Hreppsnefnd Ásahrepps
9. fundur
4. nóvember 2026
kl.
08:30
-
10:50
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ísleifur Jónasson
hreppsnefndarfulltrúi
Helga Björg Helgadóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Kristín Hreinsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Gréta Vilborg Guðmundsdóttir
hreppsnefndarfulltrúi
Emil Þórðarson
hreppsnefndarfulltrúi
Starfsmenn
Guðmundur Einarsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson
skrifstofustjóri
Oddviti leitar afbrigða til að bæta inn nýjum fundarlið: Frumvarp til breytinga á skipulagslögum nr. 123 2010.
Breytingin samþykkt samhljóða.
Dagskrá
1.
Fundargerð 335.fundar skipulagsnefndar UTU
Lögð fram fundargerð 335. fundar skipulagsnefndar UTU
Mál 1. Sigöldustöð L239397; Stækkun, aukið afl og frárennslisskurður; Framkvæmdarleyfi - 2608030
Lagt er fram mál vegna leiðréttingar á málsheiti framkvæmdarleyfis fyrir frárennslisskurð vegna stækkunar og aukins afls Sigöldustöðvar. Við skráningu málsins var ranglega vísað til „bráðabirgðastíflu“ í málsheiti. Hvorki umsókn, fylgigögn, umsagnir, umfjöllun né afgreiðsla málsins tóku til bráðabirgðastíflu og er því um að ræða augljósa ritvillu í málsheiti en ekki efnislega breytingu á ákvörðun málsins.
Skipulagsnefnd UTU staðfestir að ranglega hafi verið vísað til „bráðabirgðastíflu“ í málsheiti framkvæmdarleyfismáls nr. 2608030. Um augljósa ritvillu var að ræða þar sem hvorki umsókn, fylgigögn, umfjöllun né afgreiðsla málsins tóku til slíkrar framkvæmdar. Nefndin samþykkir að málsheiti verði leiðrétt og skráð sem: „Sigöldustöð L239397; Stækkun og aukið afl; Frárennslisskurður; Framkvæmdarleyfi - 2608030.“ Leiðréttingin felur ekki í sér efnisbreytingu á áður samþykktri afgreiðslu málsins.
Leiðrétt bókun Skipulagsnefndar frá fundi 334 er því svohljóðandi;
1. Sigöldustöð L239397; Stækkun og aukið afl; Frárennslisskurður; Framkvæmdarleyfi - 2608030
Inngangur:
Lögð er fram umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir jarðvinnu vegna breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar, dags. 25. september 2026, ásamt fylgiskjölum.
Sigöldustöð er vatnsaflsvirkjun á Holtamannaafrétti. Fyrirhuguð er stækkun hennar um allt að 65 MW þar sem fjórðu vélinni er bætt við í stöðvarhús stöðvarinnar og fjórðu þrýstipípunni í fyrirliggjandi steyptum stokki sem liggur undir inntaksstíflunni. Uppsett afl virkjunarinnar er nú 150 MW en verður með stækkuninni aukið í 215 MW. Framkvæmdaleyfisumsókn Landsvirkjunar tekur til jarðvinnu vegna breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar. Framkvæmdaleyfisumsóknin er eingöngu bundin við ofangreindar framkvæmdir. Stækkun stöðvarhúss og lagning fallpípu eru byggingarleyfisskyldar framkvæmdir og kalla því ekki á framkvæmdaleyfi. Fyrir liggur útgefið framkvæmdaleyfi fyrir vinnubúðir og aðra aðstöðu sköpun sem tekur til sveitarfélaganna Ásahrepps og Rangárþings ytra, en hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti útgáfu þess á fundi sínum þann 22. janúar 2025. Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Landsvirkjunar og öðrum fylgigögnum umsóknar.
Bókun:
Skipulagsnefnd UTU hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna, virkunarleyfi ásamt heimild til breytingar á vatnshlotum og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsvirkjunar með framkvæmdaleyfisumsókninni. Þá liggja fyrir drög að greinargerð sveitarfélagsins þar sem fram koma skilyrði og mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar.
