Ágætu íbúar Ásahrepps og aðrir hagsmunaaðilar.
Hreppsnefnd Ásahrepps boðar til íbúafundar, sem haldinn verður að Laugalandi (matsal) fimmtudaginn 4. nóvember 2021 klukkan 18:30 – 20:30 þar sem tillaga um endurskoðað aðalskipulag Ásahrepps verður kynnt. Einnig verður á dagskrá umræða um framtíð samkomuhússins Ásgarðs í Ási.
Markmið fundarins er að eiga samtal við íbúa Ásahrepps og aðra hagsmunaaðila áður en aðalskipulagstillagan verður sett í almenna kynningu. Einnig er ætlunin að heyra skoðun íbúa Ásahrepps um framtíð samkomuhússins Ásgarðs í Ási.