15.07.2021
Fréttir
14.07.2021
Skipulagsauglýsing UTU 14. júlí 2021
Til að sjá auglýsinguna er hægt að fara á heimasíðu UTU með semlla á krækjuna hér á eftir: https://www.utu.is/skipulagsauglysingar/
02.07.2021
Skipulagslýsing fyrir Suðurhálendið
Með því að smella á krækjuna hér fyrir neðan má sjá auglýsingu svæðisskipulagsnefndar Suðurhálendis:
01.07.2021
Opið hús í bólusetningu
30.06.2021
Skipulagsauglýsing UTU 30. júní 2021
Til að sjá auglýsinguna er hægt að fara á heimasíðu UTU með því að smella á krækjuna hér á eftir: https://www.utu.is/skipulagsauglysingar/
26.06.2021
44. fundur hreppsnefndar Ásahrepps, aukafundur
Aukafundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 30. júní 2021. Þetta er 44. fundur hreppsnefndar og verður fundurinn haldinn í fjarfundakerfi Zoom og hefst klukkan 8:30.
26.06.2021
Opinn bólusetningadagur
23.06.2021
Lokun skrifstofu Ásahrepps vegna sumarleyfa
Skrifstofa Ásahrepps verður lokuð vegna sumaarleyfa frá 1. júlí 2021 til og með 6. ágúst 2021, skv. ákvörðun hreppsnefndar á 43. fundi sínum.
14.06.2021
Kálfholtskirkja
Við fögnum sumri og verðum með kvöldguðsþjónustu sunnudagskvöldið 20. júní 2021, kl. 20:30. Kórinn syngur lög og sálma sem hæfa árstímanum og gefa stundinni helgan og bjartan blæ. Kaffisopi og aðalsafnaðarfundur verður að athöfn lokinni.
14.06.2021
Hátíðarhöld í Ásabrekkuskógi, 17. júní 2021
Smelltu á myndina hér fyrir neðan, þá færðu hana upp í stærra formi.
11.06.2021
43. fundur hreppsnefndar Ásahrepps
43. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn í Zoom fjarfundarkerfi miðvikudaginn 16. júní 2021. Fundurinn hefst klukkan 8:30.
02.06.2021
Skipulagsauglýsing UTU 2. júní 2021
Til að sjá auglýsingu þarf að smella á krækjuna hér fyrir neðan:
26.05.2021
Tíu ár frá öskugosi.
Þann 21. maí 2021 eru liðin tíu ár frá því að gos hófst í Grímsvötnum. Mikið öskufall fylgdi gosinu. Ári áður var gos á Fimmvörðuhálsi og síðan gaus Eyjafjallajökull og stöðvaði alla umferð um Evrópu og víðar um heiminn. Gosið í Grímsvötnum stóð yfir í viku en það kom mikið magn ösku upp. Það er hryllileg tilhugsun að gosið hefði í tæpa fjörutíu daga eins og Eyjafjallajökull gerði árið áður. Askan olli íbúum Skaftárhrepps miklum áhyggjum, mikil vinna var að þrífa allt innan sem utan og askan hafði áhrif á allt samfélagið næstu daga og sumarið. En þrátt fyrir að þessi tími hafi verið erfiður langar Menningarmálanefnd Skaftárhrepps og Vatnajökulsþjóðgarði að minnast þessa atburðar með hátíð sem við köllum Öskuminningar. Drög að dagskrá er komin inn á viðburðadagatalið á þessari síðu.
19.05.2021
Skrifstofa Ásahrepps lokuð fyrir almenningi vegna COVID-19
Skrifstofa Ásahrepps er lokuð almenningi frá og með 19. apríl 2021, skv. ákvörðun hreppsnefndar á 42. fundi sínum.
10.05.2021
Kálfholtskirkja
Fermingarmessa verður á uppstigningardag fimmtudaginn 13. maí nk. kl. 11.00.
10.05.2021
Tilkynning vegna sorphirðu í vikunni
Sorphirða á gulu svæði verður á fimmtudag 13. maí ekki á föstudag 14. maí eins og fram kemur í útgefnu sorphirðudagatali.

