Fara í efni

Framlag vegna útivistarstíga

Fyllið út öll stjörnumerkt svæði í þessu formi. Undirskriftir allra umsækjanda þurfa að fylgja umsókn. Séu þær tiltækar í sérstöku skjali er hægt að hengja það við formið hér að neðan og senda inn, að öðrum kosti fylla út formið, prenta það út, undirrita og senda sem viðhengi á asahreppur@asahreppur.is, eða koma á skrifstofu hreppsins.

Reglur um úthlutun:

Fjárframlag vegna útivistarstíga í flokki 1 er að hámarki 1.500.000 á hvert lögheimili


Verklagsreglur við úthlutun fjárframlaga til viðhalds eða lagningu nýrra útivistarstíga í Ásahreppi 

Reglur varðandi fjárframlög til gerðar útivistarstíga: Framlög til nýlagningar og viðhalds útivistarstíga eru ávallt háð þeim fjárveitingum sem til staðar er í fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins á hverju ári. Fjárhæð fjárframlags miðast við lögheimili umsækjenda og verða þeir að hafa lögheimili í sveitarfélaginu. Fleiri en eitt lögheimili geta sameinast um eina umsókn um ákveðinn kafla stígs. Ekki er hægt að sækja um styrk nema einu sinni á ári. Umsóknir þurfa að berast fyrir 10. apríl ár hvert, en ef umsókn berst eftir 10. apríl þá flyst umsóknin til næsta árs. Hægt er að nálgast þessar reglur og umsóknareyðublað á heimasíðu Ásahrepps. 

Þeir aðilar sem sækja um í fyrsta sinn hafa forgang að úthlutun. Ræður fjölda veittra vilyrða um fjárframlag röðun um úthlutun á hverjum tíma. 

Flokkur 1: Nýr útivistarstígur eða það gamall og uppgróinn að ekki er um viðhald að ræða. 

  • Hámarks fjárhæð er 1.500.000 kr miðað við 3 m breiðan útivistarstíg þar sem enginn stígur er eða það gamall að ekki sé hægt að flokka verkið sem viðhaldsverkefni.
  • Krafa er gerð um að viðkomandi stígur sé opinn almenningi. Umsóknum verður forgangsraðað eftir því sem þær berast.
  • Reiknað er með því að umsækjendur hafi samráð við verkefnastjóra um útvegun og keyrslu á efni á staðinn en muni dreifa efninu sjálfir, t.d. með sturtuvagni í stæði stígs. Útivistarstígur liggi með tengi- eða héraðsvegi.
  • Þeir aðilar sem hugsa sér framkvæmdir á útivistarstígum sæki um skriflega til hreppsnefndar sem afgreiðir umsóknirnar formlega á næsta reglubundna fundi.

Fjárframlag vegna útivistarstíga í flokki 2 er að hámarki kr 750.000 á hvert lögheimili


Verklagsreglur við úthlutun fjárframlaga til viðhalds eða lagningu nýrra útivistarstíga í Ásahreppi 

Reglur varðandi fjárframlög til gerðar útivistarstíga: Framlög til nýlagningar og viðhalds útivistarstíga eru ávallt háð þeim fjárveitingum sem til staðar er í fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins á hverju ári. Fjárhæð fjárframlags miðast við lögheimili umsækjenda og verða þeir að hafa lögheimili í sveitarfélaginu. Fleiri en eitt lögheimili geta sameinast um eina umsókn um ákveðinn kafla stígs. Ekki er hægt að sækja um styrk nema einu sinni á ári. Umsóknir þurfa að berast fyrir 10. apríl ár hvert, en ef umsókn berst eftir 10. apríl þá flyst umsóknin til næsta árs. Hægt er að nálgast þessar reglur og umsóknareyðublað á heimasíðu Ásahrepps. 

Þeir aðilar sem sækja um í fyrsta sinn hafa forgang að úthlutun. Ræður fjölda veittra vilyrða um fjárframlag röðun um úthlutun á hverjum tíma. 

Flokkur 2: Viðhald núverandi útivistarstíga.

