Útivistarstígar - grænar samgöngur

Útivistarstíga í Ásahreppi / grænar samgöngur
Markmið verkefnisins er að leggja útivistarstíga opna almenningi fjarri þungri umferð og auka þannig lífsgæði og útivistarmöguleika í sveitarfélaginu. Reynt er að tengja hverfin í sveitarfélaginu með góðri samvinnu við landeigendur. Verkefnið er hluti af grænum samgöngum og byggir á verkum fyrri hreppsnefnda, en þegar farið var af stað með að leggja bundið slitlag á vegi og heimreiðar í Ásahreppi var íbúum boðið að sækja um styrki til að leggja reiðvegi/útivistarstíga meðfram bundna slitlaginu. Æ síðan hafa af og til verið veitt fjárframlög til slíkra verkefna, allt eftir því hvernig sveitarsjóður hefur staðið hverju sinni.
Árið 2025 var ákveðið að fara af stað með átak í uppbyggingunni. Verkefnið skiptist annars vegar í stofnstíga, sem lagðir verða fjarri þungri umferð og kostaðir verða af sveitarfélaginu. Þeim er ætlað að tengja hverfi í sveitarfélaginu. Hins vegar tengingu bæja og þeirra stíga sem fyrir eru við stofnleiðir. Þar sem stofnleiðir eru í vinnslu og eru háðar því að samfelld stígagerð náist var ákveðið að auglýsa fjárveitingar til uppbyggingar og endurbóta á stígum sem fyrir eru og nýtast meðfram vegum sem ekki eru mjög umferðarþungir. Sveitarfélagið hefur þegar lagt stofnstíg á Faxatröð, þ.e. milli Skógaráss og Ásmundarstaða.
Alls var sótt um fjárframlög fyrir 5 stíga árið 2025 sem hafa verið lagðir/endurnýjaðir:
- Meðfram Ásvegi frá Litla-Landi að Framnesi, alls 4 km. Endurbætur á stíg.
- Meðfram Hestheimavegi frá Einholti að Sumarliðabæ 2, u.þ.b. 1,5 km. Nýlagning frá Einholti að Hestheimum og þaðan endurbætur að Sumarliðabæ 2.
- Meðfram Hamrahólsvegi frá Skjólholti að Syðri-Hömrum, u.þ.b. 1.200 m. Nýlagning.
- Meðfram Miðhólsvegi frá Ásmundarstaðavegi og meðfram Ásmundastaðavegi í landi Miðhóls, u.þ.b. 270 m. Nýlagning.
- Meðfram Bugavegi (Vetleifsholtsvegi) frá afleggjara að námu, u.þ.b. 400 m. Nýlagning.
Alls voru því lagðir/lagfærðir tæpir 7,5 km. af útivistarstígum í flokkum 1 og 2 árið 2025. Misjafnt var hversu margir stóðu að baki hverri umsókn, en mesti fjöldinn var við Ásveg. Skilyrði fyrir umsókn er að leiðin verði opin almenningi og að umsækjendur eigi lögheimili í sveitarfélaginu. Aðeins ein umsókn getur komið frá hverju heimili. Upplýsingar um reglur og umsóknarform er að finna undir Umsóknir hér á heimasíðunni.
Opið var fyrir umsóknir fyrir framkvæmdaárið 2026 til 10. apríl sl. og bárust alls 3 umsóknir um fjárframlög. Áætlað er að leggja stíga áfram meðfram:
- Bugavegi, áfram í átt að Vetleifsholti
- Hamravegi áfram í átt að Syðri Hömrum
- Sauðholtsvegi frá kirkju að landamerkjum Sauðholts og Kálfholts og
- Kálfholtsvegi frá pípuhliði við Laufbrekku í átt að þjóðvegi.
Framkvæmdum á að vera lokið 30. nóvember 2026.
Kristín Hreinsdóttir, verkefnastjóri útivistarstíga Ásahrepps, apríl 2026