Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

6. fundur
16. nóvember 2022 kl. 08:30 - 14:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Reynir Örn Pálmason
Kristín Ósk Ómarsdóttir
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Beiðni Sigurhæða um að hitta hreppsnefnd Ásahrepps
Málsnúmer 2208026
2.
Fundargerð 248. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2211014
Mál nr. 1; Lækjartún II L215415; Tengivirki; Deiliskipulagsbreyting - 2209081
Lögð er fram umsókn frá Sveitakarlinum ehf. er varðar deiliskipulagsbreytingu í landi Lækjartúns II L215145. Með deiliskipulagsbreytingunni verður bætt við 5 lóðum austan við lóð tengivirkis. Á nýjum lóðum er heimilt að byggja upp hreinlegan orkufrekan iðnað. Með breytingunni stækkar skipulagssvæðið úr ríflega 2 ha í um 8 ha.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða þessa breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
Hreppsnefnd Ásaherpps samþykkir samhljóða að óska eftir fundi með landeiganda til að fá umræðu um fyrirhugaðar byggingaframkvæmdir á umræddum lóðum.

Mál nr. 2; Áskot L165263; Deiliskipulag - 2204011
Lögð er fram tillaga er varðar nýtt deiliskipulag innan jarðar Áskots í Ásahreppi eftir auglýsingu. Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarreita og byggingarheimilda sem taka m.a. til vélaskemmu, reiðhallar og hesthúss, viðbyggingar við núverandi skemmu og reita fyrir gistihús og tækjaskúr. Umsagnir sem bárust við auglýsingu málsins lagðar fram ásamt uppfærðum gögnum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Hreppsnefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Hreppsnefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Mál nr. 35; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-172 - 2210001F
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-172.
3.
Fundargerð 4. fundar félagsmálanefndar
Málsnúmer 2211019
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir endurskoðaðar reglur um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sitt leyti.
4.
Fundargerð 5. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2211024
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fram lagða fjárhagsáætlun fyrir rekstrarárið 2023 ásamt gjaldskrá Odda bs. fyrir árið 2023.
5.
Fundargerð 7. fundar seyrustjórnar
Málsnúmer 2211032
Hreppsnefnd Ásarhrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi fjárhagsáætlun ársins 2023 ásamt gjaldskrá Hrunamannahrepps 2023 fyrir aukalosanir á rotþróm, fyrir sitt leyti.
6.
Fundargerð 96. fundar stjórnar UTU.
Málsnúmer 2211034
Hreppsnefnd Ásahepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi fjárhagsáætlun UTU fyrir árin 2023-2026.
7.
Nefnd um göngu-, reiðhjóla- og reiðleiðir í Ásahreppi - 1
Málsnúmer 2211001F
Fundargerð staðfest samhljóða.
8.
Fundargerð 1. fundar stjórnar Húsakynna bs kjörtímabilið 2022-2026
Málsnúmer 2211018
Til kynningar.
9.
Fundargerð 224. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallassýslu bs
Málsnúmer 2211013
Til kynningar.
10.
Fundargerð 74. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs
Málsnúmer 2211022
Til kynningar.
11.
Fundargerð 5. fundar seyrustjórnar
Málsnúmer 2211030
Til kynningar.
12.
Fundargerð 6. fundar seyrustjórnar
Málsnúmer 2211031
Til kynningar.
13.
Fundargerð 95. fundar stjórnar UTU
Málsnúmer 2211023
Til kynningar.
14.
Fundargerð aðalfundar UTU 2022
Málsnúmer 2211033
Til kynningar.
15.
Fundargerð 314. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands
Málsnúmer 2211026
Til kynningar.
16.
Fundargerð 20. fundar nefndar um svæðisskipulag Suðurhálendis
Málsnúmer 2211011
Til kynningar.
17.
Fundargerð 587. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2211010
Til kynningar.
18.
Fundargerð 52. fundara Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2211025
Til kynningar.
19.
Fundargerð 914. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2211020
Til kynningar.
20.
Ákvörðun um álagningu gjalda og gjaldskrár 2023
Málsnúmer 2211027
1. Álagningarprósenta útsvars 2023
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að álagningarprósenta útsvars skuli vera 14,52%.

