Hreppsnefnd Ásahrepps
8. fundur
21. október 2026
kl.
08:30
-
12:20
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Gréta Vilborg Guðmundsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Emil Þórðarson
hreppsnefndarfulltrúi
Hugrún Hannesdóttir
varamaður í hreppsnefnd
Starfsmenn
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson
skrifstofustjóri
Dagskrá
1.
Kortlagning á mögulegum orkutengdum verkefnum í Ásahreppi
Öflug afhendingargeta raforku er til staðar frá tengivirki í Lækjartúni II og tilefni til að fara yfir möguleika svæðisins. Fulltrúi Landsvirkjunar mætir á fundinn ásamt landeigendum.
Á fundinn mætti Almar Barja starfsmaður viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun og kynnti starfsemi Landsvirkjunar, möguleg orkufrek tækifæri og ferlið varðandi slík verkefni. Fyrirspurnir og umræða um málið.
Hreppsnefnd Ásahrepps áformar að skoða sambærileg verkefni og áhrif þeirra á nærsamfélagið.

2.
Fundargerð 334.fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 334. skipulagsnefndar UTU.
Mál 1. Sigöldustöð L239397; Stækkun og aukið afl; Frárennslisskurður og bráðabirgðastífla; Framkvæmdarleyfi - 2608030
Lögð er fram umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir jarðvinnu vegna breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar, dags. 25. september 2026, ásamt fylgiskjölum. Sigöldustöð er vatnsaflsvirkjun á Holtamannaafrétti.
Fyrirhuguð er stækkun hennar um allt að 65 MW þar sem fjórðu vélinni er bætt við í stöðvarhús stöðvarinnar og fjórðu þrýstipípunni í fyrirliggjandi steyptum stokki sem liggur undir inntaksstíflunni. Uppsett afl virkjunarinnar er nú 150 MW en verður með stækkuninni aukið í 215 MW.
Framkvæmdaleyfisumsókn Landsvirkjunar tekur til jarðvinnu vegna breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar. Framkvæmdaleyfisumsóknin er eingöngu bundin við ofangreindar framkvæmdir. Stækkun stöðvarhúss og lagning fallpípu eru byggingarleyfisskyldar framkvæmdir og kalla því ekki á framkvæmdaleyfi. Fyrir liggur útgefið framkvæmdaleyfi fyrir vinnubúðir og aðra aðstöðu sköpun sem tekur til sveitarfélaganna Ásahrepps og Rangárþings ytra, en hreppsnefnd
Ásahrepps samþykkti útgáfu þess á fundi sínum þann 22. janúar 2025.
Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Landsvirkjunar og öðrum fylgigögnum umsóknar.
Skipulagsnefnd UTU hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna, virkunarleyfi ásamt heimild til breytingar á vatnshlotum og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsvirkjunar með framkvæmdaleyfisumsókninni. Þá liggja fyrir drög að greinargerð sveitarfélagsins þar sem fram koma skilyrði og mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar.
Skipulagsnefnd UTU telur sýnt fram á í fyrirliggjandi gögnum að brýna nauðsyn beri til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna. Nefndin telur jafnframt nægilega gerð grein fyrir framkvæmdinni eins og hún liggur fyrir umfram aðra valkosti í fyrirliggjandi gögnum og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum. Framkvæmdirnar eru nauðsynlegur grundvöllur þess að stækkun Sigölduvirkjunar geti orðið að veruleika og skilað raforku inn á flutningskerfi Landsnets. Framkvæmdin varðar mikilvæga almannahagsmuni til tryggingar raforkuöryggis í landinu og framboði af orku til orkuskipta.
Skipulagsnefnd UTU mælist til við Hreppsnefnd Ásahrepps að fyrirliggjandi greinargerð verði samþykkt sem greinargerð og umsögn hreppsnefndar Ásahrepps um framkvæmdaleyfisumsóknina og að fallist verði á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsvirkjunar og önnur fyrirliggjandi gögn.
Nefndin leggur áherslu á að leyfið verði bundið þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram koma í fyrirliggjandi drögum að greinargerð skv. 3. mgr. 27. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 29. september 2026.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að ekki verði gerð athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 í samræmi við framangreint, og önnur ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar nr. 772/2012.
Afgreiðsla hreppsnefndar Ásahrepps:
Inngangur:
Lögð er fram umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir jarðvinnu vegna breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar, dags. 25. september 2026, ásamt fylgiskjölum.