Skipulagsnefnd UTU telur sýnt fram á í fyrirliggjandi gögnum að brýna nauðsyn beri til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna. Nefndin telur jafnframt nægilega gerð grein fyrir framkvæmdinni eins og hún liggur fyrir umfram aðra valkosti í fyrirliggjandi gögnum og telur ekki með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum. Framkvæmdirnar eru nauðsynlegur grundvöllur þess að stækkun Sigölduvirkjunar geti orðið að veruleika og skilað raforku inn á flutningskerfi Landsnets. Framkvæmdin varðar mikilvæga almannahagsmuni til tryggingar raforkuöryggis í landinu og framboði af orku til orkuskipta. Skipulagsnefnd UTU mælist til við Hreppsnefnd Ásahrepps að fyrirliggjandi greinargerð verði samþykkt sem greinargerð og umsögn hreppsnefndar Ásahrepps um framkvæmdaleyfisumsóknina og að fallist verði á útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsvirkjunar og önnur fyrirliggjandi gögn.
Nefndin leggur áherslu á að leyfið verði bundið þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram koma í fyrirliggjandi drögum að greinargerð skv. 3. mgr. 27. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 29. september 2026.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að ekki verði gerð athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 í samræmi við framangreint, og önnur ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar nr. 772/2012.
Afgreiðsla hreppsnefndar Ásahrepps:
Mál tekið fyrir að nýju vegna misritunar í heiti máls og villu í bókun á 8. fundi hreppsnefndar Ásahrepps, sem haldinn var 21. október 2026.
Rétt heiti er: Sigöldustöð L239397; Stækkun, aukið afl og frárennslisskurður; Framkvæmdarleyfi - 2608030

Sigöldustöð er vatnsaflsvirkjun á Holtamannaafrétti. Fyrirhuguð er stækkun hennar um allt að 65 MW þar sem fjórðu vélinni er bætt við í stöðvarhús stöðvarinnar og fjórðu þrýstipípunni í fyrirliggjandi steyptum stokki sem liggur undir inntaksstíflunni. Uppsett afl virkjunarinnar er nú 150 MW en verður með stækkuninni aukið í 215 MW.
Framkvæmdaleyfisumsókn Landsvirkjunar tekur til jarðvinnu vegna breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar. Framkvæmdaleyfisumsóknin er eingöngu bundin við framangreindar framkvæmdir. Stækkun stöðvarhúss og lagning fallpípu eru byggingarleyfisskyldar framkvæmdir og kalla því ekki á framkvæmdaleyfi. Fyrir liggur útgefið framkvæmdaleyfi fyrir vinnubúðir og aðra aðstöðusköpun sem tekur til sveitarfélaganna Ásahrepps og Rangárþings ytra, en hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti útgáfu þess á fundi sínum þann 22. janúar 2025.
Framkvæmdum er nánar lýst í greinargerð Landsvirkjunar og öðrum fylgigögnum umsóknar.
Eftirtalin gögn eru lögð fram hjá hreppsnefnd:
1) Umsókn með greinargerð framkvæmdaraðila sem inniheldur staðháttalýsingu, lýsingu á þeim framkvæmdum sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir, lýsingu á frágangi og forsendur.
2) Teikningasett
3) Umhverfismatsskýrsla vegna stækkunar Sigöldustöðvar, ágúst 2023
4) Myndahefti umhverfismatsskýrslu
5) Álit Skipulagsstofnunar um umhverfismat vegna stækkunar Sigöldustöðvar, dags. 18.12.2023
6) Viðbót við umhverfismatsskýrslu vegna nýs áhrifamats vatnshlota, febrúar 2026
7) Álit HMS um viðbót við umhverfismatsskýrslu vegna áhrifa á vatnshlot, dags. 07.07.2026
8) Áhrifamat vatnshlota, unnið af Hafrannsóknarstofnun, dags. 21.01.2026.
