Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

7. fundur
7. október 2026 kl. 08:30 - 12:00
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Gréta Vilborg Guðmundsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Emil Þórðarson hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson skrifstofustjóri
Dagskrá
1.
Umhverfisnefnd Ásahrepps - 2
Málsnúmer 2609003F
Lögð fram fundargerð 2. fundar Umhverfisnefndar Ásahrepps.
Lögð fram fundargerð 2. fundar Umhverfisnefndar Ásahepps, sem haldinn var 22. september sl.
1.1 2609015 - Staða stígagerða 2026
1.2 2609016 - Nýjar leiðir í stofnstígagerð
1.3 2609017 - Næstu skref
2.
Fundargerð 333. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2610015
Lögð fram fundargerð 333. fundar skipulagsnefndar UTU.
Mál 1. Ásmúlasel L224543; Frístundabyggð í landi Ásmúlasels; Deiliskipulag - 2609003
Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi frístundabyggðar sem tekur til Ásmúlasels L224543. Í deiliskipulaginu felst meðal annars afmörkun 10 frístundalóða, 5.632 - 8.338 fm að stærð.

Sveitarstjórn Ásahrepps samþykkir að deiliskipulagið verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.

Samþykkt með fjórum atkvæðum ÍJ, KH, HBH, EÞ. GVG situr hjá.


Mál 2. Kastalabrekka (L165297); byggingarheimild; starfsmannahús - 2609046
Móttekin var umsókn þann 16.09.2026 um byggingarheimild fyrir 73,6 m2 starfsmannahúsi á jörðinni Kastalabrekka (L165297) í Ásahreppi.

Fyrir liggur að jarðrask hefur átt sér stað vegna fyrirhugaðs mannvirkis án þess að leyfi til framkvæmdarinnar lægi fyrir. Jafnframt hefur Minjastofnun Íslands bent á að framkvæmdasvæðið sé innan eldra heimatúns þar sem mögulegar fornleifar kunna að vera til staðar og að nauðsynleg fornleifakönnun eða vettvangsathugun hafi ekki farið fram áður en framkvæmdir hófust.

Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir umrætt svæði. Að mati skipulagsnefndar liggja því ekki fyrir fullnægjandi upplýsingar til að taka efnislega afstöðu til umsóknarinnar að svo stöddu.
Skipulagsnefnd UTU telur nauðsynlegt að fyrir liggi niðurstaða vettvangsathugunar og afstaða Minjastofnunar Íslands um hvort frekari rannsóknir eða verndaraðgerðir séu nauðsynlegar.

Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að afgreiðslu málsins verði frestað þar til þær upplýsingar liggja fyrir.
Skipulagsnefnd UTU ítrekar jafnframt að allar framkvæmdir eru óheimilaðar.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að afgreiðslu málsins verði frestað þar til tilgreindar upplýsingar liggja fyrir.
3.
1. fundur Samráðsnefndar Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2610004
Lögð fram fundargerð 1. fundar Samráðsnefndar ytra og Ásahrepps.
Til kynningar.
4.
Fundargerð 258. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu
Málsnúmer 2610001
Lögð fram fundargerð 258. fundar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 40. fundar stjórnar Tónlistaskóla Rangæinga
Málsnúmer 2610003
Lögð fram fundargerð 40. fundar stjórnar Tónlistaskóla Rangæinga.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 102. fundar Félags- og Skólaþjónustu (FSRV)
Málsnúmer 2610010
Lögð fram fundargerð 102. fundar Félags- og Skólaþjónustu (FSRV).
Til kynningar.
7.
Fundargerð 26-263, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2610006
Lögð fram fundargerð fundar 26-263 með afgreiðslum byggingarfulltrúa.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 26-264, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2610005
Lögð fram fundargerð 26-264 með afgreiðslum byggingarfulltrúa.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 26-265, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2610007
Lögð fram fundargerð 26-265 með afgreiðslum byggingarfulltrúa.
Til kynningar.
10.
7. fundur Almannavarnanefndar Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu
Málsnúmer 2610011
Lögð fram fundargerð 7. fundar Almannavarnanefndar Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu
Til kynningar.
11.
Fundargerð 638. fundar SASS
Málsnúmer 2610002
Lögð fram fundargerð 638. fundar SASS.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 95. stjórnarfundar Bergrisans bs.
Málsnúmer 2610009
Lögð fram fundargerð 95. stjórnarfundar Bergrisans bs.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 97. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2610012
Lögð fram fundargerð 97. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2610013
Lögð fram fundargerð 1002. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfelaga.
Til kynningar.
15.
Samráðsfundur oddvita og skrifstofustjóra með Vegagerðinni
Málsnúmer 2609018
Oddviti og skrifstofustjóri funduðu með Vegagerðinni 18. september, þar sem farið var yfir ástand vega í sveitarfélaginu og fleiri atriði.
Til kynningar.
16.
Stofnfundur Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga
Málsnúmer 2610016
Lagt fram fundarboð um stofnfund Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga, sem haldinn verður 7. október.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita Ísleifi Jónssyni umboð til að vera fulltrúi á stofnfundinum.
17.
Fyrirspurn frá Öryrkjabandalagi Íslands varðandi Framkvæmdasjóð Jöfnunarsjóðs
Málsnúmer 2610017
Lagt fram bréf frá ÖBÍ réttindasamtökum, þar sem spurt er um nýtingu á fjármagni sem er merkt Ásahreppi í úthlutun til Bergrisans til aðgengisframkvæmda. Einnig ábending um styrki til lyftuframkvæmda.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita þessu fjármagni til aðgengismála á Laugalandi.
Vísað til nánari útvinnslu hjá Húsakynnum bs.
18.
Gjaldskrá Ásaljóss fyrir árið 2027
Málsnúmer 2610008
Ákvörðun um gjaldskrá Ásaljóss fyrir árið 2027.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hækka liðina áskriftargjald og leigu á ljósleiðaraþráðum um 2,5%, en annað óbreytt.
19.
Fjárhagsáætlun sveitarsjóðs Ásahrepps 2027-2030
Málsnúmer 2610014
Farið yfir helstu forsendur og áherslur við gerð fjárhagsáætlunar sem er í undirbúningi.
Farið yfir helstu forsendur vegna fjárhagsáætlunar 2027.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að hækkanir á gjaldskrám fari ekki umfram 2,5%.
20.
Frumvarp um sveitarstjórnarlög - minnisblað.
Málsnúmer 2610018
Lagt fram póstur frá sveitarstjóra Grýtubakkahrepps, þar sem lögð er til gerð nýs minnisblaðs vegna frumvarps til sveitarstjórnarlaga og sveitarfélögum boðið að taka þátt.
Til kynningar.
21.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2605028
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn, samkvæmt fundaráætlun, á skrifstofu sveitarfélagsins, miðvikudaginn 21. október og hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.