Breytingar hafa orðið í starfsmannahaldi hjá skrifstofu Ásahrepps. Ragnheiður Á. Ólafsdóttir sagði starfi sínu lausu í lok október 2025 og lauk störfum í lok janúar á þessu ári. Er henni þökkuð góð störf á undangengnum árum og óskað velfarnaðar í þeim verkefnum sem hún tekur sér fyrir. Einnig er fyrirséð að Valtýr Valtýsson mun ljúka störfum sem sveitarstjóri Ásahrepps í lok þessa kjörtímabils, í lok maí á þessu ári. Hreppsnefnd ákvað að bregðast við þessum breytingum og fyrirsjáanlegu breytingum sem verða í kjölfar næstu sveitarstjórnarkosninga með því að auglýsa nýtt starf hjá skrifstofu Ásahrepps. Ákvörðun var tekin, á 45. fundi hreppsnefndar þann 19. nóvember 2025, að auglýsa nýtt starf hjá skrifstofu sveitarfélagsins, starf skrifstofustjóra. Mögnum ráðningarþjónusta annaðist auglýsingu starfsins og úrvinnslu umsókna og skipulag atvinnuviðtala. Starfið var auglýst laust til umsóknar þann 11. desember með umsóknarfresti til 15. janúar 2026. Alls sóttu 12 einstaklingar um starfið.
Eftir að unnið hafði verið úr umsóknum var tekin ákvörðun um ráðningu skrifstofustjóra á 49. fundi hreppsnefndar Ásahrepps, þann 18. febrúar s.l.
Samþykkti hreppsnefnd Ásahrepps samhljóða að ráða Guðmund Einarsson í starfið. Guðmundur er iðnrekstrarfræðingur með fjölbreytta starfsreynslu að baki. Var hann meðal annars starfsmaður HSK á sínum tíma og oddviti Hraungerðishrepps eitt kjörtímabil. Hann vann hjá Landspítalanum eftir að hann hafði lokið störfum sem oddviti Hraungerðishrepps og í framhaldinu hjá Símanum, meðal annars við rekstur og þróun viðskiptakerfa, tekjueftirlit, stýringu teyma og verkefnisstjórnun. Guðmundur hefur síðustu ár unnið hjá Borgarskjalasafni Reykjavíkur við innleiðingu og rekstur umsýslukerfis og í framhaldinu verkþáttum sem tengdust lokun safnsins.
Guðmundur Einarsson hóf störf hjá Ásahreppi í byrjun marsmánaðar og er hann boðinn velkominn til starfa.
