Í byrjun maí áætlar Landsvirkjun að hefja umfangsmikla flutninga á vindmyllum frá Þorlákshöfn til Vaðölduvers í Rangárþingi ytra sem standa munu yfir í 7-9 vikur.
Flutningarnir verða að næturlagi en landeigendur og íbúar á svæðinu munu óhjákvæmilega verða varir við þá. Við viljum draga eins og kostur er úr raski á daglegu lífi íbúa, landeigenda og annarra sem búa eða starfa við flutningsleiðina með góðri upplýsingagjöf.
Á upplýsingasíðunni www.landsvirkjun.is/flutningar er að finna helstu upplýsingar um flutningana. Á síðunni www.landsvirkjun.is/tilkynningar er hægt að skrá netföng á póstlista til að fá helstu tilkynningar um flutninga og framkvæmdir sendar í tölvupósti.
Við bendum jafnframt á vefi Vegagerðarinnar, www.umferdin.is sem og www.safetravel.is, þar sem fylgjast má með rauntímaupplýsingum um færð, lokanir og aðrar aðstæður á vegum.
Auk þess bendum við á kynningarmyndband um flutningana:
https://youtu.be/W8hK9m_jWhc?si=HpINkubWh2MoOxOn
Fyrirspurnir má senda hér:
https://www.landsvirkjun.is/form/fyrirspurn-framkvaemdir
Vaktsími vegna flutninga: 690-8088
Í stuttu máli:
- 14 vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn í Ölfusi að Vaðölduveri í Rangárþingi ytra í maí og júní/byrjun júlí 2026.
- Áætlað er að flutningar hefjist aðfaranótt 7. maí.
- Áætlað er að flutt verði að nóttu til.
- Almennt verður hægt að mæta flutningslestinni en ekki verður hægt að taka fram úr henni. Lögreglan stýrir flutningunum og umferð í kringum þá.
- Áætlað er að flutningslestin verði um 60 mínútur að ferðast á Þjóðvegi 1, frá Selfossi að Landvegamótum.
