Hreppsnefnd Ásahrepps
9. fundur
23. janúar 2023
kl.
08:30
-
12:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Nanna Jónsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Þráinn Ingólfsson
hreppsnefndarfulltrúi
Reynir Örn Pálmason
hreppsnefndarfulltrúi
Elín Grétarsdóttir
varamaður í hreppsnefnd
Starfsmenn
Valtýr Valtýsson
Fundargerð ritaði:
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Fundargerð 252. fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 252. fundar skipulagsnefndar UTU ásamt afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 23-176.
Mál nr. 26; Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 23-176 - 2212003F.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-176.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 23-176.
2.
Fundargerð 2. fundar almannavarnarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Lögð fram fundargerð 2. fundar almannavarnarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. 1. og 2. liður fundargerðar þarnast staðfestingar aðildarsveitarfélaganna.
1. Samþykktir almannavarnarnefndar.
Lagðar fram endurskoðaðar samþykktir almannavarnarnefndar sem samþykktar hafa verið af almannavarnarnefnd.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir samþykktirnar fyrir sitt leyti.
2. Samningur vegna verkefnis um sameiginlegan starfsmann.
Tillaga að samningi um sameiginlegan starfsmann í almannavörnum sem samþykktur hefur verið af almannavarnarnefnd.
Hreppsnefnd Ásahrepps staðfestir fyrirliggjandi samning um sameiginlegan starfsmann fyrir sitt leyti.
Að öðru leyti er fundargerðin til kynningar.

3.
Fundargerð 68. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu
Lögð fram fundargerð 68. fundar stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.
Dagskrárliður 2 þarf staðfestingu hreppsnefndar Ásahrepps þar sem að nú liggur fyrir viðaukasamningur um umdæmisráð sveitarfélaganna á Suðurnesjum og Árborg um aðild Félagsþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu bs.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti þennan viðauka við samning um rekstur umdæmsisráðs barnaverndar sem og undirritun formanns stjórnar byggðasamlaagsins á viðaukasamninginn.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti þennan viðauka við samning um rekstur umdæmsisráðs barnaverndar sem og undirritun formanns stjórnar byggðasamlaagsins á viðaukasamninginn.
4.
Fundargerð 4. fundar stjórnar Lundar
Lögð fram fundargerð 4. fundar stjórnar Lundar.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 22. fundar svæðisskipulagsnefndar Suðurhálendis
Lögð fram fundargerð 22. fundar svæðisskipulagsnefndar Suðurhálendis.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 23. fundar svæðisskipulagsnefndar Suðurhálendis
Lögð fram fundargerð 23. fundar svæðisskipulagsnefndar Suðurhálendis.
Til kynningar.
7.
Fundargerð 107. fundar svæðisráðs vestursvæðis VJÞ
Lögð fram fundargerð 107. fundar svæðisráðs vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.
Til kynningar.
8.
Fundargerð félagsfundar Sorpstöðvar Suðurlands, 4. janúar 2023
Lögð fram fundargerð félagsfundar Sorpstöðvar Suðurlands, sem haldinn var 4. janúar 2023.
Til kynningar.
9.
Fundargerð 1. fundar stjórnar Arnardrangs hses
Lögð fram fundargerð 1. fundar stjórnar Arnardrangs hses.
Til kynningar.
10.
Fundargerð 47. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Lögð fram fundargerð 47. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
11.
Fundargerð 48. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Lögð fram fundargerð 48. fundar stjórnar Bergrisans bs.
Til kynningar.
12.
Fundargerð 54. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 54. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Til kynningar.
13.
Fundargerð 916. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lögð fram fundargerð 916. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Til kynningar.
14.
Gjaldskrá Ásaljóss fyrir árið 2023.
Lögð fram tillaga að breytingu á gjaldskrá Ásaljóss fyrir árið 2023, skv. ákvæði í 4. grein gildandi gjaldskrár.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fram lagða tillögu að breytingu gjaldskrárinnar. Hækkun gjaldaliða er 5,5% skv. breytingu neysluverðsvísitölu frá apríl 2022 til loka árs 2022.
15.
Uppgjör snjómoksturs vegna ársins 2022
Lagt fram yfirlit yfir kostnað Ásahrepps vegna snjómoksturs á árinu 2022. Fram kemur að heildarkostnaður Ásahrepps er kr. 2.084.728 en þar af verður hlutur Vegagerðarinnar kr. 492.140 vegna helmingaskipta.
Hreppsnefnd felur sveitarstjóra að innheimta kostnað Vegagerðarinnar skv. samningi milli aðila er nemur helmingakostnaði við snjómokstur ársins 2022.
Umræða varð um fyrirkomulag snjómoksturs í Ásahreppi. Oddvita, sveitarstjóra og formanni atvinnu- og ferðamálanefndar falið að eiga fund með Tómasi H. Tómassyni til að ræða verklagsreglur við snjómoksturs. Einnig óskar hreppsnefnd eftir að atvinnu- og ferðamálanefnd taki málið upp á fundi og komi með tillögur varðandi verklagsreglur hjá Ásahreppi um snjómokstur.

