Atvinnuauglýsing

Miðvikudagur, 1. March 2023

VISS vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða deildastjóra sem allra fyrst í 55% stöðu sem getur aukist með vorinu. VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu sem  vinnur eftir hugmyndafræði „þjónandi leiðsögn“ og „sjálfstætt líf. Um er að ræða nýja starfseiningu á Hvolsvelli sem hóf starfsemi í janúar 2021.  Deildarstjórinn vinnur  samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.  

Helstu verkefnin eru :

  • Daglegt utanumhald um rekstur og  starfsemina 
  • Starfsmannahald  
  • Móta stefnu og markmið þjónustunnar í samráði við forstöðumann 
  • Verkefnaöflun og að verkefni sé við hæfi hvers og eins 
  • Utanumhald um skráningar og vistun skjala

Helstu markmið starfsins eru:

  • Faglegt starf með fötluðu fólki 
  • Leiðbeina, styðja og hvetja   
  • Skapa  öryggi og vellíðan á vinnustað 
  • Efling sjálfsákvörðunarréttar fatlaðs fólks  

Hæfniskröfur:

  • Menntun í þroskaþjálfa eða háskólapróf (BA/BS) á sviði  uppeldis- eða félagsvísinda.
  • Reynslu af stjórnun og starfsmannahaldi
  • Leiðtoga og skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og góð þjónustulund
  • Almenn tölvukunnátta æskileg
  • Líkamleg geta til þess að sinna krefjandi verkefnum á vinnustað

Laun eru samkvæmt  kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga, þroskaþjálfafélags Íslands  

Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag í stöðugri sókn. Sveitarfélagið leggur ríka áherslu á samvinnu, virðingu og vellíðan á vinnustað. 

Öllum umsóknum verður svarað.