2. Álagningarhlutfall fasteignaskatts 2023
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að álagningaprósenta fasteignaskatts verði:
A: 0,22% af fasteignamati á íbúðarhúsnæði, bílageymslur, geymsluhúsnæði, lönd og útihús í landbúnaði og sumarhús, allt með tilheyrandi lóðum.
B: 1,32% af fasteignamati sjúkrastofnana skv. lögum um heilbrigðisþjónustu, skóla, heimavista, leikskóla, íþróttahúsa og bókasafna, að meðtöldum lóðum og lóðarréttindum.
C: 1,65% af fasteignamati allra annarra fasteigna með tilheyrandi lóðum, þó að undanskildum fasteignum í 0 flokki.
Afsláttur af fasteignaskatti til fasteignaeigenda sem eru 67 ára og eldri, eða 75% öryrkjar eða meira, og eiga lögheimili í viðkomandi fasteign fer eftir samþykkt um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti sem samþykkt var af hreppsnefnd Ásahrepps 13. desember 2017.
Gjalddagar verða sex (6) talsins árið 2022, fyrsta hvers mánaðar frá 1. febrúar til 1. júlí. Þar sem heildarupphæð er undir kr. 20.000 er einn gjalddagi, 1. apríl. Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga. Ekki verða sendir út greiðsluseðlar né álagningarseðlar í bréfpósti. Álagningarseðlar eru aðgengilegir á heimsíðunni www.island.is. Stofnuð verður krafa í heimabanka með sama hætti og áður sem hægt er að greiða rafrænt. Þeir sem óska þess að fá áfram send skjöl með bréfpósti gefst kostur á því og er bent á að hafa samband við skrifstofu hreppsins.

3. Gjaldskrá kaldavatnsveitu 2023
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vatnsgjald verði ákveðið í sérstakri gjaldskrá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs.

4. Gjaldskrá vegna meðhöndlunar úrgangs 2023
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gjald fyrir meðhöndlun úrgangs verði samkvæmt gjaldskrá Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs fyrir sorphirðu og sorpeyðingu.

5. Gjaldskrá íþróttamiðstöðvarinnar á Hellu, Laugalandi og Þykkvabæ
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gjaldtaka vegna almennrar notkunar íþróttamiðstöðvanna fari eftir sameiginlegri gjaldskrá Rangárþing ytra og Ásahrepps.

6. Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa 2022. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhlóða að innheimta ekkert árlegt rotþróargjald. Kostnaður af reglubundinnitæmingu rotþróa verði greiddur úr sveitarsjóði.
Kostnaður vegna aukalosana verði greiddur af þjónustuþega skv. gjaldskrá vegna móttöku og hreinsunar á seyru í Hrunamannahreppi.

7. Heimgreiðslur
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að reglur um heimgreiðslur, frá nóvember 2019, verði óbreyttar og hámarksupphæð verði kr. 80.000.

8. Íþrótta- og tómstundasstyrkur
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að reglur um íþrótta- og tómstundastyrki, frá nóvember 2019, verði óbreyttar og styrkur geti numið allt að kr. 75.000.

9. Leikskólagjald
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrri ákvörðun hreppsnefndar frá desember 2017 að veittur verði 50% afsláttur af gjaldskrá Odda bs. árið 2022 fyrir börn í leikskóla. Ekki verði lengur veittur 100% afsláttur fyrir 5 ára börn.

10. Mötuneytiskostnaður leik- og grunnskólabarna
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrri ákvörðun hreppsnefndar frá desember 2017 að greitt verði áfram 100% mötuneytisgjald fyrir öll leik- og grunnskólabörn. Niðurgreiðslurnar gilda fyrir börn með lögheimili og aðsetur í Ásahreppi.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða tillöguna í heild sinni.
21.
Viðauki við fjárhagsáætlun 2022 vegna byggðasamlaga
Málsnúmer 2211021
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi Viðauka 5 og felur sveitarstjóra í samvinnu við KPMG að senda hann inn til lögboðinna aðila.
22.
Fjárhagsáætlun Ásahrepps 2023-2026
Málsnúmer 2210031
Farið var yfir drög að fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árin 2023 - 2026.
Fjárhagsáætluninni vísað til næsta fundar hreppsnefndar Ásahrepps til lokaafgreiðslu.
23.
Framtíð félagsheimilisins Ásgarðs
Málsnúmer 2110025
Búið er að fá aðila til að setja upp ofna í húsinu og koma hita á húsið.
24.
Beini um fjárstyrk til Sigurhæða árið 2023
Málsnúmer 2211015
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fresta málinu.
25.
Landssambandsfundur Soroptimistasambands Íslands
Málsnúmer 2211016
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hafna erindinu.
26.
Styrkbeiðni vegna aðventuhátíðar að Laugalandi
Málsnúmer 2211017
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að greiða umbeðinn styrk.
27.
Umsókn um framlag sveitarfélaga vegna sundleikfimi
Málsnúmer 2211028
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að vísa þessu erindi til Héraðsnefndar Rangárvallasýslu.
28.
Ósk um tilnefningu í vatnasvæðanefndir
Málsnúmer 2211029
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að skipa Ísleifur Jónasson sem aðalmann og Nanna Jónsdóttir sem varamann.
29.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Til kynningar.
30.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Til kynningar.