Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

7. fundur
9. desember 2022 kl. 08:30 - 11:45
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Reynir Örn Pálmason hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fulltrúar lögreglunnar og almannavarna koma á fund hreppsnefndar
Málsnúmer 2212006
Grímur Hergeirsson flutti kynningu um starfsemi lögreglunnar á Suðurlandi. Umræður urðu eftir kynningu Gríms.
Hreppsnefnd þakkar fulltrúum lögreglunnar fyrir góða og upplýsandi kynningu á starfsemi lögreglunnar á Suðurlandi og leggur áherslu á öflugt forvarnarstarf lögreglunnar.
2.
Fundargerð 2. fundar stjórnar Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2212003
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Vatnsveitunnar fyrir rekstrarárið 2023.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
3.
Fundargerð 2. fundar stjórnar Húsakynna bs.
Málsnúmer 2212004
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Húsakynna bs. fyrir rekstrarárið 2023.
Hreppsnefnd óskar eftir að fá sundurliðaða framkvæmda- og viðhaldsáætlun fyrir Húsakynni bs til fjögurra ára.
Aðrir dagskrárliðir til kynningar.
4.
Fundargerð 28. fundar stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga.
Málsnúmer 2212005
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fjárhagsáætlun Tónlistarskólans fyrir rekstrarárið 2023.
Aðrir dagskrárliðir til kynningar.
5.
Fundargerð 67. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2212008
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrir sitt leyti fram lagða fjárhagsáætlun fyrir rekstrarárið 2023.
Að öðru leyti er fundargerð til kynningar.
6.
Fundargerð 2. fundar Héraðsnefndar Rangæinga
Málsnúmer 2212009
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti framlagða fjárhagsáætlun fyrir rekstrarárið 2023.
Aðrir dagskrárliðir til kynningar.
7.
Fundargerð stjórnar Skógasafns, dags. 28. nóvember 2022
Málsnúmer 2212011
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti fram lagða fjárhagsáætlun fyrir rekstrarárið 2023.
Aðrir dagskrárliðir til kynningar.
8.
Fundargerð 66. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Málsnúmer 2212007
Til kynningar.
9.
Fundargerð stjórnar Skógasafns, dags. 21. október 2022
Málsnúmer 2212010
Til kynningar.
10.
Fjárhagsáætlun Ásahrepps 2023-2026
Málsnúmer 2210031
Sveitarstjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætluninni og skýrði ýmsa liði.

Helstu kennitölur áætlunarinnar fyrir samstæðureikning rekstrarárið 2023 eru (í þús. kr.):

Tekjur: 395.615
Gjöld: 377.868
Fármagnstekjur: 7.577
Rekstrarniðurstaða jákvæð: 7.094

Fastafjármunir: 408.713
Veltufjármunir: 157.198
Eigir samtals: 565.911

Eigið fé: 506.473
Langtímaskuldir: 7.315
Skammtímaskuldir: 51.812
Eigið fé og skuldir samtals: 565.911

Gert er ráð fyrir eftirfarandi fjárfestingum á árinu 2022 (í þús. kr.):

Gatnagerð: 13.000
Götulýsing og plan: 1.638
Reiðvegagerð: 15.000
Viðgerðir á Ásgarði: 15.000
Brunavarnir Rangárvallasýslu bs: 225
Seyrustaðir: 40
Samtals fjárfesting: 44.903

Í áætluninni er gert ráð fyrir að hætt verði að greiða fyrir rafmagnsnotkun ljósastaura á bæjarhlöðum og mun kostnaður færast yfir á þá sem nýta umrædda ljósastaura.

Oddviti bar upp fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árin 2023-2026 til samþykktar. Tillagan var samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að senda lögbundnum aðilum afrit af samþykktri áætlun í samráði við KPMG endurskoðun.

Með breytingu sem gerð var á reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga á árinu 2021, þurfa sveitarfélög nú að færa í samantekin reikningsskil sín, sem og fjárhagsáætlanir, hlutdeild sína í byggðasamlögum, sameignarfélögum, sameignarfyrirtækjum og öðrum félögum með ótakmarkaðri ábyrgð.

Í tilviki sveitarfélagsins Ásahrepps á þetta við um eftirtalin samrekstrarverkefni:
1.
Byggðasamlagið Bergrisinn bs.
2.
Byggðasamlagið Umhverfis- og tæknisvið Uppsveita bs.
3.
Byggðasamlagið Oddi bs.
4.
Byggðasamlagið Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps bs.
5.
Byggðasamlagið Húsakynni bs.
6.
Byggðasamlagið Brunavarnir Rangárvallasýslu bs.
7.
Byggðasamlagið Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu bs.
8.
Byggðasamlagið Sorpstöð Rangárvallasýslu bs.
9.
Byggðasamlagið Tónlistarskóli Rangæinga bs.
10.
Samstarfsverkefni um Héraðsnefnd Rangæinga og þar með Skógasafn og Héraðsskjalasafn Rangæinga.
11.
Samstarfssamningur um sameiginlegan seyrurekstur að Flúðum með sveitarfélögum í uppsveitum Árnessýslu og Flóahreppi.

Áætlanir framangreindra rekstrareininga fyrir árin 2023 til 2026 um rekstur, efnahag og sjóðsstreymi liggja ekki fyrir og því hafa áhrif þeirra ekki verið færð í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins. Þegar samþykktar fjárhagsáætlanir framangreindra rekstrareininga liggja fyrir á viðeigandi formi er fyrirhugað að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2023 til 2026.
11.
Fyrirspurn vegna tómstundastyrks Ásahrepps
Málsnúmer 2212001
Hreppsnefnd Ásahrepps er samþykk því að kostnaður ungmenna vegna líkamsræktarstöðva falli undir íþrótta- og tómstundastyrk Ásahepps.
12.
Jólakveðja í skólaútvarp Grunnskólans á Hellu
Málsnúmer 2212002
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að kaupa jólakveðju að upphæð kr. 6.000.
13.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Til kynningar.