28.04.2021
Yngvi Karl Jónsson ráðinn skólastjóri Laugalandsskóla
Yngvi Karl Jónsson er 58 ára og er starfandi náms- og starfsráðgjafi hjá Skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Hann er fæddur og uppalinn fyrstu árin á Torfastöðum í Fljótshlíð en bjó síðar á Hvolsvelli og í Hveragerði auk þess sem hann dvaldi við nám og störf í Bandaríkjunum um árabil. Yngvi Karl býr nú á Hellu með fjölskyldu sinni. Yngvi Karl er með BA í sálfræði og MA í ráðgjöf frá UNC-háskólanum í Charlotte í Norður-Karólínu auk meistaragráðu í kennslufræðum frá Háskólanum á Akureyri. Hann hefur sinnt kennslu í grunnskólunum í Hveragerði, Eyrarbakka og Stokkseyri og Hvolsvelli. Hann veitti forstöðu meðferðarheimili Barnaheilla á Geldingalæk um árabil og var árið 2010 ráðinn af Barnaverndarstofu til að setja á stofn meðferðarheimilið Lækjarbakka og var þar forstöðumaður til ársins 2020. Hann hefur einnig starfað sem íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og stýrt félagsmiðstöðvum. Þá hefur Yngvi Karl sinnt íþróttaþjálfun meðfram öðrum störfum alla tíð auk þess sem hann hefur verið virkur í sveitarstjórnarmálum.
21.04.2021
Skrifstofa Ásahrepps lokuð fyrir almenningi vegna COVID-19
Skrifstofa Ásahrepps er lokuð almenningi frá og með 21. apríl 2021, skv. ákvörðun hreppsnefndar á 41. fundi sínum.
19.04.2021
Auglýst eftir verkefnisstjóra Stafræns Suðurland
Auglýst er eftir verkefnastjóra Stafræns Suðurlands, en hægt er að sjá auglýsinguna með því að smella á slóðina hér fyrir neðan:
16.04.2021
41. fundur hreppsnefndar Ásahrepps
41. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 21. apríl n.k. og hefst hann klukkan 8:30. Fundurinn verður haldinn í fjarfundakerfi Zoom.
14.04.2021
Umsækjendur um stöðu skólastjóra Laugalandsskóla
Alls bárust sex umsóknir um stöðu skólastjóra Laugalandsskóla. Þau er:
07.04.2021
40. fundur hreppsnefndar - aukafundur
40. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn föstudaginn 9. apríl n.k. og hefst hann klukkan 13:00. Þetta er aukafundur vegna framlagningar ársreiknings Ásahrepps 2020 og fer fundurinn fram í fjarfundakerfi Zoom.
31.03.2021
Sameining sveitarfélaga - oddvitar funda með þingflokkum
Oddvitar sveitarstjórnanna fimm hafa átt fjarfundi með þingflokkum á Alþingi. Á fundunum hafa þau kynnt verkefnið Sveitarfélagið Suðurland og svarað spurningum þingmanna, en meginmarkmiðið var að kynna áherslur sveitarstjórnanna.
31.03.2021
Skipulagsauglýsing UTU 31.3.2021
Til að sjá auglýsingu þarf að smella á krækjuna hér fyrir neðan:
25.03.2021
Tilkynning vegna leikskólastarfs næstu daga
Stjórnendur hjá Rangárþingi ytra og Odda bs funduðu fyrr í dag í kjölfar ákvarðana sóttvarnaryfirvalda um hertar samkomutakmarkanir. Ákveðið var að senda út eftirfarandi skilaboð:
17.03.2021
Móttaka á skrifslegum gögnum og teikningum til skipulags- og byggingarfulltrúa
Skrifstofa Flóahrepps í Þingborg tekur við skriflegum gögnum og teikningum sem berast eiga byggingar- eða skipulagsfulltrúa UTU - til viðbótar við skrifstofu embættisins að Dalbraut 12 á Laugarvatni. Þetta ætti einkum að vera til hægðarauka fyrir íbúa og aðra viðskiptavini embættisins sem búa í neðri byggðum starfssvæðisins, s.s. í Flóahreppi, Ásahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
17.03.2021
Skrifstofa Ásahrepps lokuð fyrir almenningi vegna COVID-19
Skrifstofa Ásahrepps er lokuð almenningi frá og með 17. mars 2021, skv. ákvörðun hreppsnefndar á 39. fundi sínum.
17.03.2021
Staða skólastjóra Laugalandsskóla laus til umsóknar
Staða skólastjóra Laugalandsskóla hefur verið auglýst laus til umsóknar. Til að sjá auglýsinguna þarf að smella á krækjuna hér fyrir neðan: