VISS, vinnu og hæfingarstöð á Hvolsvelli leitar eftir leiðbeinanda

Þriðjudagur, 18. March 2025

VISS, vinnu og hæfingarstöð óskar eftir að ráða leiðbeinenda í 55%  stöðu sem fyrst. VISS er vinnustaður fyrir fólk með skerta starfsgetu. Hjá VISS er unnið eftir hugmyndafræðinni „Þjónandi leiðsögn“ og „Sjálfstætt líf“.  Leiðbeinendur vinna samkvæmt lögum 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 auk tengdra reglugerða.

  • Meginverkefni:
  • Veita stuðning, einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu.
  • Umsjón verkefna starfsstöðvarinnar. 
  • Veita persónulega aðstoð við athafnir daglegs lífs. 
  • Skipuleggja og forgangsraða störfum sínum í samráði við viðkomandi yfirmenn.                          
  • Hæfniskröfur:
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynslu í starfi með fötluðu fólki
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og góð þjónustulund
  • Almenn tölvu kunnátta
  • Hreint sakarvottorð

Umsóknar frestur er til og með 8. apríl 2025

Nánari upplýsingar veitir Elías Árnason deildarstjóri VISS á Hvolsvelli viss@hvolsvollur.is

Umsóknum skal skilað á netfangið svava@felagsmal.is eða anton@hvolsvollur.is

Rangárþing eystra er heilsueflandi samfélag í stöðugri sókn. Sveitarfélagið leggur ríka áherslu á samvinnu, virðingu og vellíðan á vinnustað.

Öllum umsóknum verður svarað.