Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps undirbýr nú snjallmælavæðingu og verða fyrstu skref hennar tekin á næstunni.
Í upphafi verður undirbúningur hafinn við að mælavæða stærri notendur á borð við fyrirtæki, stærri bú og gististaði á starfssvæði vatnsveitunnar.
Eftir uppsetningu mælanna verður tilkynnt hvenær innheimta hefst samkvæmt snjallmælingum.
Starfsmenn vatnsveitunnar munu heimsækja viðkomandi staði til að afla upplýsinga um hentugan stað fyrir mælingu og jafnframt til að sannreyna stærð heimæðar.
Haft verður samband við viðkomandi aðila með símtali áður en starfsfólk mætir á staðinn.
Vatnsveitan vonast eftir góðri samvinnu við notendur við undirbúning vinnunnar.