Fara í efni

Fréttir

19.12.2023

Atvinnuauglýsing

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs.  á Stönd óskar eftir að ráða verkamann í flokkun og viðgerðir í 100 % starf.
15.12.2023

21. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

21. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi miðvikudaginn 20. desember 2023.  Fundur hefst klukkan 8:30.
14.12.2023

Jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga

Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga verður laugardaginn 16. desember n.k frá kl. 12-15  í Bolholtsskógi á Rangárvöllum.
02.12.2023

20. fundur hreppsnefndar Ásahrepps - Aukafundur

Hreppsnefnd Ásahrepps mun halda aukafund, sem verður 20. fundur hreppsnefndar á kjörtímabilinu.  Fundurinn verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi miðvikudaginn 6. desember 2023.  Fundur hefst klukkan 16:00.  Eitt mál er á dagskrá fundarins, önnur umræða um fjárhagsáætlun Ásahrepps fyrir árin 2024-2027.
29.11.2023

Náms- og starfsráðgjafi Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu

Félags- og Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu auglýsir eftir Náms- og starfsráðgjafa í fullt starf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir góðri þekkingu á skólamálum. Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólana. Í sveitarfélögunum eru fimm grunnskólar. Íbúar eru tæplega sex þúsund. Þau fimm sveitarfélög sem mynda byggðasamlag um félags- og skólaþjónustu eru: Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur.
29.11.2023

Íbúafundur

Ágætu íbúar Ásahrepps og aðrir hagsmunaaðilar.
29.11.2023

Kennsluráðgjafi Félags- og skólaþjónustu Rngárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu

Félags- og Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu óskar eftir að ráða kennsluráðgjafa í 100% starf á grunnskólastigi. Starfsfólk félags- og skólaþjónustu starfar í þverfaglegu og sveigjanlegu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, snemmtæka íhlutun og farsæld í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Í sveitarfélögunum eru fimm grunnskólar. Íbúar eru tæplega sex þúsund. Þau fimm sveitarfélög sem mynda byggðasamlag um félags- og skólaþjónustu eru: Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur.
27.11.2023

Svæðisskipulag Suðurhálendis

Tillaga að svæðisskipulagi fyrir Suðurhálendi til ársins 2042, ásamt umhverfisskýrslu, hefur verið birt til kynningar og athugasemda í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar (skipulagsgatt.is).  Slóð inn á gáttina er: https://www.skipulagsgatt.is/issues/862
27.11.2023

Atvinna, - skrifstofustjóri Bergrisans

Bergrisinn bs. auglýsir eftir skrifstofustjóra í fullt starf. Skrifstofustjóri er ný staða hjá Bergrisanum og er tilkomin vegna aukinna umsvifa undanfarin ár ásamt auknum kröfum um uppbyggingu í málaflokki fatlaðs fólks. Með ráðningu skrifstofustjóra er verið að styrkja miðlæga stjórn Bergrisans ásamt því að stuðla að þverfaglegu samstarfi við stefnumótun og uppbyggingu þjónustuúrræða. Leitað er að reynslumiklum einstaklingi sem hefur góða hæfni í að vinna sjálfstætt og metnað til að móta nýja stöðu skrifstofustjóra. Starfið er án staðsetningar.
27.11.2023

Kálfholtskirkja

Aðventuguðsþjónusta verður 1. sd. í aðventu 3. des. kl. 17.00.
23.11.2023

Skipulagsauglýsing UTU, 23. nóvember 2023

Til að sjá auglýsinguna þarf að smella á krækjuna: https://www.utu.is/skipulagsauglysingar/ eða beint á auglýsinguna sjálfa: https://www.utu.is/auglysingar/skipulagsauglysing-sem-birtist-23-november-2023/
11.11.2023

19. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

19. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 15. nóvember 2023 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi.  Fundur hefst klukkan 8:30.
30.10.2023