  • Ffjárframlagi að hámarki 750.000 kr miðað við 3 m breiðan stíg.
  • Krafa er gerð um að viðkomandi stígur sé opinn almenningi.
  • Umsóknum verður forgangsraðað eftir því sem þær berast.
  • Reiknað er með því að umsækjendur hafi samráð við verkefnastjóra um útvegun og keyrslu á efni á staðinn en muni dreifa efninu sjálfur, t.d. með sturtuvagni í stæði stígs. Útivistarstígur liggi með tengi- eða héraðsvegi.
  • Þeir aðilar sem hugsa sér framkvæmdir á útivistarstígum sæki um skriflega til hreppsnefndar sem afgreiðir umsóknirnar formlega á næsta reglubundna fundi.

Fjárframlag vegna útivistarstíga í flokki 3 er að hámarki kr 1.500.000 á hvert lögheimili


Verklagsreglur við úthlutun fjárframlaga til viðhalds eða lagningu nýrra útivistarstíga í Ásahreppi 

Reglur varðandi fjárframlög til gerðar útivistarstíga: Framlög til nýlagningar og viðhalds útivistarstíga eru ávallt háð þeim fjárveitingum sem til staðar er í fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins á hverju ári. Fjárhæð fjárframlags miðast við lögheimili umsækjenda og verða þeir að hafa lögheimili í sveitarfélaginu. Fleiri en eitt lögheimili geta sameinast um eina umsókn um ákveðinn kafla stígs. Ekki er hægt að sækja um styrk nema einu sinni á ári. Umsóknir þurfa að berast fyrir 10. apríl ár hvert, en ef umsókn berst eftir 10. apríl þá flyst umsóknin til næsta árs. Hægt er að nálgast þessar reglur og umsóknareyðublað á heimasíðu Ásahrepps. 

Þeir aðilar sem sækja um í fyrsta sinn hafa forgang að úthlutun. Ræður fjölda veittra vilyrða um fjárframlag röðun um úthlutun á hverjum tíma. 

Flokkur 3: Lagning útivistarstíga til tenginga við stofnstíga sem sveitarfélagið hyggst leggja um sveitarfélagið.

Ákveðið að veita styrk að hámarki 1.500.000 kr miðað við 3 m breiðan útivistarstíg þar sem verið er að leggja stíg sem tengir viðkomandi jörð við stofnstíga sveitarfélagsins. Krafa er gerð um að viðkomandi stígur sé opinn almenningi. 

Umsóknum verður forgangsraðað eftir því sem þær berast. Reiknað er með því að umsækjendur hafi samráð við verkefnastjóra um útvegun og keyrslu á efni á staðinn en muni dreifa efninu sjálfur, t.d. með sturtuvagni í stæði stígs. Þeir aðilar sem hugsa sér framkvæmdir á útivistarstígum sæki um skriflega til hreppsnefndar sem afgreiðir umsóknirnar formlega á næsta reglubundna fundi.

Umsóknir um lagningu þessara stíga mun njóta forgangs til jafns við þá sem sækja um styrk í fyrsta sinn.  Þessi forgangur helst þar til að tenging hefur orðið við stofnstíga sveitarfélagsins.

Fylla þar út umsóknareyðublað þar sem fram kemur áætlaður verktími, lýsing á staðsetningu stígsins og efni sem nota á til verksins. Aðili á vegum sveitarfélagsins hefur umsjón með myndatöku af verksvæði fyrir og eftir lagningu stígsins. Styrkur er greiddur gegn framvísun reikninga og að lokinni úttekt af umsjónaraðila. Hægt er að sækja um frestun á verklokum ef málefnalegar ástæður liggja fyrir.

Styrkurinn nær yfir jarðefni, ræsi og aðkeyptan flutning á efni að verkstað. Styrkurinn nær ekki yfir vinnu við lagningu stígs, girðingarefni eða vinnu við girðingar. Ásahreppur útvegar hliðgrindur sem setja skal upp á landamörkum þegar um verkefni í flokki 3 er að ræða.

Umsókn um fjárfamlag vegna útivistarstígs

Ef undirskriftir eru tiltækar er hægt að setja þær inn sem viðhengi og senda hér að neðan - eða ef undirskriftir vantar þarf að bæta inn línum fyrir undirskriftir, prenta út, undirrita og senda til eða afhenda skjalið á skrifstofu Áshrepps

Nöfn allra umsækjanda. Bætið við línum eftir þörfum og prentið út. Eiginhandar undirskrift allra er skilyrði að umsókn sé tekin gild.

Nafn - kennitala - Lögheimili