Fara í efni

Hreppsnefnd Ásahrepps

8. fundur
21. desember 2022 kl. 08:30 - 11:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson hreppsnefndarfulltrúi
Reynir Örn Pálmason hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 249. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2212029
Lögð fram fundargerð 249. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-172.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-172, til kynningar.
2.
Fundargerð 250. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2212030
Lögð fram fundargerð 250. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-174.
Mál nr. 1; Berustaðir land L194087; Þjóðólfshagi 31C; Stofnun lóðar - 2211023
Lögð er fram umsókn frá Söru Pálsdóttir er varðar stofnun lóðar Þjóðólfshaga 31C.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykki erindið samhljóða og mælist til þess að leitað verði samþykkis landeigenda Berustaða 194087 vegna viðkomandi lóðastofnunar.

Mál nr. 2; Gásagustur í Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag - 2203063
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til fjallaselsins Gásagustar á Holtamannaafrétt. Í deiliskipulaginu er afmörkuð ein lóð fyrir mannvirki. Heimilt er að byggja 3 hús og getur heildar byggingarmagn verið allt að 300 m2. Gert er ráð fyrir gistingu í 2-3 skálum og að heimilt sé að vera með aðstöðu fyrir landvörð, upplýsingar og fræðslu um Friðland Þjórsárvera. Gisting getur verið fyrir 30 gesti. Heimilt er að nýta mannvirki allt árið. Núverandi mannvirki verða fjarlægð.
Skipulagssvæðið er um 3,7 ha.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fram lagt deiliskipulag og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Hreppsnefnd Ásahrepps beinir því til skipulagsfulltrúa að Rangárþing ytra verði kynnt þessi skipulagstillaga.

Mál nr. 3; Versalir (Stóraver L165351) á Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag - 2211042
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til fjallaselsins Versala á Holtamannaafrétt. Með deiliskipulaginu er staðfesta núverandi landnotkun svæðisins. Í Versölum eru þrír skálar, tveir gistiskálar og hesthús með hestagerði. Annar gistiskálinn og hesthúsið er í eigu Ásahrepps og Rangárþings ytra, hinn gistiskálinn er í einkaeigu. Gisting getur verið fyrir allt að 45 gesti. Skipulagssvæðið er um 5,6 ha.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fram lagt deiliskipulag og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Hreppsnefnd Ásahrepps beinir því til skipulagsfulltrúa að Rangárþing ytra verði kynnt þessi skipulagstillaga.

Mál nr. 4; Hvanngiljahöll á Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag - 2211043
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til fjallaselsins Hvanngiljahallar á Holtamannaafrétt. Með deiliskipulaginu er staðfesta núverandi landnotkun svæðisins, auk þess sem gert er ráð fyrir byggingu nýrra skála í stað þeirra sem fyrir eru. Gisting getur verið fyrir allt að 30 gesti. Skipulagssvæðið er um 4,9 ha

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fram lagt deiliskipulag, með fyrirvara um að vegtenging verði flutt á hrygginn suðvestur af skálanum og tengist þar vegakerfi svæðisins. Eftir þær lagfæringar á skipulagi verði það auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Hreppsnefnd Ásahrepps beinir því til skipulagsfulltrúa að Rangárþing ytra verði kynnt þessi skipulagstillaga.

Mál nr. 5; Hald á Holtamannaafrétti; Fjallasel; Deiliskipulag - 2211044
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til fjallaselsins Halds á Holtamannaafrétt. Með deiliskipulaginu er staðfesta núverandi landnotkun svæðisins, auk þess sem gert er ráð fyrir byggingutveggja nýrra skála. Annar er ætlaður fyrir gistingu og hinn getur verið skemma/hesthús. Gisting getur verið fyrir allt að 40 gesti. Skipulagssvæðið er um 3,9 ha.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fram lagt deiliskipulag og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Hreppsnefnd Ásahrepps beinir því til skipulagsfulltrúa að Rangárþing ytra verði kynnt þessi skipulagstillaga.

