Þriðjudagur, 14. March 2017
Þau ykkar sem ekki eiga heimangengt á tónleika okkar í Sankti-Pétursborg þann 20. apríl næstkomandi eru hjartanlega velkomin á vortónleika í:
- Selfosskirkju, föstudaginn 31. mars, kl. 20:00.
- Salnum Kópavogi, miðvikudaginn 5. apríl, kl. 20:00.
- Hvolnum Hvolsvelli, ásamt Karlakór eldri Þrasta, laugardaginn 8. apríl, kl. 14:00.
Dagskráin er fjölbreytt og þjóðleg í tilefni Rússlandsferðar og nokkrar perlur íslenskra karlakóra á efnisskránni.
Stjórnandi Karlakórs Rangæinga er Guðjón Halldór Óskarsson en undirleikarar þau Glódís Margrét Guðmundsdóttir,
á píanó, og Grétar Geirsson á harmoníku. Aðgangseyrir kr 3.000,- en frítt fyrir 16 ára og yngri”.