Fara í efni

Viðburðanefnd Ásahrepps

2. fundur
12. október 2026 kl. 14:30 - 15:30
á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum.
Nefndarmenn
Ásta Berghildur Ólafsdóttir formaður
Þráinn Ingólfsson
Hugrún Hannesdóttir
Starfsmenn
Guðmundur Einarsson
Jóhann G. Jóhannsson
Fundargerð ritaði:
Guðmundur Einarsson skrifstofustjóri
Dagskrá
1.
Starf nefndarinnar framundan
Málsnúmer 2609019
Farið yfir þau atriði sem voru til umræðu á síðasta fundi og hvernig starfinu verði háttað á næstunni.
Rætt um viðburð fyrir eldri borgara. Stefnt er á 5. nóvember klukkan 17:00 og verða kótilettur með meðlæti í boði.
Óskað er eftir að nýta fjármagn sem ætlað var í 17. júní fyrir þennan viðburð.

Ætlunin er að senda út dreifibréf vegna þessa viðburðar auk fleiri upplýsinga er varða eldri íbúa.

Jóhann G. Jóhannsson fór yfir starf sitt sem Íþrótta- og fjölmenningafulltrúi.

Nefndin stefnir á þrjá til fjóra viðburði á næsta ári.
Óskað er eftir fjárframlagi vegna næsta árs að upphæð 2,5 milljónir.
2.
Ákvörðun um næsta fund
Málsnúmer 2609020
Ákvörðun um næsta fund nefndarinnar.
Stefnt er á næsta fund fyrri part desember.