningalög.
34.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps frá janúar til marsloka 2022.
Til kynningar.
35.
Bréf UTU; auglýsing deiliskipulags Röðuls (L198895)
Málsnúmer 2204002
Lagt fram bréf UTU, dags. 23. mars 2022, þar sem tilkynnt er um auglýsingu deiliskipulags Röðuls (L198895) í B-deild Stjórnartíðinda.
Til kynningar.
36.
Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga; átak um Hringrásarhagkerfið
Málsnúmer 2204014
Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 30. mars 2022 þar sem kynnt er bókun stjórnar sambandsins um átak um Hringrásarhagkerfið.
Til kynningar.
37.
Ársskýrsla HSK og fréttir af héraðsþingi
Málsnúmer 2204017
Lögð fram ársskýrsla HSK 2021 ásamt fréttum af héraðsþingi HSK.
Til kynningar.
38.
Aðalfundarboð Háskólafélags Suðurlands 2022
Málsnúmer 2204024
Lagt fram tölvuskeyti Háskólafélags Suðurlands, dags. 7. apríl 2022 þar sem boðaður er aðalfundur félagsins þann 25. apríl 2022.
Til kynningar.
39.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 18. maí 2022. Fundarstaður er skrifstofa Ásahrepps að Laugalandi og hefst fundur klukkan 8:30.
Til kynningar.