Allar fréttir

Föstudagur, 3. janúar 2020

23. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 8. janúar 2020 klukkan 8:30.  Fundurinn fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins að Laugalandi.

Smellið á krækjuna hér fyrir neðan til að sjá dagskrá fundarins:

Dagskrá 23. fundar hreppsnefndar Ásahrepps

Föstudagur, 27. desember 2019

Smelltu á krækjuna hér fyrir neðan til að sjá auglýsinguna:

Þjónustufulltrúi seyruverkefnis

Miðvikudagur, 18. desember 2019

Smellið á kræjuna hér fyrir neðan til að sjá auglýsinguna:

Auglýsing um skipulagsmál

Miðvikudagur, 18. desember 2019

Auglýst er útboð vegna frágangs á nýrri aðstöðu Brunavarna Rangárvallasýslu bs. á Hellu.

Smellið á krækjuna hér fyrir neðan til sjá auglýsinguna:

Auglýsing vegna útboðs

Miðvikudagur, 18. desember 2019

24. desember - Aftansöngur á aðfangadag kl. 16:00. Stund fyrir foreldra og börn og fjölskylduna alla, áður en heilög jól ganga í garð.

Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól og farsæld í lífi og starfi á nýju ári.

Sr. Halldóra

Föstudagur, 13. desember 2019

22. fundur hreppsnefndar Ásahrepps verður haldinn miðvikudaginn 18. desember 2019 á skrifstofu sveitarfélagsins að Laugalandi.  Fundurinn hefst klukkan 8:30.

Smellið á krækjuna hér fyrir neðan til að sjá dagskrá fundarins:

Dagskrá 22. fundar hreppsnefndar Ásahrepps

Föstudagur, 13. desember 2019

Mikið álag er nú á hitaveitunni enda frostið mikið. Í svona tíð er mikilvægt að allir notendur hitaveitunnar fari vel með heita vatnið; láti alls ekki renna í heita potta, hafi glugga lokaða og dyr ekki opnar lengur en nauðsyn krefur til að halda hitanum inni. Sundlaugin verður lokuð á meðan á kuldakastinu varir.

Fimmtudagur, 5. desember 2019

Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga verður sunnudaginn 15. desember n.k frá kl. 13-16 í Bolholtsskógi á Rangárvöllum.  Þá býðst fólki að koma í skóginn og höggva sitt eigið tré.  Eingöngu verður í boði að höggva stafafuru á staðnum.  Við verðum auk þess með takmarkað magn af greni.

Boðið er uppá að fólk geti pantað tré og verður afhending föstudaginn 20. desember á Hellu og Hvolsvelli milli kl. 17-18.  Allar upplýsingar eru í símum 8692042 og 8621957.

Fimmtudagur, 5. desember 2019

Hafinn er undirbúningur að útgáfu markaskrár fyrir Rangárvallasýslu,  í samræmi við 66. gr. laga um afréttarmálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986 og reglugerð um búfjármörk o.fl. nr. 200/1998 með síðari breytingum. Nýrri markaskrá verður dreift sumarið 2020.

Mánudagur, 2. desember 2019

Hreppsnefnd Ásahrepps boðar til íbúafundar, sem haldinn verður að Laugalandi (matsal) þriðjudaginn 3. desember 2019 klukkan 20:00.

Ef smellt er á krækjuna hér fyrir neðan má sjá auglýsingu sem send var út sem dreifibréf til íbúa Ásahrepps:

Auglýsing

Pages