Nýr yfirlæknir í Rangárþingi

Þriðjudagur, 2. september 2025

Bjarni Valtýsson hefur verið ráðinn sem yfirlæknir í Rangárþingi og hóf störf 1. september.

Bjarni lauk námi við læknadeild HÍ árið 1983 og hlaut sérfræðiviðurkenningu í svæfinga- og gjörgæslulækningum árið 1989. Hann hefur starfað á sjúkrahúsum bæði hér heima og erlendis. Auk þess starfað á einkareknum læknastofum í Reykjavík. Meðfram svæfingum hefur Bjarni unnið við sérhæfða verkjameðferð í áratugi.

Undanfarin ár hefur hann starfað reglulega á heilsugæslunni í Rangárþingi sem heilsugæslulæknir.

Við hjá Ásahreppi bjóðum Bjarna innilega velkominn til starfa.