Hreppsnefnd Ásahrepps
55. fundur
18. maí 2022
kl.
08:30
-
10:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir
oddviti hrepssnefndar
Brynja Jóna Jónasdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Egill Sigurðsson
hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Guðmundur Jóhann Gíslason
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 238. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 238. fundar skipulagsnefndar UTU ásmat fundargerð 22-162. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
Mál nr. 1; Hrauneyjafossstöð, Sigöldustöð, Vatnsfellsstöð og Búðarhálsstöð; Virkjanir; Deiliskipulag og deiliskipulagsbreyting - 2204066
Lögð er fram skipulagslýsing fyrir gerð deiliskipulags fyrir núverandi virkjanir á Þjórsár- Tungnaársvæðinu. Unnið verður deiliskipulag fyrir eftirtaldar virkjanir; Hrauneyjafossstöð, Sigöldustöð og Vatnsfellsstöð ásamt Vatnsfellsveitu. Auk þess verður gerð breyting á deiliskipulagi Búðarhálsstöðvar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál nr. 16; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-162 - 2204001F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-162.

2.
Fundargerð 239. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 239. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-163.
Mál nr. 1; Hellatún lóð F L201670; Breytt heiti lóðar - 2204054.
Lögð er fram umsókn frá Ansgar Bruno Jones er varðar breytt heiti lóðar. Í breytingunni felst að lóðin Hellatún lóð F fái staðfangið Hrafnatún.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við breytt staðfang lóðar.
Mál nr. 2; Endurskoðun aðalskipulags Ásahrepps 2020-2032 - 2002038.
Lögð er fram tillaga að heildarendurskoðun aðalskipulags Ásahrepps 2020-2032 til samþykktar eftir auglýsingu í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir nýtt aðalskipulag sveitarfélagsins eftir auglýsingu. Hreppsnefnd telur að brugðist hafi verið við athugasemdum og umsögnum með fullnægjandi hætti. Hreppsnefnd óskar eftir því við Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Mál nr. 31; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-163 - 2204004F.
fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-163 lögð fram til kynningar.

