Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Ásahreppi, sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.
Þann sama dag tekur kjörstjórn sveitarfélagsins á móti framboðslistum á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi, á milli kl. 11:00 og 12:00.
Hverjum framboðslista skal fylgja:
-
Tilkynning um framboð, þar sem fram koma upplýsingar um heiti stjórnmálasamtakanna og listabókstaf þeirra, samkvæmt skrá dómsmálaráðuneytisins.
- Ef stjórnmálasamtök hafa ekki listabókstaf skal óska eftir honum við yfirkjörstjórn sveitarfélagsins.
- Upplýsingar um hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans, ásamt samþykki þeirra.
- Framboðslisti ásamt undirrituðu samþykki frambjóðenda fyrir því að fara í framboð.
- Meðmæli með framboðinu – að lágmarki 10 og hámarki 20. Hægt er að safna meðmælum rafrænt á island.is.
- Heimilt er að safna meðmælum á pappír. Mælst er til þess að framboð slái meðmælin inn í rafræna meðmælakerfið. Skila þarf inn frumriti til yfirkjörstjórnar sveitarfélagsins.
Óhlutbundin kosning
Komi til þess að engir framboðslistar verði lagðir fram verður kosning í sveitarfélaginu óhlutbundin. Eru þá allir kjósendur í sveitarfélaginu í kjöri, nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrirfram skorast undan því.
Þeir sem eru löglega undanþegnir skyldu til að taka kjöri eru þeir sem:
- eru eldri en 65 ára
- eru ekki heilir eða hraustir
- skorast undan endurkjöri, eftir að hafa setið eitt kjörtímabil eða lengur
Þeir sem falla undir lið 2 eða 3 þurfa að tilkynna það til kjörstjórnar áður en framboðsfrestur rennur út, ellegar eru þeir skyldugir til að taka sæti í sveitarstjórn nái þeir kjöri. Slíkri tilkynningu má skila í tölvupósti til formanns kjörstjórnar á netfangið kristinosk@laugaland.is eða skriflega til kjörstjórnar milli 11:00 og 12:00 þann 10. apríl á skrifstofu sveitarfélagsins.
Kjörstjórn Ásahrepps
Kristín Ósk Ómarsdóttir
Hulda Brynjólfsdóttir
Benedikt Elvar Jónsson