Sigöldustöð er vatnsaflsvirkjun á Holtamannaafrétti. Fyrirhuguð er stækkun hennar um allt að 65 MW þar sem fjórðu vélinni er bætt við í stöðvarhús stöðvarinnar og fjórðu þrýstipípunni í fyrirliggjandi steyptum stokki sem liggur undir inntaksstíflunni. Uppsett afl virkjunarinnar er nú 150 MW en verður með stækkuninni aukið í 215 MW.
Framkvæmdaleyfisumsókn Landsvirkjunar tekur til jarðvinnu vegna breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar. Framkvæmdaleyfisumsóknin er eingöngu bundin við framangreindar framkvæmdir. Stækkun stöðvarhúss og lagning fallpípu eru byggingarleyfisskyldar framkvæmdir og kalla því ekki á framkvæmdaleyfi. Fyrir liggur útgefið framkvæmdaleyfi fyrir vinnubúðir og aðra aðstöðusköpun sem tekur til sveitarfélaganna Ásahrepps og Rangárþings ytra, en hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti útgáfu þess á fundi sínum þann 22. janúar 2025.

Eftirtalin gögn eru lögð fram hjá hreppsnefnd:
1) Umsókn með greinargerð framkvæmdaraðila sem inniheldur staðháttalýsingu, lýsingu á þeim framkvæmdum sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir, lýsingu á frágangi og forsendur.
2) Teikningasett
3) Umhverfismatsskýrsla vegna stækkunar Sigöldustöðvar, ágúst 2023
4) Myndahefti umhverfismatsskýrslu
5) Álit Skipulagsstofnunar um umhverfismat vegna stækkunar Sigöldustöðvar, dags. 18.12.2023
6) Viðbót við umhverfismatsskýrslu vegna nýs áhrifamats vatnshlota, febrúar 2026
7) Álit HMS um viðbót við umhverfismatsskýrslu vegna áhrifa á vatnshlot, dags. 07.07.2026
8) Áhrifamat vatnshlota, unnið af Hafrannsóknarstofnun, dags. 21.01.2026.
9) Greinargerð deiliskipulags með umhverfismatsskýrslu, dags. 21.11.2022, breytt 01.09.2023
10) Deiliskipulag, Sigöldustöð, yfirlitsuppdráttur, dags. 21.11.2022, breytt 16.08.2023
11) Deiliskipulagsuppdráttur, Sigöldustöð, stöðvarhús og tengivirki 21.11.2022, breytt 16.08.2023
12) Deiliskipulagsuppdráttur, Sigöldustöð, yfirfall, dags. 21.11.2022
13) Deiliskipulagsuppdráttur, Sigöldustöð, botnrás, dags. 21.11.2022
14) Greinargerð deiliskipulagsbreytingar með umhverfismatsskýrslu, dags. 27.05.2024
15) Deiliskipulagsuppdráttur, Sigöldustöð, vinnubúðir og haugsvæði, dags. 27.05.2024
16) Deiliskipulagsuppdráttur, Sigöldustöð, yfirlitsuppdráttur 27.05.2024
17) Virkjunarleyfi Orkustofnunar vegna stækkunar Sigöldustöðvar, dags. 12.09.2024, ásamt fylgibréfi
18) Leyfi Fiskistofu, dags. 12.03.2024
19) Leyfi Forsætisráðuneytis vegna stækkunar Sigöldustöðvar, dags. 04.06.2024
20) Byggingarleyfi vegna viðbyggingar við stöðvarhús, dags. 27.08.2026
21) Greinargerð í samræmi við 3. mgr. 27. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 29.09.2026.
Málið var tekið fyrir hjá Skipulagsnefnd Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs. þann 14. október 2026. Á fundinum var lagt til við Hreppsnefnd Ásaherpps að fyrirliggjandi greinargerð yrði samþykkt sem greinargerð og umsögn hreppsnefndar um framkvæmdaleyfisumsóknina og lagt til að Hreppsnefnd Ásahrepps gæfi út framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda vegna breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsvirkjunar og önnur fyrirliggjandi gögn. Nefndin lagði áherslu á að leyfið yrði bundið þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram koma í fyrirliggjandi greinargerð skv. 3. mgr. 27. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 29. september 2026. Fundargerð Skipulagsnefndar Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita hefur verið staðfest af Hreppsnefnd Ásahrepps.