9) Greinargerð deiliskipulags með umhverfismatsskýrslu, dags. 21.11.2022, breytt 01.09.2023
10) Deiliskipulag, Sigöldustöð, yfirlitsuppdráttur, dags. 21.11.2022, breytt 16.08.2023
11) Deiliskipulagsuppdráttur, Sigöldustöð, stöðvarhús og tengivirki 21.11.2022, breytt 16.08.2023
12) Deiliskipulagsuppdráttur, Sigöldustöð, yfirfall, dags. 21.11.2022
13) Deiliskipulagsuppdráttur, Sigöldustöð, botnrás, dags. 21.11.2022
14) Greinargerð deiliskipulagsbreytingar með umhverfismatsskýrslu, dags. 27.05.2024
15) Deiliskipulagsuppdráttur, Sigöldustöð, vinnubúðir og haugsvæði, dags. 27.05.2024
16) Deiliskipulagsuppdráttur, Sigöldustöð, yfirlitsuppdráttur 27.05.2024
17) Virkjunarleyfi Orkustofnunar vegna stækkunar Sigöldustöðvar, dags. 12.09.2024, ásamt fylgibréfi
18) Leyfi Fiskistofu, dags. 12.03.2024
19) Leyfi Forsætisráðuneytis vegna stækkunar Sigöldustöðvar, dags. 04.06.2024
20) Byggingarleyfi vegna viðbyggingar við stöðvarhús, dags. 27.08.2026
21) Greinargerð í samræmi við 3. mgr. 27. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 29.09.2026.
Málið var tekið fyrir hjá Skipulagsnefnd Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs. þann 28. október 2026. Á fundinum var lagt til við Hreppsnefnd Ásahrepps að fyrirliggjandi greinargerð yrði samþykkt sem greinargerð og umsögn hreppsnefndar um framkvæmdaleyfisumsóknina og lagt til að Hreppsnefnd Ásahrepps gæfi út framkvæmdaleyfi vegna breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar, í samræmi við fyrirliggjandi umsókn Landsvirkjunar og önnur fyrirliggjandi gögn. Nefndin lagði áherslu á að leyfið yrði bundið þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram koma í fyrirliggjandi greinargerð skv. 3. mgr. 27. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar, dags. 29. september 2026. Fundargerð Skipulagsnefndar Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita hefur verið staðfest af Hreppsnefnd Ásahrepps.
Bókun:
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur kynnt sér framkvæmdaleyfisumsóknina og önnur gögn auk þess sem hreppsnefnd hefur látið taka saman greinargerð í samræmi við 3. mgr. 27. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna framkvæmdarinnar, dags. 29. september 2026, sem liggur fyrir í gögnum málsins. Hreppsnefnd samþykkir framlagða greinargerð sveitarfélagsins, í samræmi við 3. mgr. 27. gr. laga nr. 111/2021, sbr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sem greinargerð og umsögn Hreppsnefndar um framkvæmdaleyfisumsóknina auk þess sem Hreppsnefnd vísar til umsagnar Skipulagsnefndar Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs.
Hreppsnefnd hefur, eins og nánar er gerð grein fyrir og rakið í greinargerð sveitarfélagsins, kynnt sér umsókn framkvæmdaraðila auk greinargerðar, matsskýrslu og önnur framlögð gögn og telur framkvæmdina sem lýst er í umsókn og framlögðum skjölum vera í samræmi við skipulagsáætlanir, matsskýrslu, úrskurði og ákvarðanir vegna umhverfismats framkvæmdanna, virkjunarleyfi ásamt heimild til breytingar á vatnshlotum og önnur fyrirliggjandi gögn, þ.m.t. greinargerð Landsvirkjunar með framkvæmdaleyfisumsókninni.
