Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

6. fundur
16. september 2026 kl. 08:30 - 10:45
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Gréta Vilborg Guðmundsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Karl Ölvisson varamaður í hreppsnefnd
Starfsmenn
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson skrifstofustjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 3. fundar Húsakynna bs.
Málsnúmer 2609004
Lögð fram fundargerð 3. fundar Húsakynna bs.Í henni er óskað eftir viðbótarframlagi, vegna framkvæmda við Laugaland, í samræmi við eignarhlut sveitarfélaganna tveggja.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fundargerðina samhljóða fyrir sitt leyti.
Jafnframt samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða að staðfesta aukið framlag samkvæmt beiðni Húsakynna bs., í samræmi við eignarhluta Ásahrepps.

Samhliða breytast upphæðir fjárfestinga í fjárhagsáætlun: Liðurinn Eignir hjá Eignasjóði (Laugaland m.m.) hækka um 35 milljónir, liðurinn Gatnagerð lækkar um 15 milljónir og liðurinn Göngu-, reiðhjóla- og reiðstígagerð lækkar um 20 milljónir.

Skrifstofustjóra er falið að ganga frá breytingu á fjárhagsáætlun i samvinnu við KPMG og tilkynni til viðkomandi aðila.
2.
Fundargerð 332. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2609013
Lögð fram fundargerð 332. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál 1.
Ásmúlasel L224543; Úr landbúnaðarlandi í frístundabyggð; Aðalskipulagsbreyting - 2603067

Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar, eftir kynningu skipulagslýsingar, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Ásahrepps 2020-2032. Breytingin felur í sér afmörkun nýs landnotkunarreits fyrir frístundabyggð í landi Ásmúlasels. Umsagnir bárust við kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða aðalskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.




Mál 2.

Viðarás L232456; Staðfesting 2ja lóða og skilmálar; Deiliskipulagsbreyting - 2608066

Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Viðaráss L232456. Í breytingunni felst afmörkun tveggja nýrra lóða, Asparáss 4.027,0 m² og Asparásrima 27.294,1 m², ásamt nýrri vegtengingu að þeim og að Ás 3 III-1 land.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
3.
Fundargerð 4. fundar Odda bs.
Málsnúmer 2609014
Lögð fram fundargerð 4. fundar Odda bs.
Fundargerð 4. fundar Odda bs. lögð fram til kynningar.

Vegna liðar 9. um mótun nýrrar skólastefnu Odda bs. er fyrirhugað að stofna vinnuhóp þar sem einn fulltrúi Ásahrepps mun eiga setu í. Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að Kristín Hreinsdóttir verði aðalmaður og Guðmundur Einarsson sem varamaður.
4.
Fundargerð 1. fundar héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga
Málsnúmer 2609001
Lögð fram fundargerð 1. fundar héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga
Til kynningar
5.
Fundargerð 26-261, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2609002
Lögð fram fundargerð með afgreiðslum byggingarfulltrúa 26-261.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 26-262, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2609012
Lögð fram fundargerð 26-262 með afgreiðslum byggingarfulltrúa.
Til kynningar.
7.
Aðalfundargerð Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2609005
Lögð fram fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 93. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2609007
Lögð fram fundargerð 93. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 94. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2609008
Lögð fram fundargerð 94. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 95. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2609009
Lögð fram fundargerð 95. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 96. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2609010
Lögð fram fundargerð 96. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 1001. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2609003
Lögð fram fundargerð 1001. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
13.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps 2022-2026
Málsnúmer 2101011
Lögð fram drög að rekstraryfirliti sveitarsjóðs fyrir tímabilið janúar til ágúst 2026.
Til kynningar.
14.
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2605025
Lögð fram drög að stefnumörkun næstu fjögurra ára fyrir Sambandið.
Til kynningar
15.
Beiðni Rangárþings ytra um lán frá Ásahreppi vegna framkvæmda Húsakynna bs.
Málsnúmer 2609011
Tekið fyrir erindi frá Rangárþingi ytra, þar sem óskað er eftir láni frá Ásahreppi vegna framkvæmda á Laugalandi. Gert er ráð fyrir að fjárfesting Húsakynna bs. fyrir árið 2026 hækki um 100 milljónir króna, með framlagi Ásahrepps sem fjármagnar hlut Rangárþings ytra í þessari fjárfestingu.Jafnframt er tekið fram í bókun RY að við komandi framkvæmdaáfanga á Laugalandi verði sjálfstæð fjármögnun sveitarfélagsins tryggð fyrirfram innan samþykkts ramma nýrrar framtíðaráætlunar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hækka lánalínu til Rangárþings ytra, sem var upprunalega samþykkt á 45. fundi hennar, 19. nóvember sl.

Heildarfjárfesting ársins 2026 verður þá 200 milljónir og mun Ásahreppur fjármagna hluta Rangárþings ytra í henni í samræmi við eignarhluta sveitarfélaganna í Húsakynnum bs. Miðað er við uppgefin skiptihlutföll 32,75% móti 67,25% og er viðbótarupphæðin sem um ræðir því allt að 67.250.000 kr.

Lánið komi til greiðslu eftir 5 ár, án vaxta en verðtryggt. Lánið kemur til lækkunar á handbæru eigin fé Ásahrepps og til hækkunar á langtímakröfum.

Skrifstofustjóra er farið að ganga frá viðauka við fjárhagsáætlun í samvinnu við KPMG og upplýsa viðkomandi aðila.
16.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2605028
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður miðvikudaginn 7. október, klukkan 8:30, á skrifstofu hreppsins á Laugalandi.
Til kynningar.