Sprengingar við Hvammsvirkjun

Föstudagur, 2. maí 2025

Vegna jarðvegsvinnu við undirbúning Hvammsvirkjunar má reikna með að verktakar þurfi á næstunni að sprengja berg á svæðinu. Búast má við að einhverjar sprengingar verði flesta daga í sumar, á bilinu frá kl. 8 á morgnana til kl. 19 á daginn. Sprengingar um helgar verða takmarkaðar eins og unnt er.

Við biðjumst velvirðingar á því ónæði sem þessar óhjákvæmilegu sprengingar geta valdið og munum kappkosta að láta íbúa í nágrenni framkvæmdanna vita af þeim fyrirfram, eftir því sem kostur er.

Allar frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu verkefnisins: https://www.landsvirkjun.is/hvammsvirkjun  eða með því að smella hér: Hvammsvirkjun