Hreppsnefnd Ásahrepps
54. fundur
20. maí 2026
kl.
08:30
-
09:45
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson
skrifstofustjóri
Nanna Jónsdóttir tók þátt í fundinum gegnum Teams fjarfundarkerfi.
Ísleifur Jónasson þakkaði fráfarandi hreppsnefnd fyrir samstarfið á líðandi kjörtímabili og óskar nýrri hreppsnend velfarnaðar í starfi.
Jafnfram voru fráfarandi sveitarstjóra þökkuð farsæl störf í þágu sveitarfélagsins og gott samstarf.
Dagskrá
1.
Fundargerð 325. fundar skipulagsnefndar UTU.
Lögð fram fundargerð 325. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt afgreiðslum byggingarfulltrúa UTU nr. 26-250.
1. Áskot 2 (L230171); byggingarheimild; gestahús #2605005.
Móttekin var umsókn þann 30.04.2026 um byggingarheimild fyrir að flytja fullbúið 64,5 m2 gestahús á landinu Áskot 2 (L230171) í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Áshrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa. Jafnframt skal liggja fyrir jákvæð umsögn Vegagerðarinnar vegna vegtengingar við Ásveg.
25. Afgreiðslur byggingarfulltrúa, 26-250 #2604004F.
Lögð fram fundaragerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 26-250.
Til kynningar.
Móttekin var umsókn þann 30.04.2026 um byggingarheimild fyrir að flytja fullbúið 64,5 m2 gestahús á landinu Áskot 2 (L230171) í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Áshrepps samþykkir samhljóða að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa. Jafnframt skal liggja fyrir jákvæð umsögn Vegagerðarinnar vegna vegtengingar við Ásveg.
25. Afgreiðslur byggingarfulltrúa, 26-250 #2604004F.
Lögð fram fundaragerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa UTU nr. 26-250.
Til kynningar.
2.
Fundargerð 50. fundar stjórnar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 50. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
3.
Fundargerð 135. fundar stjórnar UTU og ársreikningur UTU fyrir árið 2025
Lögð fram fundargerð 135. fundar stjórnar UTU ásamt ársreikningi UTU fyrir árið 2025.
Til kynningar.
4.
Fundargerð 93. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Lögð fram fundargerð 93. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 254. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 254. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 634. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 634. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 635. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 635. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 997. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
9.
Útivistarstígar í Ásahreppi
Lögð fram greinargerð vegna útivistarstígs sem gefið hefur verið vilyrði fyrir um fjárframlag á 51. fundi hreppsnefndar Ásahrepps.
Um er að ræða útivistarstíg "Sauðholt - Kálfholt - Lækjartún" sem samþykktur var á 51. fundi hreppsnefndar. Lagt fram til kynningar.
Lögð fram tillaga að samningi milli sveitarfélagsins og landeiganda. Tillagan rædd og henni vísað til nýkjörinnar sveitarstjórnar.
Lögð fram tillaga að samningi milli sveitarfélagsins og landeiganda. Tillagan rædd og henni vísað til nýkjörinnar sveitarstjórnar.
10.
Styrktarbeiðni, Velferð - blað Hjartaheilla
Hjartaheill óskar eftir stuðningi við blað þeirra Velferð.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja Hjartaheill um 10.000 kr.
11.
Styrktarbeiðni, vegna útgáfu Döffblaðsins
Félag heyrnarlausra óskar eftir styrk vegna útgáfu Döffblaðsins, en blaðinu verður dreift um Suðurland vegna Norrænnar menningarhátíðar heyrnarlausra sem haldin verður á Selfossi í júlí.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja útgáfu Döffblaðsins um 10.000 kr.
12.
Styrktarbeiðni, Krabbameinsfélagið Framför
Krabbameinsfélagið Framför óskar eftir styrk vegna starfsemi félagsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja Krabbameinsfélagið Framför um 10.000 kr.
13.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps 2022-2026
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps frá 1. janúar til 30. apríl 2026.
Til kynningar.
14.
Drög að skýrslu um úti- og bæjarhátíðir frá framkvæmdateymi Öruggara Suðurlands
Lögð fram drög að skýrslu framkvæmdateymis Öruggara Suðurlands um úti- og bæjarhátíðir með það að markmiði að efla öryggi og forvarnir, sérstaklega með börn og ungmenni í huga.
Til kynningar.
15.
Ársreikningur íþróttafélagsins Garps 2025 ásamt starfsskýrslu
Lagður fram ársreikningur Íþróttafélagsins Garps 2025 ásamt ársskýrslu, fundargerð aðalfundar og ályktunum aðalfundar, sem haldinn var 8. apríl 2026.
Til kynningar.
16.
Ársreikningur Orlofs húsmæðra 2025
Lagður fram ársreikningur Orlof húsmæðra 2025 ásamt skýrslu Orlofsnefndar.
Til kynningar.
17.
Lokaskýrsla Austurleiðarverkefnis
Lögð fram lokaskýrsla Austurleiðarverkefnis Rótarýklúbbs Rangæinga.
Til kynningar.