Mál nr. 25; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-174 - 2211002F
Lögð fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-174.
3.
Fundargerð 251. fundar skipulagsnefndar UTU
Málsnúmer 2212047
Lögð fram fundargerð 251. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-175.
Mál nr. 35; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 22-175 - 2212001F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 22-175.
4.
Fundargerð 2. fundar nefndar um göngu-, reiðhjóla- og reiðleiðir í Ásahreppi
Málsnúmer 2212020
Lögð fram fundargerð 2. fundar nefndar um göngu-, reiðhjóla- og reiðleiðir í Ásahreppi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir framlagða fundargerð samhljóða og skv. dagsrárlið 2 þá hafnar hreppsnefnd Ásahrepps erindi um fjárveitingu til uppsetningar og viðhalds áningahólfa á félagssvæði Geysis, enda engin þeirra innan marka Ásahrepps.
5.
Fjallskiladeild Holtamannaafréttar - 3
Málsnúmer 2212003F
Lögð fram fundargerð 3. fundar fjallskiladeildar Holtamannaafréttar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fundargerðina fyrir sitt leyti sem felur í sér tillögu um útjöfnun fjallskila ársins 2022.
6.
Fundargerð 225. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallassýslu bs.
Málsnúmer 2212023
Lögð fram fundargerð 225. fundar stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu ásamt gjaldskrá fyrir árið 2023.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fram lagða gjaldskrá sbr. dagskrárlið 4 fyrir sitt leyti.
Að öðru leyti er fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Fundargerð 75. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Málsnúmer 2212036
Lögð fram fundargerð 75. fundar stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs.
Eina mál fundarins var afgreiðsla á fjárhagsáætlun Brunavarna fyrir árið 2023.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samhljóða fyrir sitt leyti fram lagða fjárhagsáætlun Brunavarna fyrir rekstrarárið 2023.
8.
Fundargerð 316. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands bs.
Málsnúmer 2212045
Lögð fram fundargerð 316. fundar stórnar Sorpstöðvar Suðurlands bs.
Efni fundarins er aukning hlutafjár í Orkugerðinni ehf en hluthafafundur verður haldinn 4. janúar 2023. Stjórn Sorpstöðvar hefur óskað eftir staðfestingu aðildarsveitarfélaga fyrir samþykki á kaupum á hlutafé í Orkugerðinni að hámarki kr. 30.690.000.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti þessa aukningu Sorpstöðvar Suðurlands bs. á hlutafé sínu í Orkugerðinni ehf.
9.
Samráðsfundur sveitarstjóra með fulltrúum Vegagerðarinnar
Málsnúmer 2212033
Lögð fram fundargerð samráðsfundar sveitarstjóra og fulltrúa Vegagerðarinnar, dags. 3. nóvember 2022, þar sem farið var yfir ástand vega innan sveitarfélagsins.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 6. fundar stjórnar Odda bs.
Málsnúmer 2212040
Lögð fram fundargerð 6. fundar stjórnar Odda bs.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 315. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands bs.
Málsnúmer 2212026
Lögð fram fundargerð 315. fundar stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands bs.
Til kynningar.
12.
Fundargerð aðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands bs 2022
Málsnúmer 2212034
Lögð fram fundargerð aðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands bs. 2022.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 222. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2212021
Lögð fram fundargerð 222. fundar Heilbrigðisnefnar Suðurlands.
Til kynningar.
14.
Fundargerð 223. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Málsnúmer 2212037
Lögð fram fundargerð 223. fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands.
Til kynningar.
15.
Fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs 2022
Málsnúmer 2212038
Lögð fram fundargerð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs. 2022.
Til kynningar.
16.
Fundargerð 106. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Málsnúmer 2212046
