Um sveitarfélagið
Ásahreppur er vestast í Rangárvallasýslu. Hreppurinn varð til 11. júlí 1892 þegar Holtamannahreppi var skipt í tvennt, í Holtahrepp hið efra og Ásahrepp hið neðra.
Ásahreppi sjálfum var skipt í tvennt 1. janúar 1936 og varð neðri hlutinn að Djúpárhreppi en sá efri hélt nafninu óbreyttu.
Áshreppingar hafa atvinnu af landbúnaði, verslun og öðrum þjónustugreinum. Náttúran er mjög fjölbreytt, mýrlent á köflum en ásar og holt á milli þar sem bændabýlin standa 3 - 5 í þyrpingum eða hverfum, sem einkenna byggðamynstur sveitarfélagsins. Stærsta varpland grágæsar á Íslandi er við Frakkavatn.
Þjórsá rennur við hreppamörkin og sýslumörkin í vestri. Afréttur Ásahrepps er 4/7 hlutar af Holtamannaafrétti á móti 3/7 hlutar Rangárþings ytra. Holtamannaafréttur nær meðal annar yfir austurhluta Þjórsárvera, og vesturhluta Vatnajökulsþjóðgarðs. Um Holtamannaafrétt liggur Sprengisandsvegur milli Suður- og Norðurlands.
1. desember 2016 voru íbúar Ásahrepps 255 og heimilisföng 67.