Sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026. Framlagning kjörskrár og kjörstaður

Mánudagur, 20. apríl 2026

Kjörfundur vegna sveitarstjórnakosninga verður haldinn að Laugalndi í Holtum (Miðgarði) fyrir alla íbúa Ásahrepps.  Kjörfundur hefst laugardaginn 16. maí n.k. klukkan 10:00 og lýkur kl. 18:00.

Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki með mynd.

Kjörskrá fyrir Ásahrepp liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins að Laugalandi frá 20. apríl til kjördags á opnunartíma sem er á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 12:00 til 16:00.

Bent er á upplýsingavef  http://www.kosning.is en þar er að finna hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Þar geta kjósendur einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá á vefslóðinni: 

https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/sveitarstjornarkosningar-2026/

 

Skrifstofa Ásahrepps