Hreppsnefnd Ásahrepps hvetur alla íbúa Ásahrepps til þess að taka þátt í árverknisátakinu “Plastlaus september”. Átakinu er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti.
Nánari upplýsingar er að finna á www.plastlausseptember.is
Plastlausa vikan nær hámarki í dag og á morgun, þann 14. og 15. september. Alþjóðlegi Alheimshreinsunardagurinn er laugardagurinn 15. september. Bent er á móttökustöðina sunnan Landvegamóta þar sem staðsettur er gámur fyrir plast. Jafnframt eru tunnur fyrir plast við hvert heimili.
Við getum valið hvort við tökum þátt í einn dag, eina viku, heilan mánuð eða til framtíðar.