Hreppsnefnd telur að í fyrirliggjandi gögnum sé sýnt fram á að brýna nauðsyn beri til framkvæmdanna vegna mikilvægra almannahagsmuna. Jafnframt telur nefndin að í fyrirliggjandi gögnum sé næg grein gerð fyrir framkvæmdum við stækkun Sigöldustöðvar umfram aðra valkosti og að ekki sé með góðu móti unnt að ná tilgangi framkvæmdarinnar með umhverfisvænni leiðum. Framkvæmdirnar eru nauðsynlegur grundvöllur þess að stækkun Sigöldustöðvar geti orðið að veruleika og skilað raforku inn á flutningskerfi Landsnets. Framkvæmdin varðar mikilvæga almannahagsmuni til tryggingar raforkuöryggis í landinu og framboði af orku til orkuskipta.
Með vísan til rökstuðnings í greinargerð hreppsnefndar í samræmi við 3. mgr. 27. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, sbr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, dags. 29. september 2026, samþykkir Hreppsnefnd að gefið verði út framkvæmdaleyfi í samræmi við framlagða umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir jarðvinnu vegna breikkunar frárennslisskurðar og annarra jarðvegsframkvæmda við frárennslisskurð vegna stækkunar Sigöldustöðvar, með þeim skilyrðum og mótvægisaðgerðum sem fram koma í greinargerð sveitarfélagsins og nánar er gerð grein fyrir í öðrum framlögðum gögnum, s.s. varðandi vöktun og frágang vegna framkvæmdarinnar.
Skipulagsfulltrúi fer með eftirlit með framkvæmdinni og því að öllum skilyrðum sem framkvæmdinni hafa verið sett sé framfylgt og hún sé í samræmi við leyfi og fylgigögn leyfis. Skipulagsfulltrúi skal skila af sér skýrslu til hreppsnefndar um framkvæmd eftirlitsins fyrir lok hvers áfanga framkvæmdarinnar. Verði skilyrðum vegna framkvæmdarinnar ekki framfylgt, ásigkomulagi, frágangi, notkun eða umhverfi framkvæmdar eða eigin eftirliti framkvæmdaraðila ábótavant eða stafi af framkvæmdinni hætta skal skipulagsfulltrúi tilkynna hreppsnefnd þar um. Þá skal skipulagsfulltrúi gera grein fyrir frávikum og tilkynna framkvæmdaraðila skriflega um frávik og kröfur til úrbóta.
Hreppsnefnd felur skipulagsfulltrúa, að uppfylltum framlögðum skilyrðum, að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við framangreint, samkvæmt ákvæði skipulagslaga nr. 123/2010 og ákvæði reglugerðar nr. 772/2012.
Samþykkt samhljóða
Mál 2. Ásmundarstaðir 1 25 L187658; skilgreindar nýjar lóðir; Deiliskipulag - 2607024
Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Ásmundarstaði 1 og 3 í Ásahreppi að lokinni kynningu og yfirferð umsagna. Í deiliskipulaginu felst stofnun tveggja nýrra íbúðarlóða þar sem heimilt verður að byggja allt að þrjú hús á hvorri lóð.
Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Landsneti, Veitum og Náttúruverndarstofnun, auk athugasemda frá landeiganda. Engar athugasemdir bárust frá Landsneti og Náttúruverndarstofnun. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands gerði ekki athugasemdir við tillöguna. Veitur bentu á að svæðið væri utan skyldusvæðis og að semja þyrfti sérstaklega um notkun á heitu vatni. Landeigandi gerði ekki athugasemdir við deiliskipulagið sem slíkt en vakti athygli á nálægð við búrekstur og mögulegum áhrifum hans á íbúa.
Skipulagsnefnd UTU mælist til þess við hreppsnefnd Ásahrepps að deiliskipulagið verði samþykkt með fyrirvara um lagfæringu á gögnum í samræmi við framkomnar umsagnir og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða deiliskipulag fyrir Ásmundarstaði 1 og 3. Bugðist hefur verið við umsögnum frá nærliggjandi landeiganda og öll gögn og meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins og verði því auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.
Fundargerð 5. fundar Húsakynna bs.
Lögð fram fundargerð 5. fundar Húsakynna bs.
Til kynningar.
