Félags- og Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu auglýsir eftir Náms- og starfsráðgjafa í fullt starf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir góðri þekkingu á skólamálum. Leitað er að einstaklingi með mikinn metnað og sem leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólana. Í sveitarfélögunum eru fimm grunnskólar. Íbúar eru tæplega sex þúsund. Þau fimm sveitarfélög sem mynda byggðasamlag um félags- og skólaþjónustu eru: Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur.
Ákveðið hefur verið að skrifstofa Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs. verði lokuð frá og með mánudeginum 17. júlí til og með föstudagsins 11. ágúst 2023 vegna sumarleyfa starfsfólks.
VISS, vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða leiðbeinenda í 50% stöðu sem fyrst. VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu. Hjá VISS er unnið eftir hugmyndafræðinni „Þjónandi leiðsögn“ og „Sjálfstætt líf“. Leiðbeinendur vinna samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.
13. fundur hreppsnefndar Ásahrepps, sem er aukafundur, verður haldinn fimmtudaginn 27. apríl 2023 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi. Fundur hefst klukkan 8:30.
12. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 19. apríl 2023 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum. Fundur hefst klukkan 8:30.
Samfélag okkar nær og fjær er harmi slegið vegna andláts Guðjóns Björnssonar á Syðri-Hömrum sem fórst í hörmulegu slysi þann 17. mars sl. Við finnum öll að þörfin er knýjandi að sýna samhug í verki og því hefur verið hrundið af stað fjársöfnun til stuðnings konu hans og börnunum þeirra þremur.
Félags- og Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu auglýsir eftir ritara í 70% starf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir góðri tölvukunáttu og góðum samskiptahæfileikum. Þau fimm sveitarfélög sem mynda byggðasamlag um Félags- og Skólaþjónustu eru: Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur. Íbúar eru tæplega sex þúsund.
11. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 15. mars 2023 á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi í Holtum. Fundur hefst klukkan 8:30.
VISS vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða deildastjóra sem allra fyrst í 55% stöðu sem getur aukist með vorinu. VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu sem vinnur eftir hugmyndafræði „þjónandi leiðsögn“ og „sjálfstætt líf. Um er að ræða nýja starfseiningu á Hvolsvelli sem hóf starfsemi í janúar 2021. Deildarstjórinn vinnur samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.