Lögð fram fundargerð 106. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
17.
Fundargerð aðalfundar Bergrisans bs. 2022
Málsnúmer 2212042
Lögð fram fundargerð aðalfundar Bergrisans bs 2022 ásamt skýrslu um úttekt á stjórnsýslu og rekstri Bergrisans bs.
Til kynningar.
18.
Fundargerð 21. fundar nefndar um svæðisskipulag Suðurhálendis
Málsnúmer 2212027
Lögð fram fundargerð 21. fundar nefndar um svæðisskipulag Suðurhálendis.
Til kynningar.
19.
Fundargerð 588. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2212015
Lögð fram fundargerð 588. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
20.
Fundargerð 589. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2212016
Lögð fram fundargerð 589. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
21.
Fundargerð 590. fundar stjórnar SASS
Málsnúmer 2212017
Lögð fram fundargerð 590. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
22.
Fundargerð aðalfundar SASS 2022.
Málsnúmer 2212018
Lögð fram fundargerð aðalfundar SASS, 2022.
Til kynningar.
23.
Fundargerð 53. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Málsnúmer 2212024
Lögð fram fundargerð 53. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
24.
Fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga 2022
Málsnúmer 2212025
Lögð fram fundargerð aðalfundar Samtaka orkusveitarfélaga 2022.
Til kynningar.
25.
Fundargerð 915. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2212035
Lögð fram fundargerð 915. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
26.
Fundaráætlun hreppsnefndar Ásahrepps 2023
Málsnúmer 2212019
Lögð fram tillaga að fundaráætlun hreppsnefndar Ásahrepps fyrir reglubundna fundi á árinu 2023.
Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að janúarfundi mun seinka og verður haldinn mánudaginn 21. janúar 2023 og að júlífundur fellur niður vegna sumarleyfis hreppsnefndar.
Samþykkt samhljóða.
27.
Ákvörðun um endurgreiðslu vegna bæjarlýsingar, ljósastaurar.
Málsnúmer 2012034
Lagt fram yfirlit yfir kostnað vegna orkukaupa og flutnings vegna bæjarlýsingar sem var fengið hjá RARIK og Orkusölunni.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að endurgreiðsla vegna bæjarlýsingar verði kr. 46.000 fyrir tvo ljósastaura á hvert heimili þar sem er skráð búseta. Hreppsnefnd Ásahrepps bendir á að þetta er síðasta árið sem Ásahreppur greiðir fyrir bæjarlýsingu og sveitarstjóra falið að flytja viðmiðunarmælana í Seli og Kálfholti til viðkomandi aðila sem nýta lýsinguna.
28.
Deiliskipulög fyrir skála á Holtamannaafrétti
Málsnúmer 2210007
Lagt fram minnisblað um 2. fund um deiliskipulög fyrir skála á Holtamannaafrétti. Greinargerðir og uppdrættir fyrir skálana Hald, Gásagust, Versali og Hvanngiljahallar einnig lagðar fram ásamt afgreislum skipulagsnefndar.
Varðandi niðurstöðu hreppsnefndar er vísað til bókana hreppsnefndar Ásahrepps undir dagskrárlið 2 á þessum fundi.
29.
Styrkbeiðni vegna ljósleiðaratengingar
Málsnúmer 2212028
Lagt fram tölvuskeyti Óðins Ö. Jóhannssonar og Laufeyjar Ó. Christensen, dags. 22. nóvember 2023 þar sem óskað er eftir styrk vegna ljósleiðaratengingar að Áshömrum.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 150.000 þar sem þau eiga lögheimili að Áshömrum. Til að styrkur fáist útgreiddur þarf viðkomandi umsækjandi að hafa greitt fyrir útlagðan kostnað Ásaljóss við tenginguna skv. útgefnum reikningi.
30.
Beiðni um styrk á móti kaupum á rotþró
Málsnúmer 2212031
Lagt fram tölvuskeyti Berthu Karlsdóttur og Sverris Sigurðssonar í Vesturási, dags. 27. nóvember 2022, þar sem óskað er eftir styrk á móti kaupum á rotþró við nýtt íbúarhús þeirra að Vesturási þar sem þau eiga lögheimili.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita þeim styrk að upphæð kr. 188.019.
31.
Beiðni um uppsetningu tveggja ljósastaura að Vesturási
Málsnúmer 2212032
Lagt fram tölvuskeyti frá Berthu Karlsdóttur og Sverri Sigurðssyni, dags. 27. nóvember 2022, þar sem þau óska eftir að settir verði upp tveir ljósastaurar við íbúðarhús þeirra að Vesturási þar sem þau eiga lögheimili.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að kosta uppsetningu á tveimur ljósastaurum við íbúðarhús þeirra.