16.
Veghugmynd að Hvanngiljahöll
Lagt fram tölvuskeyti Eflu ásamt afstöðumyndum, dags. 5. janúar 2023, þar sem gerð er tillaga um nýja veghugmynd að Hvanngiljahöll á Holtamannaafrétti. Vísað er í bókun hreppsnefndar Ásahrepps á 8. fundi, dagskrárliður nr. 2, mál nr. 4.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti þetta vegastæði fyrir aðkomuveg að Hvanngiljahöll. Hreppsnefnd óskar jafnframt eftir því að þessi hugmynd að vegtengingu verði kynnt Rangárþingi ytra.
17.
Lóðarblöð fyrir fjóra fjallaskála á Holtamannaafrétti
Lagt fram tölvuskeyti Eflu, dags. 17. janúar 2023, ásamt lóðarblöðum fyrir fjallaskálana: Þúfuvatnsskáli, Illugaver, Lindarkot og Sylgjufell. Einnig lögð fram fundargerð vinnuhóps um endurskoðun aðalskipulags Ásahrepps frá 11. mars 2022, sem staðfest var af hreppsnefnd Ásahrepps 20. apríl 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fyrirliggjandi lóðarblöð. Hreppsnefnd óskar jafnframt eftir því að þau verði kynnt Rangárþingi ytra.
18.
Svæðisskipulag Suðurhálendis, tillaga til kynningar
Lagt fram tölvuskeyti SASS, dags. 13. janúar 2023, þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu að svæðisskipulagi Suðurhálendis. Hægt er að finna greinargerð, umhverfisskýrslu og landslagsgreiningu á vef SASS, http://www.sass.is/sudurhalendi/.Einnig er greinargerð, umhverfisskýrsla og landslagsgreining lögð fram á fundinum.
Hreppsnefnd Ásahrepps gerir ekki athugasemd við að greinargerð og umhverfisskýrslu Svæðisskipulags Suðurhálendis verði sent til kynningar skv. 2. mgr. 23. gr. skipulagslaga og 13. og 14. gr. laga um umhverfismat áætlana og framkvæmda. Tillögunni fylgir greinargerð um landslagsgreiningu fyrir Suðurhálendi, sem er fylgirit svæðisskipulagsins.
19.
Heimreiðar í Ásahreppi
Lagt fram bréf Guðmundar Gíslasonar, dags. 5. janúar 2023, þar sem hann óskar eftir upplýsingum um framgang viðhaldsvinnu Vegagerðarinnar á heimreiðum í Ásahreppi á árinu 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps felur sveitarstjóra að upplýsa bréfritara um stöðu mála í ljósi fundar sem sveitarstjóri átti með fulltrúum Vegagerðarinnar í haust. Ljóst er að Vegagerðin fór ekki í þau verkefni sem til stóð að fara í síðast liðið sumar nema að litlu leyti við holuviðgerðir vegna fjárskorts hjá Vegagerðinni. Sveitarstjóra einnig falið að senda bréfritara afrit af fundargerð þessa fundar og minnisblað sem Ásahreppur lagði fram á fundinum.
20.
Íþróttafélög í Rangárvallasýslu
Lagt fram tölvuskeyti Rangárþings eystra, dags. 29. desember 2022, þar sem kynnt er bókun heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefndar Rangárþings eystra um styrkingu íþróttastarfs í sýslunni.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í erindið og telur að samþætting á skólastarfi spili mikilvægan þátt í samræmingu á íþróttastarfi. Einnig væri tímabært að skoða almennan akstur ungmenna til að stunda íþróttastarf innan svæðisins.
21.
Endurfjármögnun láns Byggðasafnsins Skógum
Lagt fram tölvuskeyti Byggðasafnsins í Skógum, dags. 10. janúar 2023, þar sem óskað er eftir samþykki hreppsnefndar Ásahrepps fyrir að endurfjármagna verðtryggt lán sem safnið tók árið 2014 og taka óverðtryggt lán til 12 ára. Einnig lögð fram drög að lánasamningi.
Um er að ræða ákvörðun um veita einfalda ábyrgð, veðsetningu í tekjum til tryggingar ábyrgð og veiting umboðs til að undirrita lánasamning og taka að sér þær skuldbindingar sem greinir í lánsamningi vegna láns Byggðasafnsins í Skógum frá Lánasjóði sveitarfélaga:
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir hér með á 9. hreppsnefndarfundi sínum að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns Byggðasafnsins í Skógum hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 75.500.000, með lokagjalddaga þann 15. nóvember 2035, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem hreppsnefndin hefur kynnt sér. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki hreppsnefndar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til endurfjármögnunar á eldra láni sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Hreppsnefndin skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda Byggðasafnsins í Skógum til að breyta ekki ákvæði samþykkta Byggðasafnsins í Skógum sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að Ásahreppur selji eignarhlut í Byggðasafninu í Skógum til annarra opinberra aðila, skuldbindur Ásahreppur sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Valtý Valtýssyni sveitarstjóra, kt. 221060-2379, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Ásahrepps að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

22.