3.
Slit á óvirkum byggðasamlögum
Lögð fram fundargerð slitastjórnar, dags. 22. apríl 2022. Í fundargerð kemur fram tillaga slitastjórnar um fjárhagslegt uppgjör og niðurlagningu á byggðasamlögunum Green Globe 21 í Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu bs og Atvinnu- og ferðamálaverkefni Rangárþings og V-Skaftafellssýslu bs.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða tillögu slitastjórnar.
4.
Fundargerð umhverfisnefndar Ásahrepps, dags. 2. maí 2022
Lögð fram fundargerð umhverfisnefndar Ásahrepps, dags. 2. maí 2022.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
5.
Fundargerð 17. fundar vinnuhóps um endurskoðun Aðalskipulags Ásahrepps 2020-2032
Lögð fram fundargerð 17. fundar vinnuhóps um endurskoðun Aðalskipulags Ásahrepps 2020-2032.
Vísað er til sérstaks dagskrárliðar síðar á fundinum þar sem endurskoðað Aðalskipulag Ásahrepps er til umfjöllunar.
Til kynningar.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 221. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs
Lögð fram fundargerð 221. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða ársreikning byggðarsamlagsins fyrir rekstrarárið 2021.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
7.
Fundargerð 26. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs
Lögð fram fundargerð 26. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga bs. ásamt ársreikningi fyrir rekstrarárið 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir ársreikning 2021 fyrir sitt leyti.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
Fundargerð að öðru leyti til kynningar.
8.
Fundargerð 10. fundar stjórnar Lundar
Lögð fram fundargerð 10. fundar stjórnar Lundar.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 218. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Lögð fram fundargerð 218. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands ásamt ársskýrslu 2021.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 581. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 581. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 909. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 909. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
12.
Tillaga að samþykkt um hreinsistöðvar og rotþrær í Ásahreppi
Lögð fram drög að samþykkt um fráveitur í Ásahreppi eftir yfirferð Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Gerðar hafa verið smávægilegar formbreytingar á samþykktinni, en ætti nú að vera tilbúin til staðfestingar ráðuneytis.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrirliggjandi samþykkt samhljóða og felur sveitarstjóra að senda hana til ráðuneytis til staðfestingar og birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fyrirliggjandi samþykkt samhljóða og felur sveitarstjóra að senda hana til ráðuneytis til staðfestingar og birtingar í B-deild Stjórnartíðinda.
13.
Endurskoðað rammasamkomulag um samstarf sveitarfélaganna Ásahrepps og Rangárþings ytra
Lögð fram til annarrar og síðari umræðu rammasamkomulag Rangárþings ytra og Ásahrepps ásamt fylgiskjölum, sem samþykkt var á fundi hreppsnefndar Ásahrepps á 52. fundi þann 16. mars s.l.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt endurskoðað rammasamkomulag ásamt fylgiskjölum og vísar til bókunar hreppsnefndar Ásahrepps á 52. fundi sínum, dagskrárliður 26. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti að samþykktir byggðasamlaganna Húsakynni bs og Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs. verði birtar í B-deild Stjórnartíðinda.
14.
Endurskoðun Aðalskipulags Ásahrepps
Lagt fram endurskoðað aðalskipulag Ásahrepps 2020-2032 ásamt fylgiskjölum að lokinni auglýsingu og viðbragða vegna fram kominna athugasemda.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlögð gögn er varðar heildar endurskoðun aðalskipulags Ásahrepps eftir auglýsingu. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar sem sveitarstjórn telur að búið sé að bregðast við og svara með fullnægjandi hætti innan greinargerðar skipulagsins og í framlögðu samantektarskjali. Hreppsnefnd mælist til þess að aðalskipulagstillagan taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 2. og 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr.123/2010 eftir yfirferð Skipulagsstofnunar.
15.
Bréf Golfklúbbsins Hellu, dags.18. apríl 2022; fjárhagsvandi
Lagt fram bréf Golfklúbbsins Hellu, dags. 18. apríl 2022 þar sem óskað er eftir styrkjum eða framlögum frá sveitarfélögum í Rangárvallasýslu vegna tjóna sem hlutust á eignum að Strönd síðasta vetur.
Hreppsnefnd Ásahrepps vísar málinu til nýkjörinnar hreppsnefndar, þar sem um er að ræða beiðni um útgjöld sem ekki eru innan fjárhagsáætlunar Ásahrepps.
16.
Söluumboð vegna Giljatanga 7
Komið hefur fram ábending frá sýslumanni að skýrara verði að kveða á um heimild til undirritunar veðsetningarheimildar til handa kaupenda Giljatanga 7.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita sveitarstjóra, Valtý Valtýssyni fullt umboð til að undirrita veðsetningarheimild til kaupenda Giljatanga 7 að Laugalandi. Að öðru leyti er vísað í fyrri samþykktar hreppsnefndar Ásahrepps, dags. 20. október 2021 á 47. fundi hreppsnefndar.
17.
Styrkbeiðni skólablaðsins Ýmis, Hellu
Lagt fram tölvuskeyti frá umsjónarkennara 10. bekkjar, Grunnskólanum Hellu, þar sem óskað er eftir að Ásahreppur kaupi auglýsingu í skólablaðið Ýmir.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að kaupa heilsíðu auglýsingu á kr. 12.000, enda gert ráð fyrir þeim útgjöldum í fjárhagsáætlun Ásahrepps 2022.
18.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps fyrir tímabilið 1.janúar - 30. apríl 2022.
Til kynningar.
19.
Ákvörðun um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða.
Lögð fram bréf Ferðamálastofu, dags. 11. apríl 2022 og 10. maí 2022.
Um er að ræða ákvörðun um styrkveitingu úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Eftirtöld verkefni fengu úthlutaðan styrk:
Gönguleið á Þóristind, kr. 6.240.000
Ganga fyrir alla á Vatnsfell, kr. 6.240.000
Búðarhálsfoss í Þjórsá, kr. 5.200.000
Kláfurinn á Tungnaá, kr. 6.184.000
Styrkumsókn vegna leitarmannahúss við Hald var synjað.

20.
Skýrsla starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 382018
Lögð fram skýrsla starfshóps um heildarendurskoðun laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningaþarfir.
Til kynningar.
21.
Bréf Mennta- og barnamálaráuneyti; móttaka barna á flótta frá Úkraínu
Lagt fram bréf mennta- og barnamálaráðuneyti, dags. 6. maí 2022, þar sem kynntur er stuðningur við sveitarfélög vegna móttöku barna á flótta frá Úkraínu.
Til kynningar.
22.
Bréf MAST vegna fuglaflensu
Lagt fram bréf MAST, dags. 25. apríl 2022, þar sem veittar eru upplýsingar vegna greiningar á skæðri fuglaflensu á Íslandi í apríl 2022.
Til kynningar.
23.
Stjórnar- og verndaráætlun VJÞ; umsagnarferli
Lagt fram tölvuskeyti Vatnajökulsþjóðgarðs, dags. 26. apríl 2022, þar sem kynnt er úrvinnsla umsagna vegna 3. útgáfu stjórnunar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
24.
Framlög til sveitarfélaga vegna samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna
Lagt fram yfirlit yfir áætluð framlög til sveitarfélaga til að mæta kostnaði vegna samþættingar í þjónustu í þágu farsældar barna á árinu 2022.
Fyrirsjáanlegt er að aukinn kostnaður mun verða hjá félagsþjónustunni við innleiðingu farsældarfrumvarpsins og er þessu framlagi ætlað að mæta þeim auknu útgjöldum.
Til kynningar.
Til kynningar.