Framlagning kjörskrár og kjörstaður í Ásahreppi.
Kjörfundur vegna sveitarstjórnakosninga verður haldinn í félagsheimilinu Ásgarði, Ási, fyrir alla íbúa Ásahrepps. Kjörfundur hefst laugardaginn 14. maí n.k. klukkan 10:00 og lýkur kl. 18:00.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki með mynd.
Kjörskrá fyrir Ásahrepp liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Laugalandi frá 23. apríl til kjördags á opnunartíma sem er á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 12:00 til 16:00.
Bent er á upplýsingavef http://www.kosning.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Þar geta kjósendur einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefslóðinni:
https://www.skra.is/thjonusta/einstaklingar/kjorskra-og-kosningarettur/
Hreppsnefnd Ásahrepps