32.
Bréf HSK, beiðni um fjárstuðning árið 2023
Málsnúmer 2212039
Lagt fram bréf HSK, dags. 6. desember 2022, þar sem óskað er eftir fjárstuðningi árið 2023. Óskað er eftir framlagi kr. 280 á hvern íbúa Ásahrepps. Einnig er lögð fram ársskýrsla HSK fyrir árið 2021.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita HSK umræddan fjárstuðning, enda er gert ráð fyrir því framlagi í fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árið 2023.
33.
Boð N4 um samstarf við gerð sjónvarpsþátta
Málsnúmer 2212041
Lagt fram tölvuskeyti N4, dags. 7. desember 2022, þar sem Ásahreppi er boðið að koma inn í "Að sunnan" þáttaröðina á næsta ári. Kostnaðurinn yrði 1,8 milljónir króna sem er hugsaður sem styrkur til þáttagerðar.
Hreppsenfnd Ásahrepps hafnar erindinu.
34.
Samningur um umdæmisráð barnaverndar á landsbyggðinni
Málsnúmer 2209018
Lagt fram tölvuskeyti frá lögfræðisviði Akureyrarbæjar, dags. 7. desember 2022, þar sem fram koma athugasemdir við þær breytingar sem gerðar hafa verið við endurskoðaðan samning um umdæmisráð barnaverndar á landsbyggðinni. Einnig koma fram svör við fram komnum athugasemdum. Ljóst er að það viðamiklar breytingar hafa verið gerðar á samningnum að fyrri samþykktir hreppsnefndar Ásahrepps geta ekki gilt um nýja útgáfu samningsins.Einnig lagt fram bréf frá Félags- og skólaþjónsustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, dags. 16. desember 2022, þar sem kynnt er að félagsþjónustan hefur óskað eftir aðkomu félagsþjónustusvæðisins að umdæmisráði sem Árborg, Reykjanesbær, Grindavík, Suðurnesjabær og Vogar standa að. Fyrir liggur samþykki þessara sveitarfélag að Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu gangi inn í þeirra samning um umdæmisráð barnaverndar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að standa að umdæmisráði sveitarfélaga á Suðurlandi og styður það að hætta við þátttöku í umdæmisráði barnaverndar á landsbyggðinni.
Sveitarstjóra er falið að koma þessari afgreiðslu hreppsnefndar Ásahrepps til félagsþjónustunnar og felur honum einnig að undirrita samning um inngöngu í umdæmisráð sveitarfélaga á Suðurlandi og Suðurnesjum fyrir hönd Ásahrepps, þó með þeim fyrirvara að samningur verður sendur til hreppsnefndar Ásahrepps áður en undirritun á sér stað.
35.
Húsnæðisáætlun Ásahrepps
Málsnúmer 2212043
Lögð fram drög að húsnæðisáætlun Ásahrepps 2023 sem unnin hefur verið í samvinnu við Húsnæis- og mannvirkjastofnun.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrirliggjandi húsnæðisáætlun Ásahrepps 2023.
36.
Ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars árið 2023
Málsnúmer 2212044
Lagt fram tölvuskeyti Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 16. desember 2022, þar sem kynnt er samkomulag um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk milli þriggja ráðuneyta og sambandsins. Í samkomulaginu felst að hámarksútsvar sveitarfélaga sem nú er 14,52% skal hækkað um 0,22% samhliða lækkun tekjuskatts um samsvarandi hlutfall. Þessar breytingar taka gildi fyrir árið 2023. Engin breyting verður á skattbirði einstaklinga við þessa breytingu, en um er að ræða tilflutning fjármags milli skattstofna.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2023 verði 14,74%.
37.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Málsnúmer 2101011
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps fyrir tímabilið janúar - nóvember 2022.
Til kynningar.
38.
Rafræn langtímavarðveisla skjala
Málsnúmer 2212022
Lagt fram tölvuskeyti héraðsskjalavarðar, dags. 15. nóvember 2022 ásamt viljayfirlýsingu héraðskjalavarða, samstarfsyfirlýsingu héraðsskjalavarða og minnisblaði um rafræna langtímavarðveislu skjala.
Til kynningar.
39.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Málsnúmer 2101018
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 23. janúar 2023.
Til kynningar.