Fara í efni

Fréttir

21.09.2020

Kálfholtskirkja

Guðsþjónusta verður í Kálfholtskirkju sunnudaginn 27. september n.k. klukkan 14:00.
16.09.2020

Skógræktarfélagi Rangæinga vantar fólk til gróðursetningar

Skógræktarfélag Rangæinga hefur tekið að sér stórt gróðursetningaverkefni fyrir Kolvið á Geitasandi á Rangárvöllum.  Okkur vantar fólk til að gróðursetja og er þetta alveg tilvalin fjáröflun fyrir íþróttafélög, kóra, björgunarsveitir eða aðra sem áhuga hafa.  Greitt er fyrir hverja plöntu sem í jörð fer.  Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður H Heiðmundsdóttir í síma 869-2042.
14.09.2020

31. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

31. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 16. september 2020 og hefst kl. 8:30.
24.08.2020

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Til að sjá auglýsingu Félagsþjónustunnar um sérstakan húsnæðisstuðning þarf að smella á krækjuna hér fyrir neðan:
19.08.2020

Auglýst eftir félagsráðgjafa í afleysingu í barnavernd.

Til að sjá auglýsingu skal smella á kræjuna hér fyrir neðan:
17.08.2020

Fegrunarátak Ásahrepps.

Vekrkefnið hefur farið vel af stað og margt í gangi. Gert er ráð fyrir að verkefni verði í gangi fram í byrjun október.  Í dag er óljóst hvernig staðið verði að uppskeruhátíð, eins og kynnt var í upphafi, við verðum bara að sjá hvernig COVID-19 þróast með haustinu.
14.08.2020

30. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

30. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 19. ágúst 2020 og hefst kl. 8:30.
05.08.2020

Tilkynning frá Sorpstöð

Vegna þjónustuskoðunar sorpbifreiðar þá færist losun í Eyjafjöllum sem vera átti á morgun fram á föstudaginn (7. ágúst) og losun sem vera átti þá (gul á sorphirðudagatali) færist fram í næstu viku. Verið er að losa plast og lífrænt.
08.07.2020

Auglýsing um skipulagsmál

Til að sjá auglýsinguna þá skal smella á krækjuna hér fyrir neðan:
01.07.2020

Sumarlokun skrifstofu Ásahrepps

Skrifstofa Ásahrepps verður lokuð vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 7. ágúst 2020.
15.06.2020

Sumarguðsþjónusta í Kálfholtskirkju

Sumarguðsþjónusta sunnudagskvöldið 21. júní kl. 20.30. Kórinn syngur lög og sálma sem hæfa árstímanum og gefa stundinni helgan og léttan blæ. Kirkjukaffi á stéttinni eftir athöfn.
12.06.2020

Forsetakosningar 27. júní 2020, framlagning kjörskrár og kjörstaður.

Kjörfundur vegna forsetakosninga verður haldinn í Ásgarði fyrir alla íbúa Ásahrepps.  Kjörfundur hefst laugardaginn 27. júní n.k. klukkan 11:00 og lýkur kl. 19:00.
12.06.2020

29. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

29. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn mánudaginn 15. júní 2020 og hefst kl. 8:30.
10.06.2020

17. júní hátíðarhöld Ásahrepps í Ásabrekkuskógi.

Hátíðin hefst kl. 10:30. Boðið verður upp á andlistmálun, blöðrur hnýttar og farið í leiki.  Kirkjukór Kálfholtskirkju syngur og hinir geysivinsælu grillarar frá kvenfélaginu grilla hamborgara og pylsur.  Fulltrúar frá Skógræktarfélagi Rangæinga munu mæta og koma með berjaplöntur sem gróðursettar verða í Ásabrekkuskógi.
03.06.2020

Skrifstofa Ásahrepps opin fyrir almenning

Frá og með 1. júní 2020 hefur skrifstofa Ásahrepps verið opnuð aftur fyrir almenning, líkt og var fyrir lokun þann 23. mars s.l. vegna COVID-19.
24.05.2020

Sandra Rún Jónsdóttir ráðin skólastjóri Tónlistarskóla Rangæinga

Á fundi stjórnar Tónlistarskóla Rangæinga 22. maí var tekin ákvörðun um ráðningu í starf skólastjóra Tónlistarskóla Rangæinga sem auglýst var á dögunum. Niðurstaðan var að ráða Söndru Rún Jónsdóttur í starfið og mun hún hefja störf frá og með 1. ágúst 2020.
15.05.2020

28. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

28. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 20. maí 2020 og hefst kl. 8:30.
13.05.2020

Skipulagsauglýsing

Til að sjá skipulagsauglýsingu þá skal smella á krækjuna hér fyrir neðan:
13.05.2020

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. auglýsir sumarhreinsun

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. auglýsir sumarhreinsun fyrir fasteignaeigendur í Rangárvallasýslu, dagana 22. maí til 25. júní  2020.
11.05.2020

Samfélagssáttmáli - Samhæfingarmiðstöð almannavarna

Upplýsingahópur almannavarna hefur gefið út samfélagssáttmála.  Þar er verið að hvetja fólk áfram og tryggja góðan árangur áfram.
05.05.2020

Nýsköpunarsjóður námsmanna

Opið er fyrir umsóknir í Nýsköpunarsjóð námsmanna fram til kl. 16.00 þann 8.maí 2020.
04.05.2020

Hreinsun rotþróa í Ásahreppi 2020.

Til að sjá auglýsinguna í heild sinni þarf að smella á krækjuna hér fyrir neðan:
27.04.2020

Ritari óskast hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita bs.

Smellið á krækjuna hér fyrir neðan til að sjá auglýsingu:
27.04.2020

Umsóknir um stöðu skólastjóra Tónlistarskóla Rangæinga bs.

Umsækjendur um stöðu skólastjóra Tónlistarskóla Rangæinga bs. voru 8 talsins en umsóknarfrestur rann út um miðjan apríl.  Verið er að vinna úr umsóknum og umsækjendur hafa verið boðaðir í viðtöl í þessari viku.
20.04.2020

Skipulags- og matslýsing endurskoðunar Aðalskipulags Ásahrepps

Nú er í auglýsingu Skipulags- og matslýsing endurskoðunar Aðalskipulags Ásahrepps 2020-2032, eins og kynnt hefur verið áður.
20.04.2020

27. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

27. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl 2020 og hefst kl. 9:00.
16.04.2020

Auglýsing um skipulagsmál

Til að sjá auglýsinguna þarf að smella á krækjuna hér fyrir neðan.  Í auglýsingunni sjálfri eru krækjur þar sem kalla má fram lýsingu, kynningu, uppdrætti og uppdrátt og greinargerð.
10.04.2020

26. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

26. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 15. apríl 2020 og hefst kl. 8:30.
03.04.2020

Starf leikskólanna í Dymbilvikunni

Ákveðið hefur verið að starf leikskólanna á Laugalandi og Heklukoti í Dymbilvikunni miðist við að taka eingöngu á móti þeim börnum sem eru í forgangi þ.e. börn framlínustarfsmanna samkvæmt sérstökum lista sóttvarnarlæknis og almannavarna. Leikskólastjórar munu skipuleggja starfið í samræmi við þetta og hafa samband við foreldra. Þetta er gert til að létta á leikskólunum okkar en starfsfólk grunn- og leikskóla hefur staðið sig með einstakri prýði á þessum erfiðu tímum og samstarf við foreldra verið hreint út sagt frábært. Það verður því aðeins lengra páskafrí í skólum okkar að þessu sinni. Gætum að því að fara varlega, passa upp á sóttvarnir eftir bestu getu og hjálpast að.
25.03.2020

Bakvarðarsveit fyrir Hjúkrunarheimilið Lund

Við á Lundi teljum mikilvægt að koma á fót bakvarðarsveit fyrir hjúkrunarheimilið á þessum tímum. Ef til kemur að mikið brottfall verði í hópi starfsmanna Lundar gæti verið nauðsynlegt fyrir okkur að fá aðstoð við hin ýmsu störf sem nauðsynleg eru til að halda heimilinu gangandi s.s. umönnunarstörf, eldhússtörf og ræstingu. Við leitum því að fólki sem gæti veitt aðstoð ef slíkar aðstæður koma upp og þá fólki með reynslu af umönnunarstörfum eða aðra reynslu sem nýst gæti á heimilinu. Áhugasamir sendi tölvupóst á netfang Lundar  lundur@hellu.is með upplýsingum um nafn og símanúmer og við höfum samband ef að þörf krefur.