Bókun:
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur gögn auk þess sem hreppsnefnd hefur látið taka saman greinargerð í samræmi við 3. mgr. 27 gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 nr. og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna framkvæmdarinnar, dags. 29. september 2026, sem liggur fyrir í gögnum málsins. Hreppsnefnd samþykkir framlagða greinargerð sveitarfélagsins, í samræmi við 3. mgr. 27 gr. laga nr. 111/2021, sbr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sem greinargerð og umsögn Hreppsnefndar um framkvæmdarleyfisumsóknina auk þess sem Hreppsnefnd vísar til umsagnar Skipulagsnefndar Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs.
Hreppsnefnd hefur, eins og nánar er gerð grein fyrir og rakið í greinargerð sveitarfélagsins, kynnt sér umsókn framkvæmdaaðila auk greinargerðar, matsskýrslu og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna, virkunarleyfi ásamt heimild til breytingar á vatnshlotum og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsvirkjunar með framkvæmdaleyfisumsókninni.
Hreppsnefnd telur að í fyrirliggjandi gögnum sé sýnt fram á að brýna nauðsyn beri til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna. Jafnframt að í fyrirliggjandi gögnum sé einnig næg grein gerð fyrir framkvæmdum við stækkun Sigöldustöðvar umfram aðra valkosti og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum. Framkvæmdirnar eru nauðsynlegur grundvöllur þess að stækkun Sigölduvirkjunar geti orðið að veruleika og skilað raforku inn á flutningskerfi Landsnets. Framkvæmdin varðar mikilvæga almannahagsmuni til tryggingar raforkuöryggis í landinu og framboði af orku til orkuskipta.
Með vísan til rökstuðnings í greinargerð hreppsnefndar í samræmi við 3. mgr. 27 gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, sbr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, dags. 29. september 2026, samþykkir Hreppsnefnd að gefið verði út framkvæmdaleyfi í samræmi við framlagða umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir undirbúningsframkvæmdum vegna Hvammsvirkjunar, með þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram koma í greinargerð sveitarfélagsins og nánar er gerð grein fyrir í öðrum framlögðum gögnum, s.s. varðandi vöktun og frágang vegna framkvæmdarinnar.
Skipulagsfulltrúi fer með eftirlit með framkvæmdinni og því að öllum skilyrðum sem framkvæmdinni hafa verið sett sé framfylgt og hún sé í samræmi við leyfi og fylgigögn leyfis. Skipulagsfulltrúi skal skila af sér skýrslu til hreppsnefndar um framkvæmd eftirlitsins fyrir lok hvers áfanga framkvæmdarinnar. Verði skilyrðum vegna framkvæmdarinnar ekki framfylgt, ásigkomulag, frágangi, notkun eða umhverfi framkvæmdar eða eigin eftirliti framkvæmdaaðila ábótavant eða stafi af framkvæmdinni hætta skal skipulagsfulltrúi tilkynna hreppsnefnd þar um. Þá skal skipulagsfulltrúi gera grein fyrir frávikum og tilkynna framkvæmdaraðila skriflega um frávik og kröfur til úrbóta.
Hreppsnefnd felur skipulagsfulltrúa, að uppfylltum framlögðum skilyrðum, að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við framangreint, samkvæmt ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og ákvæði reglugerðar nr. 772/2012.
Samþykkt samhljóða
Mál 2. Sigöldustöð; Breyttir þættir og útfærsla mannvirkja; Deiliskipulagsbreyting - 2606011
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu sem tekur til Sigöldustöðvar í Ásahreppi og Rangárþingi ytra. Gerð er breyting á ýmsum þáttum vegna
nákvæmari útfærslu mannvirkja en þar helst eru að bætt er við lóð og byggingarreitum fyrir vinnubúðir, skemmu, vatnstanka og þjónustuhús við vatnsból. Nokkrum aðkomuvegum er hnikað til á uppdrætti, s.s. að aðrennslisskurði, auk þess sem hreinsivirki er bætt við á byggingarreit B1. Þá eru vatnsból og lagnir að vatnstanki sýnd á uppdrætti og vatnsverndarsvæði stækkað.
Skipulagsnefnd UTU hefur farið yfir framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sigöldustöðvar í Ásahreppi og Rangárþingi ytra ásamt greinargerð og uppdráttum. Nefndin telur þær breytingar sem lagðar eru til vera eðlilega þróun og nánari útfærslu þeirra mannvirkja og innviða sem nauðsynlegir eru vegna starfsemi og áframhaldandi uppbyggingar á svæðinu. Breytingin felur meðal annars í sér afmörkun nýrrar lóðar og byggingarreita fyrir vinnubúðir, skemmu, vatnstanka og þjónustuhús við vatnsból, tilfærslu aðkomuvega, staðsetningu hreinsivirkis innan byggingarreits B1, auk skilgreiningar á vatnsbóli, lögnum og stækkun vatnsverndarsvæðis. Að mati skipulagsnefndar UTU eru breytingarnar í samræmi við meginmarkmið gildandi skipulags á svæðinu og fela ekki í sér verulega breytingu á landnotkun eða ásýnd svæðisins frá því sem áður hefur verið gert ráð fyrir. Nefndin telur að með framlagðri tillögu hafi verið gerð fullnægjandi grein fyrir þeim breytingum sem lagðar eru til og að þær stuðli að bættri nýtingu og rekstraröryggi mannvirkja á svæðinu. Að mati nefndarinnar eru áhrif breytinganna á umhverfi og landslag óveruleg og ekki þess eðlis að tilefni sé til frekari athugasemda.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
Bókun:
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
Mál 3. Kastalabrekka (L165297); byggingarheimild; starfsmannahús - 2609046
Móttekin var umsókn þann 16.09.2026 um byggingarheimild fyrir 73,6 m2 starfsmannahús á jörðinni Kastalabrekka (L165297) í Ásahreppi. Fyrir liggur vettvangsskoðun minjavarðar hjá Minjastofnun Íslands.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið í samræmi við 1.mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bókun:
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að unnið verði deiliskipulag fyrir svæðið í samræmi við 1.mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Mál 4. Hárlaugsstaðir 1, lóð 2 L195822; Byggingarmagn og skilgreining; Fyrirspurn - 2610014
Lögð fram fyrirspurn er varðar Hárlaugsstaði 1, lóð 2, L195822, Í fyrirspurninni er óskað eftir heimild til að setja niður geymslu að stærð 14,9 fm við hlið sumarhúss á lóðinni einnig hvort hægt sé byggja 200 til 250 fm skemmu á lóðinni í framtíðinni.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess að hreppsnefnd Ásahrepps taki annars vegar jákvætt í fyrirspurn um uppsetningu allt að 14,9 m² geymslu við sumarhús á lóðinni, enda verði staðsetning og útfærsla mannvirkisins í samræmi við gildandi skipulag og önnur ákvæði sem um svæðið gilda. Hins vegar, varðandi fyrirspurn um 200-250 m² skemmu telur skipulagsnefnd UTU ekki unnt að taka afstöðu til þess á grundvelli fyrirliggjandi gagna og óskar eftir nánari upplýsingum um fyrirhugaða notkun, staðsetningu, umfang og útfærslu mannvirkisins.
Bókun:
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í fyrirspurn um uppsetningu allt að 14,9 m² geymslu við sumarhús á lóðinni, enda verði staðsetning og útfærsla mannvirkisins í samræmi við gildandi skipulag og önnur ákvæði sem um svæðið gilda. Hins vegar, varðandi fyrirspurn um 200-250 m² skemmu telur hreppsnefnd Ásahrepps ekki unnt að taka afstöðu til þess á grundvelli fyrirliggjandi gagna og óskar eftir nánari upplýsingum um fyrirhugaða notkun, staðsetningu, umfang og útfærslu mannvirkisins.
Mál 5. Ás 3 lóð I-8 L204637; Þingás; Breytt heiti lóðar - 2610005
Lögð er fram umsókn um breytingu á skráningu lóðar. Óskað er eftir því að lóðin Ás 3 lóð I-8 L204637 fái heitið Þingás.
Skipulagsnefnd UTU gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi staðfangabreytingu úr Ás 3 lóð I-8 L204637 í Þingás.
Skipulagsnefnd mælist til að hreppsnefnd Ásahrepps geri ekki athugasemdir við staðfangabreytinguna.
Bókun:
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við að lóðin Ás 3 lóð I-8 L204637 fái heitið Þingás.

3.
Viðburðanefnd Ásahrepps - 2
4.
Fundargerð 5. fundar Odda bs.