3.
Fundargerð 4. fundar stjórnar byggðarsamlags UTU
Lögð fram fundargerð 4. fundar stjórnar byggðarsamlags UTU.
Til kynningar.
4.
Fundargerð 26-268, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Lögð fram fundargerð 26-268 með afgreiðslum byggingarfulltrúa.
Til kynningar.
5.
Fundargerð 26-269, afgreiðslur byggingarfulltrúa
Lögð fram fundargerð 26-269 með afgreiðslum byggingarfulltrúa.
Til kynningar.
6.
Fundargerð 2. fundar héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga
Lögð fram fundargerð 2. fundar héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga
Til kynningar.
7.
Fundargerð 3. fundar héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga
Lögð fram fundargerð 3. fundar héraðsráðs Héraðsnefndar Rangæinga
Til kynningar.
8.
Fundargerð 103. fundar stjórnar félags- og skólaþjónustu (FSRS)
Lögð fram fundargerð 103. fundar stjórnar FSRS.
Dagskrárliður 1 þarfnast staðfestingar hreppsnefndar Ásahrepps.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fjárhagsáætlun Félags- og skólaþjónustu fyrri árið 2027.
Aðrir dagskrárliðir eru til kynningar.

9.
Fundargerð 639. fundar stjórnar SASS
Lögð fram fundargerð 639. fundar stjórnar SASS.
Til kynningar.
10.
Gjaldskrá fyrir hreinsun rotþróa 2027
Lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir losun rotþróa fyrir árið 2027.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða hækkun allra liða gjaldskrár um 2,5% vegna hreinsunar rotþróa og felur oddvita og sveitarstjóra að birta hana í B-deild Stjórnartíðinda.
11.
Viðauki við fjárhagsáætlun 2026
Lagður fram viðauki 4 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Ástæður hans eru annars vegar breytingar á bókahaldslyklum vegna breytinga á reglugerð 1212/2015 og hins vegar samræming fjáhagsáætlunar við rekstur.
Lagður fram viðauki númer 4 við fjárhagsáætlun ársins 2026, sem settur var upp af KPMG.
Færslur tilkomnar vegna breytingar á reglugerð 1212/2015 hafa engin áhrif á rekstrarniðurstöðu heldur eingöngu tilfærslur milli málaflokka og deilda. En hækkun einstakra liða vegna rekstrar skiptist þannig: Málaflokkur 01 um 2.690.000 kr, málaflokkur 09 um 2.500.000 kr og málaflokkur 21 um 2.050.000 kr. Alls að upphæð 7.240.000 kr sem mætt verður með lækkun á handbæru fé sveitarsjóðs .
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða viðauka 4 við fjáhagsáætlun ársins 2026.
Skrifstofustjóra falið í samvinnu við KPMG að tilkynna til viðkomandi aðila.

12.
Dagur sauðkindarinnar, styrkbeiðni
Lögð fram beiðni frá Félagi sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu, þar sem óskað er eftir stuðningi vegna Dags sauðkindarinnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið um 60.000 krónur.
13.
Frístundaakstur
Lagt fram erindi frá Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd RY um mögulegan frístundaakstur innan sýslunnar.
Hreppsnefnd Ásahrepps líst vel á áformin og samþykkir samhljóða að taka þátt í verkefninu.
14.
Útivistarstígar í Ásahreppi
Lögð fram greinargerð frá verkefnastjóra útivistarstíga um stöðuna mála.
Til kynningar.
15.
Frumvarp til breytinga á skipulagslögum nr. 123 2010
Fyrir liggur á Alþingi frumvarp til breytinga á skipulagslögum nr. 123/2010.
Hreppsnefnd Ásahrepps hefur farið yfir drög að umsögn um frumvarpið og samþykkir samhljóða að fela oddvita og skrifstofustjóra að senda inn umsögn.
16.
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps
Næsti fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 18. nóvember, á skrifstofunni Laugalandi og hefst klukkan 8:30.
Til kynningar.