Kálfholtskirkja

Það verður guðsþjónusta í Kálfholtskirkju næsta sunnudag 5. nóvember, kl. 14.00. Kórinn syngur við undirleik Eyrúnar organista. Fermingarbörn vorsins og fjölskyldur þeirra sérstaklega boðin velkomin.
16.10.2023

Auglýst eftir félagsráðgjafa / þroskaþjálfa í málaflokki fatlaðs fólks

Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir laust til umsóknar starf þroskaþjálfa og/eða félagsráðgjafa í málaflokk fatlaðs fólks. Um er að ræða 100 % starfshlutfall. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu sem annast félags- og skólaþjónustu sveitarfélaganna í Ásahreppi, Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi. Skrifstofa félagsþjónustunnar er staðsett á Hellu. Í sveitarfélögunum búa u.þ.b. 6000 manns. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands, Félagsráðgjafafélags Íslands eða annarra félaga sem við eiga.
16.10.2023

Auglýst eftir félagsráðgjafa í félagsþjónustu

Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu auglýsir laust til umsóknar starf ráðgjafa í félagsþjónustudeild. Um er að ræða  50-100% starfshlutfall. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu sem annast félags- og skólaþjónustu sveitarfélaganna í Ásahreppi, Rangárþingi ytra, Rangárþingi eystra, Mýrdalshreppi og Skaftárhreppi. Skrifstofa félagsþjónustunnar er staðsett á Hellu. Í sveitarfélögunum búa u.þ.b. 6000 manns. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags Íslands eða annara félaga sem við eiga.
13.10.2023

18. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

18. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 18. október á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi.  Fundur hefst klukkan 8:30.
11.10.2023

Við viljum heyra í þér

Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Ásahreppur vinna nú saman að Heilsueflingu íbúa í sýslunni. Eitt af þeim verkefnum sem sveitarfélögin  ætla að gera er greiningarvinna og átak til að innleiða heilsueflandi aðgerðir í sveitarfélaginu.
25.09.2023

Fréttapunktar af vettvangi Ásahrepps, 20. september 2023

Uppgræðsla á Holtamannaafrétti
19.09.2023

Auglýst eftir náms- og starfsráðgjafa Félags- og skólaþjónustu

Náms- og Starfsráðgjafi Félags- og Skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu
18.09.2023

Skrifstofan er lokuð eftir hádegi í dag 18. september 2023

Skrifstofa Ásarhepps verður lokuð eftir hádegið í dag, 18. september 2023.
15.09.2023

17. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

17. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi miðvikudaginn 20. september 2023.  Fundur hefst klukkan 8:30.
28.08.2023

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu heldur utan um afgreiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings sem sveitarfélögum er skylt að greiða samkvæmt lögum um húsnæðisbætur nr. 76/2016. Sérstakur húsnæðisstuðningur kemur þá í stað sérstakra húsaleigubóta. Nánari upplýsingar um skilyrði fyrir samþykki umsóknar og fjárhæð sérstaks húsnæðisstuðnings má sjá í reglum um sérstakan húsnæðisstuðning inn á heimasíðu Félagsþjónustunnar, www.felagsmal.is.
18.08.2023

16. fundur hreppsnefndar Ásahrepps

16. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Laugalandi, miðvikudaginn 23. ágúst 2023.  Fundur hefst klukkan 8:30.
09.08.2023

Laust starf kennsluráðgjafa hjá Félags- og skólaþjónustu

Félags- og Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu óskar eftir að ráða kennsluráðgjafa í 100% starf á grunnskólastigi. Starfsfólk félags- og skólaþjónustu starfar í þverfaglegu og sveigjanlegu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu, snemmtæka íhlutun og farsæld í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Í sveitarfélögunum eru fimm grunnskólar. Íbúar eru tæplega sex þúsund. Þau fimm sveitarfélög sem mynda byggðasamlag um félags- og skólaþjónustu eru: Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur.