
Þann 5. apríl sl. fór fram lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fyrir grunnskólana í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, auk Vestmannaeyja. Víkurskóli var gestgjafi að þessu sinni og var hátíðin haldin á Hótel Kötlu að Höfðabrekku í Mýrdal.
Skólarnir sem þátt tóku auk Víkurskóla voru Grunnskólinn á Hellu, Hvolsskóli, Kirkjubæjarskóli, Laugalandsskóli og Grunnskóli Vestmannaeyja.
Keppendur voru 13 talsins, en að auki var fjöldi gesta viðstaddur hátíðina, m.a. foreldrar keppenda og kennarar skólanna, auk annarra góðra gesta.
Staðarhaldarar á Hótel Kötlu tóku vel á móti keppendum og fararstjórum og buðu þeim upp á ljúffenga súpu við komu á staðinn.
Nemendur Tónlistarskóla Mýrdalshrepps sáu um tónlistaratriði og í hléi voru bornar fram glæsilegar kaffiveitingar.
Veðrið var okkur hliðholt og fært í Landeyjahöfn svo hópurinn frá Vestmannaeyjum komst fram og til baka samdægurs, en ferðalagið til okkar á Stóru upplestrarkeppnina hefur stundum tekið Eyjakrakkana allt upp í þrjá daga.
Allir keppendurnir 13 stóðu sig með mikilli prýði og greinilegt er að vel hefur verið unnið að þjálfun í skólunum í vetur.
Eins og oft áður var dómnefndinni vandi á höndum að gera upp á milli allra þessara góðu lesara, en á endanum stóðu eftir sem sigurvegarar eftirtaldir nemendur:
1. sæti Herborg Sindradóttir Grunnskóla Vestmannaeyja
2. sæti Karl Anders Þórólfur Karlsson Víkurskóla
3. sæti Jón Grétar Jónasson Grunnskóla Vestmannaeyja