Lögð fram fundargerð 5. fundar Odda bs.
Meðal gagna er viðauki vegna aukinnar fjárþarfar Odda bs, samtals að upphæð 22.692.000 kr og er hlutur Ásahrepps 2.765.461 kr.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir fundargerðina fyrir sitt leyti.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða viðauka 1 við fjárhagsáætlun Odda bs, sem verður til hækkunar á framlagi Ásahrepps um 2.765.461 kr, samkvæmt nánari sundurliðun í fylgiskjali. Hækkuninni verður mætt með lækkun á handbæru fé sveitarsjóðs.
Skrifstofustjóra farið að útfæra viðauka í samstarfi við KPMG og tilkynna til viðkomandi aðila.

5.
Fundargerð 4. fundar Húsakynna bs.
Lögð fram fundargerð 4. fundar Húsakynna bs.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 3. fundar stjórnar byggðarsamlags UTU
Lögð fram fundargerð 3. fundar stjórnar byggðarsamlags UTU.
Með fundargögnum fylgir minnisblað KPMG vegna skoðunar á yfirfærslu fjárframlaga vegna fjárfestinga í Seyrustöðum frá stofnun fram að yfirfærslu inn í UTU.

Hreppsnefnd Ásahrepps tók minnisblað KPMG til umfjöllunar og fellst á þá tillögu að lausn sem þar er sett fram. Að öðru leyti er fundargerðin til kynningar.
7.
Fundargerð 26-266, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Lögð fram fundargerð 26-266 með afgreiðslum byggingarfulltrúa.
Til kynningar.
8.
Fundargerð 26-267, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Lögð fram fundargerð 26-267 með afgreiðslum byggingarfulltrúa.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 96. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Lögð fram fundargerð 96. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 1003. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 1004. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 1004. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Til kynningar.
12.
Bréf frá Íslensku Gagnavinnslunni ehf
Lagt fram bréf frá Íslensku gagnavinnslunni ehf, varðandi skipulagsmáls sem tekur til Lindarbæjar 1A L165304. https://skipulagsgatt.is/issues/2026/680
Til kynningar.
13.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lögð fram drög að málaflokkayfirliti fyrir sveitarsjóð fyrir tímabilið janúar til september 2026.
Til kynningar.
14.
Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga
Innviðaráðuneytið hefur birt tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar, ásamt drögum að mælaborði fyrir sveitarfélög.
Til kynningar.
15.
Fyrirspurn vegna frístundabyggðar
Lagt fram bréf frá Ástríði Magnúsdóttur um stefnumörkun varðandi frístundabyggð.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að fela skrifstofustjóra og oddvita að svara bréfritara í samræmi við umræður á fundinum. Einkum að ólíkir skilmálar gilda eftir landnotkun, þ.e. annars vegar frístundabyggð og hins vegar land til landbúnaðarnota. Einnig að stefnumörkun í aðalskipulagi sveitarfélagsins er varðar frístundabyggð er háð takmörkunum.
16.
Styrkbeiðni vegna aðventuhátíðar 2026
Lagt fram bréf frá Kvenfélaginu Einingu, þar sem óskað er eftir styrk við árlega aðventuhátíð sem haldin verður að Laugalandi 29. nóvember.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 30.000. Auk þess samþykkir hreppsnefnd Ásahrepps fyrir sitt leyti að gefa eftir húsaleigu vegna viðburðarins.
17.
Hjólastígur meðfram Suðurlandsvegi
Á fundum umhverfisnefndar 22. september og hreppsnefndar 7.október. voru til umræðu möguleikar á hjólastíg gegnum sveitarfélagið meðfram suðurlandsvegi. Taka þarf afstöðu hvort halda eigi áfram undirbúningi og þar með taka verkefnið inn í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að stefnt skuli að uppbyggingu hjólreiðastígs meðfram þjóðvegi 1 gegnum sveitarfélagið. Skrifstofustjóra og oddvita falið að vinna málið áfram og sækja um styrk til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða og formleg samskipti við Vegagerðina.
18.
Samningur um viðhald girðinga
Lagður fram samningur við Þórð Guðnasonar um viðhald girðinga.
Til kynningar.
19.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Í samræmi við fundaáætlun verður næsti fundur hreppsnefndar miðvikudaginn 4. nóvember, á skrifstofu hreppsins á Laugalandi og hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.