Miðvikudagur, 30. apríl 2025
Þá líður senn að stóra deginum !
Æskulýðssýning Hestamannafélagsins Geysis verður haldin í Rangárhöllinni á Hellu 1.maí næstkomandi. Í vetur hefur gríðarlegur fjöldi barna lagt stund á hestamennsku í Rangárvallasýslu og munum þau sýna afrakstur vetursins. Börnin eru á aldrinum 3-18 ára.
Sýningin hefst kl. 11:00.
Að sjálfsögðu verður sjoppa á staðnum!
Hvetjum sem flesta til að taka daginn frá og njóta með okkur.
Frítt inn og allir velkomnir!
Stjórn og Æskulýðsnefnd Hestamannafélagsins Geysis