Framlagning kjörskrár og kjörstaður í Ásahreppi
Kjörfundur vegna Alþingiskosninga verður haldinn að Laugalandi í Holtum (Miðgarði), fyrir alla kjósendur Ásahrepps. Kjörfundur hefst laugardaginn 30. nóvember n.k. klukkan 10:00 og lýkur kl. 18:00.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki með mynd.
Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi frá 9. nóvember 2024 og fram á kjördag. Skrifstofan er opin á mánudögum og miðvikudögum milli kl. 12:00 og 16:00.
Bent er á upplýsingavef http://www.kosning.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Þar er einnig er hægt að nálgast upplýsingar hvar kjósandi er á kjörskrá, en krækja á þá leit er: Alþingiskosningar 2024 | Þjóðskrá
Kjörstjórn Ásahrepps