Byggðaþróunarfulltrúi Rangárvallasýslu
Lagt fram minnisblað frá fundi fulltrúa sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu og SASS þar sem fjallað var um möguleika á samstarfi sveitarfélaga í Rangárvallasýslu og SASS um byggðaþróunarfulltrúa fyrir sýsluna. Einnig lögð fram kynning um byggðaþróunarfulltrúa á Suðurlandi sem fram fór á fundi landshlutasamtaka og Byggðastofnunar um atvinnuráðgjöf og byggðaþróun, dags. 21. nóvember 2022.
Hreppsnefnd Ásahrepps tekur jákvætt í að skoða betur hugmyndir um sameiginlegan byggðaþróunarfulltrúa og skipa fulltrúa í vinnuhóp til að undirbúa verkefnið. Hreppsnefnd samþykkir samhljóða að skipa Nönnu Jónsdóttur sem fulltrúa Ásahrepps.
23.
Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis gististaðar í flokki II; Steinás 2
Lagt fram bréf Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 10. janúar 2023, þar sem óskað er umsagnar hreppsnefndar Ásahrepps vegna umsóknar um rekstsrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki II-C, minna gistiheimili. Umsækjandi er Tectonic Travel ehf kt. 580517-0560 og forsvarsmaður Nanna Maja Norðdahl kt. 030768-4939. Gististaður er á viðskipta- og þjónustulóðinni Steinás 2 (F252 098l) í Ásahreppi. Fyrir liggur að byggingarfulltrúi UTU gerir ekki athugasemdir við að veitt verði umsótt leyfi.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að gera engar athugasemdir við að leyfi verði veitt í rekstrarflokki II-C, fyrir allt að 4 gesti.
24.
Beini um fjárstyrk til Sigurhæða árið 2023
Lögð fram styrkbeiðni Sigurhæða, en erindinu var frestað á 6. fundi hreppsnefndar Ásahrepps þar sem forsendur lágu ekki fyrir. Nú liggur fyrir að Sigurhæðir fá áframhaldandi styrk frá Sóknaráætlun Suðurlands 2023.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja Sigurhæðir um kr. 88.000 á árinu 2023.
25.
Styrkbeiðni Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna
Lagt fram tölvuskeyti Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, dags. 11. janúar 2023, þar sem óskað er eftir fjárstyrk frá Ásahreppi vegna útgáfu blaðins Börn með krabbamein.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð 15.000.
26.
Styrkbeiðni Blindrafélagsins vegna útgáfu blaðsins Víðsjár
Lagt fram tölvuskeyti Blindrafélagsins, dags. 18. janúar 2023, þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna útgáfu blaðs félagins "Víðsjár".
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 5.000.
27.
Styrkbeiðni GoRed, vitundarvakning um hjartasjúkdóma
Lagt fram tölvuskeyti GoRed á Íslandi, vitundarvakning um hjartasjúkdóma, dags. 19. janúar 2023, þar sem óskað er eftir fjárstyrk við árlegt átak verkefnisins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að veita styrk að upphæð kr. 10.000.
28.
Rekstraryfirlit sveitarsjóðs Ásahrepps
Lagt fram málaflokkayfirlit fyrir sveitarsjóð Ásahrepps frá 1. janúar - 31. desember 2022.
Til kynningar.
29.
Mótvægisaðgerðir vegna Sporðöldulóns, aðgerðir 2022
Lagt fram minnisblað Landgræðslunnar, dags. 19. desember 2022, um mótvægisaðgerðir 2022 vegna Sporðöldulóns.
Til kynningar.
30.
Gjaldskrár raforku í dreifbýli og þéttbýli
Lagðar fram glærur frá kynningarfundi um gjaldskrár raforku í dreifbýli og þéttbýli.
Til kynningar.
31.
Uppsögn á þjónustusamningi um Sérdeild Suðurlands, Setrið
Lagt fram bréf frá fjölskyldusviði Sveitarfélagsins Árborg, dags. 27. desember 2022, þar sem þjónustusamningi um Sérdeild Suðurlands, Setrið, er sagt upp. Umræddur þjónustusamningur var milli Sérdeildar Suðurlands og Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Uppsögnin skýrist af erindi mennta- og barnamálaráðuneytis vegna nýrra laga um farsæld barna. Sveitarfélagið Árborg mun setja sér nýjar reglur um sérdeild Árborgar og er stefnt að því að þeirri vinnu ljúki og nýtt skipulag taki gildi 1. ágúst 2023. Gera þarf síðan samkomulag við sveitarfélög um hvern og einn nemanda sem búa utan Sveitarfélagsins Árborgar.
Til kynningar.
32.
Aukaaðalfundur Bergrisans bs, 20. febrúar 2023
Lagt fram tölvuskeyti Bergrisans bs. dags. 10. janúar 2023, þar sem boðað er til aukaaðalfundar þann 20. febrúar 2023.
Til kynningar
33.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti reglubundni fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn 15. febrúar 2023 á skrifstofu sveitarfélagsins. Fundur hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.