Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir laust til umsóknar starf þroskaþjálfa og/eða félagsráðgjafa í málaflokk fatlaðs fólks. Um er að ræða 50 – 100 % starfshlutfall. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri Félags- og Skólaþjónustu Rangárvalla og Vestur Skaftafellssýslu sem annast félags- og Skólaþjónustu sveitarfélaganna í Ásahreppi, Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi. Skrifstofa félagsþjónustunnar er staðsett á Hellu. Í sveitarfélögunum búa u.þ.b. 5.300 manns. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og þroskaþjálfafélags Íslands, Félagsráðgjafafélags Íslands eða annara félaga sem við eiga.
Helstu verkefni:
- Umsjón og eftirlit með þjónustu sveitarfélagana við fötluð börn
- Sinnir ráðgjöf ásamt fræðslu, leiðsögn og stuðningi við þjónustunotendur og starfsmenn
- Hefur yfirlit yfir þjónustuþega og þá þjónustu sem veitt er og vinnur þjónustumat í samstarfi við aðra sérfræðinga
- Umsjón með SIS mati, samþættingu þjónustu, umönnunargreiðslum, þjónustu stuðningsfjölskyldna og þeirrar stoðþjónustu sem við á
- Tengiliður við greiningarstofnanir og aðra þjónustuaðila fatlaðs fólks
- Virk þátttaka í mótun verkferla
- Virk þátttaka í endurskoðun reglna
Menntunar og hæfnikröfur:
- Starfsréttindi sem þroskaþjálfi eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður
- Þekking á málaflokknum, lögum og reglugerðum æskileg
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslenskukunátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Launakjör eru samkvæmt samningum sambands íslenskra sveitarfélaga við þroskaþjálfafélag Íslands eða annara félaga.
Til greina kemur að ráða einstakling með aðra menntun sem nýtist í starfi ef engin þroskaþjálfi/félagsráðgjafi sækir um.
Umsóknarfrestur er til og með 19. desember 2022. Umsóknum skal skilað til Svövu Davíðsdóttur, framkvæmdastjóra félags- og skólaþjónustu í tölvupósti á svava@felagsmal.is með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Bæði karlar og konur eru hvött til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Svava Davíðsdóttir í síma 487-8125 eða á netfangið svava@felagsmal.is