Kjörfundur vegna sveitarstjórnakosninga verður haldinn að Laugalndi í Holtum (Miðgarði) fyrir alla íbúa Ásahrepps. Kjörfundur hefst laugardaginn 16. maí n.k. klukkan 10:00 og lýkur kl. 18:00.
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki með mynd.
Kjörskrá fyrir Ásahrepp liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Laugalandi frá 20. apríl til kjördags á opnunartíma sem er á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 12:00 til 16:00.
Bent er á upplýsingavef http://www.kosning.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Þar geta kjósendur einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefslóðinni:
https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/sveitarstjornarkosningar-2026/
Skrifstofa Ásahrepps
